Guðni: Blessunarlega er vandi Íslendinga ekki eins ærinn og við blasti fyrir áttatíu árum

Forseti Íslands sendir öllu starfs­liði utan­rík­is­þjón­ustu Íslands heilla­óskir og þakkir fyrir far­sæl störf og giftu­drjúg í áranna rás. Utan­rík­is­þjón­ustan er átta­tíu ára í dag.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áttatíu ár eru liðin frá því að Íslend­ingar tóku með­ferð utan­rík­is­mála í eigin hendur og utan­rík­is­mála­deild Stjórn­ar­ráðs­ins var gerð að utan­rík­is­ráðu­neyti. Markar þessi tíma­punktur upp­haf íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unnar.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sendir utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra og starfs­liði utan­rík­is­þjón­ust­unnar heilla­óskir og þakkir fyrir far­sæl og giftu­drúg störf við til­efnið.

„Hart var í heimi fyrir réttum átta­tíu árum, styrj­öld í Evrópu og Danmörk her­numin þannig að okkur Íslend­ingum reynd­ist brýn nauð­syn að taka utan­rík­is­mál okkar taf­ar­laust í eigin hendur. Vissu­lega höfðum við átt okkar sendi­menn ytra fyrir þessi kafla­skil, gert okkar alþjóða­samn­inga og gætt okkar hags­muna. En til þessa dags, 10. apríl 1940, má með réttu rekja upp­haf íslenskrar utan­rík­is­þjón­ustu,“ skrifar hann.

Samkennd og samstaða mun reynast vel í baráttunni við veiruna

Æ síðan hafi full­trúar hennar, ráð­herrar, sendi­herrar og annað starfs­fólk, sinnt þörfum Íslands á alþjóða­vett­vangi. Og þar hafi við­fangs­efnin verið fjöl­þætt og af ólíkum toga. Megi þar nefna við­skipti og varnir lands­ins, land­helg­is­mál og þró­un­ar­sam­vinnu. Eins mik­il­væg hafi hún ætíð verið, þjón­usta við Íslend­inga utan land­stein­anna, ekki síst þegar fólk hafi ratað í vand­ræði og þurft aðstoð við lausn sinna mála.

„Dimmt var yfir þjóð­líf­inu 10. apríl 1940. Nú eru einnig blikur á lofti. Bless­un­ar­lega er vandi okkar ekki eins ærinn og við blasti þá, og átti eftir að versna enn frekar. Samkennd og sam­staða mun reyn­ast vel í bar­áttu okkar við veiruna skæðu sem nú herjar á lands­menn og aðra. Aðdá­un­ar­vert hefur verið að fylgj­ast með borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Starfs­lið hér heima og ytra hefur bjargað mörgum land­anum úr bráðum vand­ræðum eins og ótal dæmi sanna. Órækara dæmi um gildi utan­rík­is­þjón­ust­unnar er vand­fundið,“ stendur í bréfi for­set­ans.

Hægt er að lesa kveðju Guðna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár