Vilja að ESB verði „sveigjanlegri“ í viðræðunum

Bresk stjórn­völd vilja að ESB verði lin­ari í afstöðu sinni til Brexit.

David Davis og Michel Barnier mættust í dag til þess að halda Brexit-viðræðunum áfram.
David Davis og Michel Barnier mætt­ust í dag til þess að halda Brexit-við­ræð­unum áfram. Mynd: EPA

Bresk stjórn­völd hafa óskað eftir því að full­trúar Evr­ópu­sam­bands­ins í Brexit-við­ræð­unum svoköll­uðu, um það hvernig Bretland mun slíta tengslin við ESB, nálgist við­ræð­urnar með opn­ari huga en áður.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyti Bret­lands.

Samn­inga­við­ræð­urnar um Brexit hófust aftur í dag með fundi Brexit-ráð­herr­ans David Davis fyrir Bretland og Michel Barnier fyrir Evr­ópu­sam­bandið. Við­ræð­urnar í þess­ari lotu samn­ing­anna verða að öllum lík­indum tækni­legs eðlis þar sem grunn­ur­inn að næstu samn­inga­lotu í sept­em­ber verður lagður.

„Nú verða báðir aðilar samn­ing­anna að vera sveigj­an­legir og til­búnir til mála­miðl­ana í þeim þáttum sem ágrein­ingur ríkir um,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Eins og ESB hefur sagt þá tifar klukkan og hvor­ugur aðil­inn má draga lapp­irnar.“

[adspot]

Vilja áframhaldandi aðgang að sameiginlegum markaði

Verka­manna­flokk­ur­inn í Bret­landi hefur boðað miklar breyt­ingar á opin­berri afstöðu flokks­ins til Brexit og seg­ist nú styðja áfram­hald­andi aðgang að sam­eig­in­legum mark­aði ESB og að áfram verði opið fyrir flæði fólks um landa­mærin. Frá þessu er greint í frétt á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian.

Þessi stefnu­breyt­ing skilur afstöðu Verka­manna­flokks­ins frá Íhalds­flokknum í fyrsta sinn síðan þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan um áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB sum­arið 2016.

Bretland mun ganga úr ESB 19. mars 2019 og eftir það vill Verka­manna­flokk­ur­inn að Bretar hafi aðgang að þessum tveimur stoðum Evr­ópu­sam­bands­ins af fjórum. Það yrði í reynd ekki ósvip­aður aðgangur og Ísland hefur gagn­vart ESB í gegnum EES-samn­ing­inn. Gegn því að fá aðgang að gæðum Evr­ópu­sam­vinn­unnar þarf Ísland að inn­leiða lög og reglu­gerðir sem sam­þykktar eru í Brussel.

Verka­manna­flokk­ur­inn vill með þess­ari stefnu­breyt­ingu verða sá flokkur sem styður „mjúka útgöngu“ (það sem kallað hefur verið soft Brexit á ensku). Ef flokk­ur­inn færi með stjórn Bret­lands yrði Bretland áfram aðili að sam­eig­in­legum mark­aði ESB og að tolla­banda­lag­inu, í tak­mark­aðan tíma; Hugs­an­lega yrði sá tími tvö til fjögur ár eftir 2019.

Þá mundi flokk­ur­inn vilja halda því opnu að Bretland yrði áfram aðili að sam­eig­in­lega mark­að­inum að þessu umbreyt­ing­ar­tíma­bili loknu, ef það tæk­ist að sann­færa ESB um að sam­þykkja sér­stakan samn­ing um inn­flytj­endur og reglur um frjálst flæði fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár