Veröldin okkar færð í stafrænan þrívíddarbúning

Nýtt Google Earth er mun öfl­ugra en áður.

Ef Google Maps er tól til að skipu­leggja ferða­lög, þá er Google Earth tól til að kynn­ast áfanga­staðnum.

Banda­ríska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Google kynnti end­ur­bætt ver­ald­ar­for­rit sitt á dög­unum. Nýja for­ritið er tölu­vert öfl­ugra en það sem fyrst var gefið út árið 2001 en um er að ræða níundu útgáfu staf­ræna hnatt­lík­ans­ins.

Með nýja hnatt­lík­an­inu má ferð­ast til helstu borga og ferða­manna­staða á vest­ur­löndum og virða fyrir sér stræti og bygg­ingar – eða heilu fjall­dal­ina – í þrí­vídd.

[adspot]

Veröldin okkar sem spegl­ast í þessu nýja hnatt­lík­ani er furðu­lega skökk og sveigð til þess að hún passi inn í staf­rænan heim Google. Og eftir því sem maður leið­ist lengra frá fjöl­förn­ustu stöðum birt­ist ver­öldin flöt eins og búið sé að varpa gervi­tungla­mynd á yfir­borð sýnd­ar­ver­ald­ar­innar. Kannski af því að það er nákvæm­lega það sem hefur gerst.

Upp úr mið­borg Reykja­víkur rís þess vegna ekk­ert hús hærra en yfir­borð Tjarn­ar­innar. Og Reykja­vík er ekki eina flata höf­uð­borgin í sýnd­ar­ver­öld­inni. Moskva hefur aldrei legið jafn flöt á Jörðinni og í lík­ani banda­ríska tölvuris­ans.

Magnaðar nýjungar

Nýja hnatt­líkanið frá Google býður þó upp á spenn­andi tól fyrir almenn­ing til þess að fræð­ast um heim­inn. Hægt er að lenda á áfanga­stöðum af handa­hófi og fræð­ast þannig um furðu­lega kima sem merktir hafa verið á kort Google.

Google bregður sér einnig hlut­verk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækis í nýju upp­færsl­unni. Google Earth-teymið seg­ist ætla að bæta við nýjum leið­sagn­ar­ferðum um heim­inn í hverri viku.

Enn sem komið er þá virkar nýja Google Earth aðeins í Chrome-var­anum í borð- og far­tölvum og ein­ungis Android-snjall­tæki geta sótt sér­stakt app. Kannaðu nýja Google Earh hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár