Mynd: EPA

Vorið er komið víst á ný

Þeir belgja sig út, fullir tilhlökkunar. Ýfa svo á sér fjaðrirnar og syngja gleðibrag. Blómin stinga sér upp úr moldinni, springa út og svelgja í sig sólar­geislana. Vorið ber með sér væntingar og þrá.

Náttúran á norður­hveli jarðar er að vakna eftir vetrar­blund. Fjölskrúðug flóra milli fjalla og fjöru kastar gráleitum ham sínum og hjúpar lands­lagið líflegum litum. Fuglar sitja á greinum trjánna og syngja sinn fegursta söng.

Það er komið vor á ný.

Á hlaupum

Dhauladhar-fjall­garðurinn á Indlandi er hluti af Himalaya-fjöllunum. Þar er Hanuman Tibb hæsti tindurinn, tæplega 6.000 metra hár.

Í sólbaði

Tveir otrar njóta sólarinnar á grænu almennings­svæði í miðborg Mílan á Ítalíu. Þeir hættu sér þangað þar sem fáir menn voru á ferli.

Á vappi

Gæsahópur á vappi á þýska verndar­svæðinu Wagbachniederung. Svæðið er mikilvægt varpland fugla en þar koma þeir einnig við á leið til annarra varpsvæða í Evrópu.

Um sólina og vorið

Blábrystingur syngur hástöfum á fugla­verndar­svæðinu í Wagbachniederung. Blábrystingur er af þrastaætt og á því fjar­skylda ættingja hér á Íslandi.

Bleikur ofurmáni

Storkar spóka sig í skini bleiks ofurmána í Norður-Makedóníu. Árið 2020 er ríkt af ofurmánum og þetta er sá þriðji frá áramótum. Þá er tunglið nær jörðu en venjulega og virðist því stærra og bjartara.

Í blóma

Kirsuberja­trén í þýsku borginni Bonn standa nú í miklum blóma. Fegurðin er aðeins tíma­bundin því trén missa blóm sín á aðeins nokkrum dögum.

Stígur dans

Bandaríska ballerínan Abby Thomson dansar undir blóm­strandi kirsuberja­trjám í Washington-borg. Kirsuberja­trén eru myndræn með eindæmum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár