Úkraína – hin sviðna jörð Pútíns

Hálft ár er í dag liðið frá innrás Rússa, sem hafa ráðist á almenna borgara og framið stríðs­glæpi, sprengt sjúkrahús, skóla og menningar­verðmæti, auk þess sem rússneskir hermenn ræna og rupla. „Ætlum að koma Zelenský frá,“ segir Sergei Lavrov. Lítil von er um frið.

Pútín og rússneski herinn skilur eftir sig slóð eyðileggingar í Úkraínu
Pútín og rúss­neski her­inn skilur eftir sig slóð eyði­legg­ingar í Úkraínu Á mynd­inni flýr maður með aleigu sína eftir árásir Rússa á borg­ina Kharkív, í mars fyrr á þessu ári. Þúsundir manna hafa fallið i inn­rás Rússa, bæði almennir borg­arar og her­menn. Lítil von er um vopna­hlé og langt á milli aðila. Mynd: afp

Innrásar­stríð Vladimírs Pútíns inn í Úkraínu hefur nú staðið í hálft ár. Það hófst þann 24. febrúar síðastliðinn þegar hann skipaði her sínum að ráðast inn í eitt stærsta ríki Evrópu, sem bæði er sjálfstætt og fullvalda. Á þeim tíma hafa herir Rússlands valdið gríðarlegri eyði­leggingu, sem líkja má við að risastór skemmdar­vargur gangi laus í landinu.

Rússneskir hermenn hafa farið um rænandi, ruplandi og nauðgandi, enda til símtöl og önnur samskipti þar sem þeir spjalla við ættingja sína til að fá „óskalista“ yfir muni sem þeir eiga að stela og koma með heim, en þessu hefur til dæmis The Moscow Times sagt frá.

Mannúðar­samtök á borð við Amnesty International draga upp mjög dökka mynd af ástandinu í Rússlandi, þar sem í valdatíð Pútíns er búið að þjarma skipulega að almenningi, persónu­frelsi hans, frjálsum fjöl­miðlum, félaga­samtökum, sem og stjórnar­andstöðunni, sem nánast hefur verið múlbundin. Stjórnar­andstæðingar hafa flúið land, …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár