Miðflokkurinn bætir við sig fylgi – Píratar tapa fylgi

Í nýrri könnun MMR mælist fylgi Pírata 9,8 pró­sent og minnkar um rúm­lega þrjú og hálft pró­sentu­stig á milli kann­ana. Aftur á móti hækkar fylgi Mið­flokks­ins um rúm­lega tvö og hálft pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu MMR og mælist nú 11,8 pró­sent.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Mið­flokks­ins mælist nú 11,8 pró­sent og hækkar um rúm­lega tvö og hálft pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu MMR. Fylgi Pírata minnkar aftur á móti um rúm­lega þrjú og hálft pró­sentu­stig og mælist fylgi þeirra nú rétt undir 10 pró­sentum. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á fylgi stjórn­mála­flokka og stuðn­ing við rík­is­stjórn. Könnunin var fram­kvæmd 14. til 16. maí 2019 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 978 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

[links] Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er nær óbreyttur frá síð­ustu könnun og mælist nú 40,9 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist sem fyrr með mest fylgi stjórn­mála­flokka á Alþingi eða 21,3 pró­sent en fylgi þeirra hefur auk­ist um rúmt pró­sentu­stig frá byrjun mán­að­ar­ins. Fylgi Vinstri grænna mælist 12,2 pró­sent og fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist nú 11,6 pró­sent. [adspot]

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nær óbreytt frá síð­ustu könnun og mælist nú 13,9 pró­sent. Fylgi Við­reisnar mælist 8,4 pró­sent, fylgi Flokks fólks­ins mælist 6,4 pró­sent og fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands mælist 3,2 pró­sent. Fylgi ann­arra flokka mælist 1,4 pró­sent sam­an­lagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár