Risarnir þrír lækka verulega

Þrátt fyrir að flestir hag­vísar séu jákvæðir á Íslandi þessa dag­ana þá hefur mark­aðsvirði stærstu félag­anna í kaup­höll­inni lækkað veru­lega að und­an­förnu.

Mark­aðsvirði þriggja stærstu fyr­ir­tækj­anna í kaup­höll Íslands, Marels, Össurar og Icelandair, hefur fallið um tugi millj­arða á síð­ustu mán­uðum. Frá því um mitt ár hefur sam­an­lagt mark­aðsvirði þess­ara félaga lækkað um 126 millj­arða króna. Mest er fallið hjá Icelandair, um 71 millj­arður, en mark­aðsvirði þess er nú 118 millj­arðar króna.

Össur, sem lækk­aði um 6,25 pró­sent í við­skiptum dags­ins í dag, hefur einnig lækkað mikið. Félagið er nú 166 millj­arða króna virði en hefur lækkað um 41 millj­arð frá því um mitt ár. Þá hefur virði Marels einnig lækkað. Lækkunin nemur um 14 millj­örðum króna. Fyr­ir­tækið er nú verð­mætasta félagið í kaup­höll­inni, og nemur mark­aðsvirði þess 172 millj­örðum króna.

Gera upp í erlendri mynt

Sam­an­lagt virði þess­ara félaga er 456 millj­arðar króna, miðað við loka­gengi dags­ins í dag. Eig­in­fjár­staða félag­anna er sterk, og rekstr­ar­tölur hafa verið ásætt­an­legar, sé mið tekið af til­kynn­ingum til kaup­hallar vegna upp­gjöra.

Eigið fé Icelandair nam 582 millj­ónum Banda­ríkja­dala, í lok sept­em­ber, eða sem nemur um 64 millj­örðum króna. Eigið fé Marels var á sama tíma 505 millj­ónir evra, eða sem nemur um 62 millj­örðum króna. Össur var með 465 millj­ónir Banda­ríkja­dala í eigið fé í lok sept­em­ber, eða sem nemur um 51 millj­arði króna.

Gengið styrkist og styrkist

Á þessum tíma sem félögin hafa lækkað umtals­vert hefur gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum styrkst veru­lega. Félögin eru öll með efna­hags­reikn­ing sinn í erlendum myntum, og því kemur styrk­ing krón­unnar illa við mark­aðsvirði félag­anna, mælt í krónum. Össur og Icelandair eru með efna­hags­reikn­ing í Banda­ríkja­dal en Marel í evrum.

Á einu ári hefur gengi krón­unnar gagn­vart evru og Banda­ríkja­dal styrkst veru­lega. Fyrir rúm­lega ári kost­aði Banda­ríkja­dalur 136 krónur en hann kostar nú ríf­lega 111 krónur. Evran kost­aði 150 krónur fyrir ári en kostar nú 123 krónur.

Þessi þrjú fyrr­nefndu félög mynda um helm­ing alls mark­aðsvirðis á skráðum mark­aði á Íslandi, og munar því tölu­vert um sveiflur þeirra upp og niður, fyrir eig­endur hluta­bréfa á íslenskum mark­aði. Stærstu eig­endur hluta­bréfa eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, en þeir eiga á bil­inu 40 til 50 pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum. Stærstu eig­endur Össurar eru þó danskir hlut­hafar, sem eiga meira en tvo þriðju af hluta­bréfum í félag­inu.

Eignaverð hækkar...en ekki hlutabréf

Flestar hag­spár gera ráð fyrir að hag­vöxtur hér á landi verði á bil­inu 4 til 5 pró­sent á þessu ári, og þá hefur fast­eigna­verð hækkað hratt að und­an­förnu og útlit fyrir að sú þróun haldi áfram. Á und­an­förnum þremur árum hefur fast­eigna­verð hækkað um meira en 30 pró­sent að með­al­tali, og gera spár ráð fyrir 20 til 30 pró­sent hækkun á næstu tveimur til þremur árum.

Á hluta­bréfa­mark­aði hefur reyndin verið önnur, eins og áður sagði, einkum og sér í lagi hjá þremur fyrr­nefndu félög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár