Hlutabréf í Icelandair í frjálsu falli – hafa lækkað um 20 prósent í dag

Hluta­bréf í Icelandair Group hafa hríð­fallið í verði í morgun í kjöl­far þess að félagið birti afkomu­við­vörun í morgun. Þegar þetta er skrifað hafa bréf í Icelandair lækkað um rúm­lega 20 pró­sent það sem af er degi. Hluta­bréfa­verð í félag­inu hefur lækkað um rúm­lega helm­ing frá því í apríl 2016, eða 54,4 pró­sent.

Icelandair Group birti í morgun til­kynn­ingu um að félagið muni birta afkomu fjórða árs­fjórð­ungs 2016 eftir lokum mark­aða þann 7. febr­úar næst­kom­andi. Í til­kynn­ing­unni segir að að und­an­förnu hafi orðið breyt­ing á bók­un­ar­flæði Icelandair til hins verra. „Bókanir eru hæg­ari en gert var ráð fyrir og með­al­far­gjöld á mörk­uðum hafa lækkað umfram spár. Þessa þróun má einkum rekja til auk­innar sam­keppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breyt­inga í alþjóða­stjórn­málum hafi áhrif á eft­ir­spurn. Að auki hafa gjald­miðlar þró­ast á óhag­stæðan máta miðað við fyrra ár, olíu­verð hefur hækkað og verk­fall í sjáv­ar­út­vegi hefur nei­kvæð áhrif á frakt­starf­semi félags­ins. Á móti kemur að horfur í hót­el­starf­semi Icelandair Group eru góðar.

Miðað við núver­andi for­sendur gerir félagið ráð fyrir að EBITDA árs­ins 2017 verði 140-150 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Gert er ráð fyrir að verð á þotu­elds­neyti (án til­lits til varna) verði 540 USD/tonn að með­al­tali, gengi EUR gagn­vart USD verði að með­al­tali 1,07 og geng­is­vísi­tala íslensku krón­unnar verði 164 að með­al­tali á árinu 2017.

Þegar hefur verið gripið til ýmissa aðgerða í rekstri sam­stæð­unnar sem gert er ráð fyrir að skili hag­ræð­ingu og auknum tekjum. Áfram er gert ráð fyrir hóf­legum innri vexti á árinu, og að mati stjórn­enda félags­ins eru lang­tíma­horfur þess góðar.

Í takt við stefnu félags­ins var efna­hags­reikn­ingur félags­ins sterkur í árs­lok 2016. Samkvæmt drögum að árs­reikn­ingi var eig­in­fjár­hlut­fall ríf­lega 40% og hand­bært fé og mark­aðs­verð­bréf um 250 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Félagið er því vel í stakk búið til að takast á við þær sveiflur sem eiga sér stað í rekstr­ar­um­hverfi þess.“

Gengi allra hluta­bréfa sem búið er að eiga við­skipti með í dag hafa lækkað, utan bréfa í Nýherja sem birti sterkt árs­upp­gjör í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár