Telja Marel verulega undirverðlagt á markaði

Grein­endur Lands­bank­ans telja verð­mið­ann á Marel á mark­aði vera alltof lágan. Rekstur félags­ins hefur gengið vel að und­an­förnu.

Stærsta félagið á íslenskum hluta­bréfar­mark­aði, sé horf til mark­aðsvirðis, er Marel. Það er nú 171 millj­arður íslenskra króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Keld­unnar. Í nýju verð­mati hag­ræði­deildar Lands­bank­ans kemur fram, að verð­mið­inn á félag­inu ætti að vera um 19,2 pró­sent hærri, eða tæp­lega 205 millj­arðar króna. Gengi bréfa félags­ins, eins og það var á mark­aði í lok dags í gær, var 238,5.

Tekjuvöxtur

Í verð­mat­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram fram að það sé mat Lands­bank­ans að gengið á bréfum félags­ins ætti að vera umtals­vert hærra en mark­að­ur­inn sýnir, þar sem rekst­ur­inn sé góður og staða verk­efna og pant­ana fyrir næsta ár sé góð. „Mikill drif­kraftur hefur verið í tekjum af vara­hlutum og við­gerðum (e. maintenance) á árinu 2016 og eru þær tekjur nú um 40% af heildar tekjum sam­stæð­unnar. Ný stór­verk­efni (e. greenfield) á fyrstu 9 mán­uðum árs­ins þró­uð­ust ágæt­lega í kjúklingi en voru lak­ari í kjöti og fiski. Hins vegar var við­snún­ingur í kjöti á Q3 ásamt því að stórum samn­ingi var landað á Q4 í fiski. Þessi þróun ásamt skrið­þunga í PMI vísi­tölum og jákvæð­ari tón stjórn­enda fyrir kom­andi miss­eri gerir það að verkum að 2017 ætti að vera gott ár fyrir Marel. Við gerum ráð fyrir 5,0% vexti tekna (pro forma 3,6%) og 14,6% leið­rétt EBIT, að mestu vegna aukn­ingar í sölu í stór­verk­efnum,“ segir í verð­mati Lands­bank­ans.

Hörð samkeppni

Í grein­ing­unni segir enn fremur að ytri vöxtur sé lík­legur, og jafn­vel nauð­syn­legur, í ljósi þess hvernig staðan hjá sam­keppn­is­að­ilum Marels hefur þró­ast. „Töluvert hefur verið um kaup og sam­ein­ingum hjá helstu sam­keppn­is­að­ilum Marels (t.d JBT og Middleby) og þró­unin í þá átt að alþjóð­legir fram­leið­endur í mat­væla­iðn­aði fækki. Að okkar mati er nauð­syn­legt að Marel taka þátt í þeirri þróun, þó kaup á öðrum fyr­ir­tækjum þurfa ekki að vera á sömu stærð­argráðu og MPS. Frekari kaup myndu lík­lega styðja Marel í þeim geirum sem þeir eru með minnsta (má jafn­vel orða versta) starf­semi, t.d. í áfram­vinnslu (e. further processing) og frum­vinnslu í fiski, þó ann­ars­konar stra­tegísk kaup eru ekki úti­lokuð,“ segir í verð­mat­inu.

Gott gengi

Efna­hagur Marels hefur styrkts nokkuð á und­an­förnu ári, en í lok þriðja fjórð­ungs á þessu ári námu heild­ar­eignir félags­ins tæp­lega 1,4 millj­örðum evra, eða sem nemur um 172 millj­örðum króna. Eigið fé félags­ins nam 505 millj­ónum evra á sama tíma, eða sem nemur um 62 millj­örðum króna.

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans á dög­unum, þá hefur mark­aðsvirði stærstu félag­anna í kaup­höll­inni, Marels, Össurar og Icelandair, lækkað umtals­vert upp á síðkastið. Vegur Icelandair er þar þyngst, en mark­aðsvirði þess hefur fallið um meira en 70 millj­arða á síð­ustu sex mán­uðum. Líklegt er að styrk­ing krón­unnar sé áhrifa­valdur í þess­ari þróun, enda efna­hagur fyrr­nefndra fyr­ir­tækja í erlendri mynt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár