Flugferðum til og frá landinu fer fækkandi og framhaldið er óljóst

Ákvarð­anir um flug­á­ætlun Icelandair eru teknar dag frá degi og ekki er hægt að segja til um það í dag hvaða flug verða flogin næstu daga. Samkvæmt vef Kefla­vík­ur­flug­vallar verður ein­ungis flogið þaðan til London og Boston á morgun.

Það er lítið um að vera á Keflavíkurflugvelli þessa dagana.
Það er lítið um að vera á Kefla­vík­ur­flug­velli þessa dag­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt upp­lýs­ingum um brott­farir á vef Kefla­vík­ur­flug­vallar munu ein­ungis þrjár flug­vélar halda út í heim á morgun, fimmtu­dag. Öllum öðrum flug­ferðum hefur verið aflýst.

Hjá Icelandair eru ákvarð­anir um flug­á­ætl­un­ina teknar dag frá degi og „það liggur ekki ljóst fyrir núna hvaða flug verða flogin næstu daga,“ sam­kvæmt svari Ásdísar Ýrar Pét­urs­dóttur upp­lýs­inga­full­trúa flug­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Ásdís Ýr segir áreið­an­leg­ustu upp­lýs­ing­arnar um flug­á­ætl­un­ina að finna á vef Icelandair, en breyt­ingar geti því miður átt sér stað með mjög skömmum fyr­ir­vara. Hún segir að flug­fé­lagið leggi sig fram við að hafa sam­band við þá far­þega sem verða fyrir áhrifum af breyt­ingum um leið og ákvarð­anir liggja fyrir.

Í dag flaug Icelandair ein­ungis til London og Boston, auk þess sem flug­vél sneri til baka frá Toronto í Kanada. Þetta eru ein­ungis 11% af venju­legri áætlun félags­ins. Engin flug eru þannig á áætlun til og frá meg­in­landi Evrópu, en flogið hefur verið til og frá Amster­dam und­an­farna daga.

Flug­ferðum til og frá Íslandi hefur farið fækk­andi dag frá degi og útlit er fyrir að það gæti raun­gerst, sem utan­rík­is­ráðu­neytið var­aði Íslend­inga erlendis við á dög­unum, að flug­sam­göngur til og frá land­inu legg­ist af fyrir mán­aða­mót. Utan­rík­is­ráðu­neytið ítrek­aði þessi skila­boð til Íslend­inga á erlendri grundu í dag.

Tvær til London og ein til Boston

Í fyrra­málið fer, sam­kvæmt áætlun á vef Kefla­vík­ur­flug­vallar, eitt flug Icelandair til Heathrow-flug­vallar í London að morgni. Í hádeg­inu fer svo vél á vegum British Airways sömu leið og síð­degis er flug Icelandair til Boston á áætlun.

Þar með er það upp­talið og eru brott­farir á áætlun frá Kefla­vík­ur­flug­velli því ein­ungis tveimur fleiri en brott­far­irnar sem áætl­aðar eru frá flug­vell­inum á Vopna­firði á morgun, eins og vopn­firski hag­fræð­ing­ur­inn Konráð S. Guð­jóns­son bendir á.

Æ erfiðara að finna greiða leið heim

Margir Íslend­ingar eru þó enn staddir erlendis, alls að minnsta kosti 4.500 manns sem hafa skráð sig í gagna­grunn borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Borg­ara­þjón­ustan svar­aði 900 erindum frá fólki sem statt er erlendis dag­ana 20.-23. mars og eru fyr­ir­spurn­irnar að verða flókn­ari viður­eignar, sam­kvæmt því sem fram kom í stöðu­skýrslu almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í gær.

„Töluvert hefur borið á því að Íslend­ingar eigi í erf­ið­leikum með að finna greiða leið heim vegna landamæra­lok­ana og hertra skil­yrða fyrir milli­lend­ingum,“ sagði þar, en unnið er með hinum Norð­ur­lönd­unum við að fylgj­ast með flug­fram­boði og kort­leggja hvar Norð­ur­landa­búar eru niður komnir, „sem gæti þurft að sækja ef þeir verða alveg inn­lyksa.“

Af þeim um það bil 4.500 Íslend­ingum í grunni borg­ara­þjón­ust­unnar sem enn eru erlendis eru tæp­lega þús­und manns með áætl­aða heim­för fyrir mán­aða­mót, um þús­und manns með áætl­aða heim­för á næstu tveimur mán­uðum en um 2.500 manns ekki með áætl­aða heim­för, sem bendir til þess að þessi hópur dvelji lang­dvölum erlendis.

Margir enn staddir á Spáni

Samkvæmt því sem fram kom í stöðu­skýrsl­unni í gær eru lang­flestir Íslend­ingar erlendis staddir á Spáni, enn um 1.500 manns, sam­kvæmt grunni borg­ara­þjón­ust­unnar, en þó er tekið fram að ein­hverjir þeirra gætu hafa flýtt heim­för án þess að láta borg­ara­þjón­ust­una vita.

Icelandair til­kynnti síð­degis í dag að flug­ferð yrði farin frá Alicante á Spáni á föstu­dag. Ásdís Ýr segir að eft­ir­spurnin eftir flug­inu sé góð, en tómri vél verður flogið út og far­þegar ferjaðir til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár