Er hnattvæðingin að breyta stjórnmálunum og auka lýðræði?

Aukin hnatt­væð­ing reynir á full­veldi ríkja en hún skapar um leið ákveðið reglu­verk sem ríkin vilja gjarnan virða og laga sig að. Það áhuga­verða er síðan hvernig fólk getur nýtt sér hnatt­væð­ing­una til að skapa sér nýjan grund­völl félags- og borg­ara­legra rétt­inda sem ekki eru bundin við þjóð­ríkið sjálft heldur eiga sér óstað­bundna upp­sprettu. Þessar breyttu for­sendur gætu hugs­an­lega átt sinn þátt í að breyta stjórn­mál­unum var­an­lega.

Ekki er víst að fólk átti sig alveg á hvað verið er að tala um með hnatt­væð­ingu enda hug­takið gríð­ar­lega marg­brotið og teygj­an­legt – og hlutir eins og óheft heims­við­skipti og útbreiðsla inter­nets­ins segja ekki nema hálfa sög­una. Í ein­föld­uðu máli má segja að hnatt­væð­ing sé það þegar ákveðið fyr­ir­komu­lag breið­ist um heim allan og fer að stjórna því hvernig ég og þú högum okkar málum — hvort sem okkur líkar það betur eða verr — með beinum hætti eða í gegnum það þjóð­ríki sem við til­heyrum.

Áhrif hnattvæðingar

Alþjóða­lög um grund­vallar mann­rétt­indi, sem hin full­valda ríki hafa all­flest sam­þykkt og inn­leitt, verða að telj­ast gott dæmi um jákvæðar hliðar hnatt­væð­ingar. Þar hafa ein­stak­lingar öðl­ast æ meiri alþjóð­legan lög­form­legan rétt. M.a. eru nú til yfir­þjóð­legir dóm­stólar eins og Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu þar sem venju­legt fólk getur leitað réttar síns gagn­vart sínu heima­ríki telji það á sér brotið. Að sama skapi er grannt fylgst með því að ríki upp­fylli þá mann­rétt­inda­sátt­mála sem þau hafa gerst aðilar að.


Jafn­framt geta ríki blandað sér í inn­an­rík­is­mál ann­ars ríkis og ber jafn­vel að gera svo ef gróf­lega er farið gegn þeim skyldum að vernda borg­ar­ana, t.a.m. með þjóð­ar­morðum og stríðs­glæpum. Í slíkum til­fellum dugar full­veldið ekki sem vörn gegn utan­að­kom­andi afskiptum enda er það í raun ekki ein­hliða og ber einnig í sér til­teknar skyldur.


Eðli hnatt­væð­ingar er þó þannig að hún finnur sér gjarnan leið inn í sam­fé­lagið utan form­legra leiða, án þess að fram hafi farið mikil umræða um það. Stundum er það vegna ríkra við­skipta­hags­muna en einnig ýmiss konar þrýst­ings og áhrifa frá alþjóð­legri starf­semi á öllum sviðum mann­lífs­ins. Má nefna alþjóð­lega staðla um háskóla­menntun, sam­starf dóm­ara á heims­vísu sem hefur áhrif á dóm­stóla eða við­mið um aðbúnað starfs­fólks alþjóð­legra fyr­ir­tækja.


Ákveðnar hliðar hnatt­væð­ingar verða að telj­ast nei­kvæðar því fjöl­þjóða­fyr­ir­tæki, auð­hringir og fjár­mála­veldi steypa gjarnan hlut­ina í sama mótið í krafti auð­magns. Stað­bundin atvinnu­starf­semi stenst ekki flóð ódýrrar fram­leiðslu og gam­al­gróin þjóð­leg ein­kenni þurrkast út.


Jafn­framt er ljóst að þarna er sótt að hinu full­valda ríki sem sér sig knúið til að gefa eftir full­veldið til að geta tekið þátt í hinu alþjóð­lega kerfi—stundum með þeim afleið­ingum að ein­stak­lingar glata grund­vallar mann­rétt­indum og lýð­ræðið fer veg allrar ver­aldar. Dæmi um þetta er ríki sem sér í gegnum fingur sér með brot á lögum um aðbúnað og kjör verka­fólks, til að tryggja starf­semi alþjóð­legs stór­fyr­ir­tækis í land­inu.

[caption id="attachment_34425" align="alignnone" width="548"] Mynd: Flickr.com[/caption]

Aftenging ríkisins – ný uppspretta lýðræðis og mannréttinda?


Alþjóða­kerfið hefur lengst af mið­ast við hið full­valda ríki og sam­skipti þeirra á milli – og rétt­indi og skyldur fólks hafa þá að mestu verið bundin við það þjóð­ríki sem það til­heyrir. Þar er víða pottur brot­inn eins og gengur, lýð­ræðið jafn­vel fótum troðið. En ekki fer hver sem er með mál fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn og Banda­ríkin ráð­ast ekki inn í landið þitt, til að koma spilltum stjórn­völdum frá, nema það þjóni brýnum hags­munum þeirra.


Þá komum við aftur að hnatt­væð­ing­unni því hún hefur einnig fært ein­stak­lingum (og hópum) ýmsar aðrar leiðir til að tryggja lýð­ræðis- og borg­ara­legan rétt sinn og til­veru, með því aðskilja póli­tíska aðild sína frá hinu full­valda ríki sem það ætti að til­heyra sam­kvæmt öllum kokka­bókum.


Þannig má segja að þegar fólk metur það svo að ríkið full­nægi ekki þeim kröfum sem gera má til þess, geti það nú orðið ein­hvers konar nútíma­heims­borg­arar með aðild að ýmiss konar félags­skap á heims­vísu án nokk­urrar mið­lægrar stjórn­unar. Sótt jákvæð áhrif og haft áhrif, þvert á landa­mæri, aðsetur og rík­is­borg­ara­rétt út um allan heim.


Alter Globalisation Movement, er ekki nein ákveðin hreyf­ing heldur sam­nefn­ari fyrir fjölda ólíkra hreyf­inga þar sem grunn­tónn­inn gæti þó verið and­staða við hina efna­hags­legu hnatt­væð­ingu. Þar kemur meðal ann­ars fram hug­takið translocal citizenship sem gengur út á íbúa­lýð­ræði á heims­vísu, fram­hjá hinu full­valda ríki, því það er talið vera und­ir­okað af hinu alþjóð­lega auð­magni—sem valdi því að lýð­ræði sé í raun bara að nafn­inu til.


Hugs­an­lega má skoða síð­ustu atburði á Grikk­landi í þessu ljósi því sumir hafa jafn­vel gefið í skyn að Íslend­ingar hafi gefið Grikkjum tón­inn eftir fjár­mála­hrunið hér árið 2008. Þá er gjarnan vísað til þess að gríska þjóðin geri eins og Íslend­ingar, sem buðu hinu alþjóð­lega banka­valdi birg­inn, þjóðin hafi neitað að borga skuldir bank­anna, keyrt þá í þrot og fang­elsað „bankster­ana“ og jafn­vel stjórn­mála­menn­ina.


Mik­il­vægt er þó að þarna skiptir engu máli hvað er satt og rétt, orðróm­ur­inn eða mýtan lifir góðu lífi sem nægir fólki alveg til að blása því and­ann í brjóst.

[caption id="attachment_34424" align="alignnone" width="522"] Mynd: Flickr.com[/caption]

Þjóðríkið varið - en hvers virði er það ef lýðræði þrífst þar ekki?


Af hverju skiptir þetta máli? – Jú, trú fólks á virkni hefð­bund­inna stjórn­mála hefur farið minnk­andi sam­fara því að traust til stjórn­mála­manna og alþingis hefur dalað veru­lega. Þó vissu­lega hafi fylgi flokka sveifl­ast í gegnum tíð­ina og ný fram­boð skotið upp koll­inum, sem sópað hafa til sín tíma­bundnu fylgi, má full­yrða að breyt­ing sé að verða á.


Und­an­farið hefur orðið mikil fylg­is­sveifla til Pírata – og án þess að hér sé verið að spyrða þá við ein­hverja sér­staka alheims­hreyf­ingu má segja að þeir séu ein­hverju leyti ful­trúar þess­arar alþjóð­legu þró­unar sem nefnd hefur verið. Þetta er hreyf­ing sem kallar eftir opinni og gegn­særri stjórn­sýslu, með virkri þátt­töku fólks, en ekki ein­hverju „punt-lýð­ræði“ á fjög­urra ára fresti.


Þær (bylt­ing­ar­kenndu) hug­myndir sem hér hafa verið nefndar geta auð­vitað verið ógn­andi gagn­vart þjóð­rík­inu. Má því búast við and­stöðu sem upp­hefur þjóð­leg ein­kenni, trú eða hvað það er sem styrkir hin þjóð­legu gildi og þá hugs­an­lega þjóð­ríkið um leið. Gjarnan er vísað til valda­mik­illa óvina og óþekktra afla og fólk leit­ast þannig við að byggja upp sína eigin sálar- menn­ingar- og sögu­legu sjálfs­mynd, sam­fé­lag þar sem sam­staða ríkir um hvað sé gott líf.


Í því sam­hengi er áhuga­vert að skoða við­brögð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra sem hefur gjarnan vísað til mik­il­vægis almennrar sáttar í sam­fé­lag­inu. Það eru að ein­hverju leyti skilj­an­leg við­brögð og vissu­lega er það ekk­ert góð til­hugsun fyrir marga að þjóðin missi á ein­hvern hátt þá eig­in­leika sem halda henni saman.


Sam­heldni þjóð­ar­innar er þarna stillt upp sem vörn gagn­vart hættu­legum hug­myndum Pírata – sem taldar eru ógna góðum gildum sem fólk á að hafa sam­mælst um, jafn­vel lýð­ræð­inu er ógnað. Þarna vakna ótal spurn­ingar, hver eru þessi gildi, hvers vegna eru breyt­ingar eða bylt­ingar slæmar, hvers vegna ættu þær að ógna lýð­ræð­inu?


Þarna er tek­ist á um grund­vall­ar­at­riði því hvers virði er þjóð­ríki þar sem lýð­ræði þrífst ekki? Hér getur verið erfitt að átta sig – sem er kannski einmitt lyk­il­at­riðið – að hnatt­væð­ingin geri okkur erf­ið­ara með að draga póli­tískar átaka­línur en áður og hún riðli því valda­skipu­lagi sem hefur við­geng­ist.


Þannig getur hin hug­mynda­lega hnatt­væð­ing einmitt gefið fólki hug­myndir, rödd og far­veg til að hrinda þeim í fram­kvæmd en jafn­framt veitt þeirri við­skipta­legu hnatt­væð­ingu sem sækir að þjóð­rík­inu – og lýð­ræð­inu – aðhald.


Gott er að muna að lýð­ræði er ekki ein­hver fasti, nafn á ein­hverju hátíð­legu fyr­ir­bæri, heldur eitt­hvað sem þarf að ástunda. Að lýð­ræði má ekki bara vera skraut­fjöður í hatt hins ríkj­andi kerfis heldur ætti það að vera lif­andi far­vegur fyrir nýjar hug­myndir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár