Eldri og tekjulægri kjósendur flýja Sjálfstæðisflokk og fara til Miðflokks

Mið­flokk­ur­inn mælist stærsti flokk­ur­inn á Suð­ur­landi og Aust­ur­landi en er með minnst fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem tveir af hverjum þremur kjós­endum búa.

Eldri og tekju­lægri kjós­endur og kjós­endur á Suð­ur­landi virð­ast vera þeir hópar sem eru að yfir­gefa Sjálf­stæð­is­flokk­inn og lýsa yfir stuðn­ingi við Mið­flokk­inn. Þetta má sjá í ítar­legri grein­ingu á fylgi flokkar úr síð­ustu könnun MMR sem tekin hefur verið saman fyrir Kjarnann.

Nýjasta könnun fyr­ir­tæk­is­ins sýndi heild­ar­fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í 19,0 pró­sentum, sem er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum MMR frá upp­hafi, og Mið­flokk­inn með 14,4 pró­sent fylgi, sem er það mesta sem hann hefur nokkru sinni mælst með hjá fyr­ir­tæk­inu.

Í könn­unum MMR í maí og júní, þar sem sam­an­lagður fjöldi svara var 1.914 og 1.529 tóku afstöðu, sögð­ust sam­an­lagt 26 pró­sent kjós­enda á Suð­ur­landi sem svör­uðu ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Í könnun MMR sem gerð var dag­anna 4. til 17. júlí, þar sem svar­endur voru 2.031 og 1.573 tóku afstöðu, mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þeim hluta lands­ins 18,4 pró­sent og hafði dreg­ist veru­lega saman á nokkrum vikum. Fylgi Mið­flokks­ins í lands­hlut­anum eykst hins vegar gríð­ar­lega og mælist flokk­ur­inn nú langstærstur innan þess. Í maí og júní sögð­ust alls 12,2 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa Mið­flokk­inn en í nýj­ustu könn­un­inni sögð­ust 28 pró­sent kjós­enda á Suð­ur­landi ætla að gera það.

Miðflokkurinn rýkur upp í vinsældum hjá eldri kjósendum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur sögu­lega verið mjög sterkur á meðal eldri kjós­enda og í maí og júní mæld­ist hann með mest fylgi allra flokka hjá kjós­endum 60 ára og eldri, eða 21,1 pró­sent. Stuðn­ingur hans hjá þeim ald­urs­hópi hefur hins vegar dalað mikið og í júlí mæld­ist hann 15,8 pró­sent.

Nú eru það Mið­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin sem njóta mestra vin­sælda hjá Íslend­ingum yfir 60 ára en báðir flokkar mæld­ust með 21,5 pró­sent fylgi í júlí. Það er mjög svipuð nið­ur­staða hjá Sam­fylk­ing­unni og síð­ustu kann­anir á undan sýndu en mik­illar aukn­ingar gætir hjá Mið­flokknum. Í maí og júní sögð­ust 12,2 pró­sent kjós­enda í ald­urs­hópnum 60 ára og eldri ætla að kjósa flokk­inn en í júlí var sú tala komin upp í 21,5 pró­sent, líkt og áður segir.

Fylgi Sjálfstæðisflokks hjá tekjulágum helmingast

Þeir flokkar sem höfð­uðu mest til tekju­lægstu hópa sam­fé­lags­ins, þeirra sem eru með 400 þús­und krónur eða minna á mán­uði í heim­il­is­tekjur, voru í maí og júní Píratar (22,1 pró­sent), Vinstri græn (18,5 pró­sent) og Sjálf­stæð­is­flokkur (15,3 pró­sent).

Á þessu hefur orðið mikil breyt­ing á. Píratar eru enn sterk­astir í tekju­lægsta hópnum (20,3 pró­sent) en Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn, sem sitja saman í rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum, hafa tapað miklu fylgi innan hans. Nú mælist stuðn­ingur við Vinstri græn á meðal þeirra sem eru með 400 þús­und krónur á mán­uði eða minna 11,1 pró­sent en stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn nán­ast helm­ing­ast og mælist nú 8,5 pró­sent. Af þeim flokkum sem eru á þingi mælist ein­ungis Framsókn (3,1 pró­sent) og Viðreisn (7,2 pró­sent) með minna fylgi í þessum tekju­hópi en Sjálf­stæð­is­flokkur. Ef ein­ungis hann myndi kjósa myndi Sós­í­alista­flokkur Íslands (9,2 pró­sent) einnig fá meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Mið­flokk­ur­inn, sem mæld­ist með 9,5 pró­sent fylgi í ald­urs­hópnum í maí og júní, mælist hins vegar nú næst stærstur innan hans með 16,6 pró­sent fylgi.

Það er einnig athygl­is­vert að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks eykst með hækk­andi tekjum, og er mest (26,3 pró­sent) á meðal þeirra kjós­enda þar sem heim­il­is­tekjur eru hærri en 1.200 þús­und krónur á mán­uði. Þróunin er þver­öfug hjá Mið­flokknum. Þar er fylgið mest hjá tekju­lægsta hópnum, en lækkar síðan jafnt og þétt eftir því sem tekjur aukast og er minnst hjá þeim sem eru með yfir 1.200 þús­und krónur á mán­uði, eða 8,9 pró­sent.

Heildarfylgi allra flokka samkvæmt könnun MMR sem gerð var 4. til 17. júlí:

  • Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 19,0 pró­sent
  • Píratar 14,9 pró­sent
  • Mið­flokkur 14,4 pró­sent
  • Sam­fylk­ingin 13,5 pró­sent
  • Vinstri græn 10,3 pró­sent
  • Viðreisn 9,7 pró­sent
  • Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 8,4 pró­sent
  • Flokkur fólks­ins 4,8 pró­sent
  • Sós­í­alista­flokkur Íslands 4,3 pró­sent

Viðreisn sterk á höfuðborgarsvæðinu

Mið­flokk­ur­inn bætti allra flokka mest við sig í heild­ar­fylgi milli mán­aða, eða 3,7 pró­sentu­stigum. Hann bætti við sig fylgi í öllum lands­hlutum og er nú stærsti flokkur lands­ins á bæði Suð­ur­landi (28 pró­sent) og Aust­ur­landi (26 pró­sent), sam­kvæmt mæl­ingum MMR.

Flokk­ur­inn er með minnst fylgi á því svæði þar sem flestir lands­menn búa, höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Alls eru tveir af hverjum þremur kjós­endum búsettir þar. Á svæð­inu er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sterkastur (19,0 pró­sent) og Píratar, sem mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins með 14,9 pró­sent, sækja þorra síns fylgis þangað (16,8 pró­sent). Mið­flokk­ur­inn mælist sjötti stærsti flokk­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með 10,8 pró­sent fylgi. Bæði Sam­fylk­ingin og Viðreisn mæl­ast með meira fylgi þar en á lands­vísu og í til­felli Við­reisnar munar umtals­verðu. Heild­ar­fylgi þess flokks mælist 9,4 pró­sent en ef kjós­endur höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins væru einir um að kjósa myndi það skila Viðreisn 12,4 pró­sent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár