Sigmundur fékk helstu fjölmiðlastjórnendur á sinn fund

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra kall­aði útvarps­stjóra, rit­stjóra og frétta­stjóra 365 á fundi. Rit­stjóri 365 segir fregnir af ófag­legum sam­skiptum hennar við þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra ímyndun.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk Sigurjón M. Egilsson, Kristínu Þorsteinsdóttur og Pál Magnússon á fundi til sín.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fékk Sigurjón M. Egilsson, Kristínu Þor­steins­dóttur og Pál Magn­ús­son á fundi til sín.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hitti þáver­andi útvarps­stjóra RÚV, frétta­stjóra 365 og rit­stjóra 365 á fundum á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Á fundum með útvarps­stjóra og frétta­stjóra 365 viðr­aði Sig­mundur Davíð áhyggjur sínar af nei­kvæðri umfjöllun miðl­anna í sinn garð. Rit­stjóri 365 seg­ist ekki hafa rætt frétta­flutn­ing við þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Fregnir af ófag­legum sam­skiptum þeirra sé ímyndun.

Sigmundur flutti leiðara eftir fund

Þáver­andi frétta­stjóri 365, Sigurjón M. Egilsson, SME, var boð­aður til Sig­mundar í stjórn­ar­ráðið vegna fréttaum­fjöll­unar. Sigurjón tal­aði um fund­inn í leið­ara sínum í útvarps­þætt­inum Sprengisandi um síð­ustu helgi. Á fund­inum sýndi Sig­mundur Sig­ur­jóni grein­ingu á gagn­rýni frétta­stjór­ans í skoð­anapistlum sínum og sam­kvæmt henni hafi hann oft­ast gagn­rýnt Fram­sókn­ar­flokk­inn. Tveimur mán­uðum síðar var Sigurjón ekki lengur frétta­stjóri 365.

Í maí 2015 fékk Sig­mundur svo að lesa leiðar­ann í Sprengisandi hjá Sig­ur­jóni. Í kynn­ing­unni á vef þátt­ar­ins segir: „Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra flutti inn­gangs­orð þessa þáttar af til­efni tveggja ára afmæli rík­is­stjórnar hans. Hann sagði meðal ann­ars, að mörg til­efni séu til bjart­sýni," skrifar Sigurjón.

Kristín segir fregnir af ófaglegum samskiptum „ímyndun"

Stundin greinir frá því í blaði sínu í dag að Kristín Þor­steins­dóttir, aðal­rit­stjóri 365, hafi talað við Sigurjón nokkru áður en hann hitti Sigmund Davíð. Þar segir að í sam­tal­inu hafi Kristín gagn­rýnt Sigurjón fyrir að vera „óhóf­lega nei­kvæður” í garð rík­is­stjórn­ar­innar. Stundin segir Kristínu hafa hitt Sigmund á fundi þar sem umfjall­anir um hann og rík­is­stjórn hans voru til umræðu. Kristín stað­festir við Kjarnann að hún hafi fundað með þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Í skrif­legu svari sínu til Kjarnans vísar Kristín því á bug að hafa rætt frétta­flutn­ing við Sigmund Davíð. Hún seg­ist hafa hitt hann skömmu eftir að hún sett­ist í rit­stjóra­stól, en frétta­flutn­ingur hafi ekki verið ræddur á þeim fundi. Þá segir hún:

„Hvorki nafn Sig­ur­jóns Magnúsar Egils­sonar né ann­arra starfs­manna á rit­stjórn 365 bar á góma. Mér finnst mjög lík­legt að ég hafi sagt Sig­ur­jóni frá fund­inum án þess að ég muni það nákvæm­lega."

Spurð hvort hún hafi gagn­rýnt Sigurjón fyrir að hafa verið „óhóf­lega nei­kvæður" í garð rík­is­stjórn­ar­innar, segir Kristín:

„Nei. Hug­myndir sem fram hafa komið í dag um að ég eigi eða hafi átt í ófag­legum sam­skiptum við fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra eru ímyndun."

Útvarpsstjóri kallaður á teppið

Stundin greinir einnig frá því að sum­arið 2013, eftir að rík­is­stjórnin var mynduð, hafi Sig­mundur, þá for­sæt­is­ráð­herra, boðað Pál Magn­ús­son, þáver­andi útvarps­stjóra, á fund í stjórn­ar­ráð­inu þar sem hann sýndi honum þrjár möppur með úrklippum og afritum af gagn­rýni RÚV á Fram­sókn­ar­flokk­inn. Í Stund­inni kemur fram að möpp­urnar hafi talið nokkur hund­ruð blað­síður. Sig­mundur vitn­aði líka í skoð­anapistla ónafn­greinds starfs­manns RÚV þar sem hann gagn­rýndi flokk­inn. Páll stað­festir við Stundina að fund­ur­inn hafi átt sér stað. Hann hætti sem útvarps­stjóri nokkrum mán­uðum síðar.

Magnús Geir Þórð­ar­son, núver­andi útvarps­stjóri, stað­festir einnig að honum hafi borist „ábend­ingar“ og „athuga­semdir“ frá vald­höfum og full­trúum þeirra. Hann vill ekki svara hvort þær hafi farið fram á fundum með for­sæt­is­ráð­herra. Í sam­tali við RÚV stað­festir hann að hann hafi gert athuga­semdir við vald­hafa þegar þeir koma með óvið­geig­andi athuga­semdir varð­andi frétta­flutn­ing RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár