Vaxtamunaviðskiptin helminguðust í fyrra

Nýtt stjórn­tæki Seðla­bank­ans sem ætlað var að taka á vaxta­muna­við­skiptum virð­ist hafa svín­virkað. Kaup útlend­inga á rík­is­skulda­bréfum dróg­ust saman úr 54 í 29 millj­arða. Heild­ar­fjár­fest­ing erlendra aðila á Íslandi jókst samt sem áður í fyrra.

Alls keyptu erlendir aðilar eignir á Íslandi fyrir 79 millj­arða króna á síð­asta ári. Nýfjár­fest­ing í atvinnu­rekstri nam 30,2 millj­örðum króna og útlend­ingar keyptu rík­is­skulda­bréf fyrir 28,9 millj­arða króna. Fjár­fest­ing í skráðum hluta­bréfum nam 11,1 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í tölum um inn­flæði erlends gjald­eyris á grund­velli nýfjár­fest­ing­ar­heim­ildar sem Seðla­banki Íslands hefur tekið saman fyrir Kjarnann.

Nýfjár­fest­ing erlendra aðila jókst lít­il­lega á milli ára, en hún var 76,1 millj­arður króna árið 2015. Þá var langstærsti hluti hennar í íslenskum rík­is­skulda­bréfum, eða um 54 millj­arðar króna. Þær tölur gáfu skýrt til kynna að hin svoköll­uðu vaxta­muna­við­skipti voru hafin af mik­illi alvöru á ný. Nýju töl­urnar benda til þess að nýtt fjár­streym­is­tæki, sem Seðla­bank­inn kynnti til leiks í júní í fyrra til að draga úr vaxta­muna­við­skiptum, hafi virkað. Kaup erlendra aðila á íslenskum rík­is­skulda­bréfum dróg­ust veru­lega saman.

Háir vextir laða að spákaupmenn

Á árunum fyrir hrun flæddu erlendir pen­ingar inn í íslenska hag­­kerfið í svoköll­uðum vaxta­muna­við­­skipt­­um. Í ein­­földu máli snú­­ast þau um að er­­lendir fjár­­­festar tóku lán í myntum þar sem vextir voru lágir og keyptu síð­­an ­ís­­lensk skulda­bréf, vegna þess að vextir á þeim eru háir í öllum alþjóð­­leg­um ­sam­an­­burði. Því gátu fjár­­­fest­­arnir hagn­­ast vel umfram þann kostnað sem þeir báru af lán­­töku sinn­­ar. Og ef þeir voru að gera við­­skipti með eigin fé þá gát­u þeir auð­vitað hagn­­ast enn meira.

Þessi vaxta­muna­við­­skipti áttu stóran þátt í að blása upp þá ­bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leit­aði í íslenska skulda­bréfa­­flokka var end­­ur­lánað til við­­skipta­vina íslensku bank­anna og við það ­stækk­­aði umfang þeirra gríð­­ar­­lega. Við hrun, þegar setja þurfti fjár­­­magns­höft á til að hindra útflæði gjald­eyr­is, voru vaxta­muna­fjár­­­fest­ingar vel á sjö­unda hund­rað millj­­arða króna.

Meg­in­vextir Seðla­­banka Íslands lækk­­uðu skarpt fyrstu árin eft­ir hrun. Þeir hækk­uðu hins vegar aftur á síð­ustu árum og fóru hæst upp í 5,75 pró­sent í fyrra. Nú eru þeir fimm pró­sent. Sömu vextir eru hins vegar nálægt núll­inu í mörgum öðrum löndum.

Nýtt tæki kynnt til sögunnar

Á fyrsta fundi Þjóð­hags­ráðs, sem haldin var í júní í fyrra, var­aði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri við auknum vaxta­muna­við­skiptum. Samkvæmt fund­ar­gerð sagði Már að pen­inga­stefnan á Íslandi stæði frammi fyrir miklum áskor­unum, að losun fjár­magns­hafta væri ein þeirra og að vextir hér væru líka mun hærri en víð­ast hvar ann­ars staðar. Már sagði að vaxta­mun­ur­inn á milli Íslands og ann­arra landa „skapa hættu á fjár­magns­inn­streymi á grund­velli svo­kall­aðra vaxta­mun­ar­við­skipta, en slíkt inn­streymi hefði truflað miðlum pen­inga­stefn­unnar í gegnum vexti á seinni helm­ingi síð­asta árs“. Már bætti þó við að nýtt fjár­streym­is­tæki, sem Seðla­bank­inn kynnti til leiks í byrjun júní­mán­að­ar, ætti að geta haft „áhrif á sam­setn­ingu fjár­magns­flæðis til og frá land­inu og þannig væri betur hægt að beita vöxt­unum til að dempa eft­ir­spurn ef á þyrfti að halda“. Það stjórn­tæki er refla um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyr­is.

Már bætti því við í við­tali við Morg­un­blaðið skömmu síðar tækið „svín­virki“ og að inn­streymi erlends gjald­eyris inn á skulda­bréfa­mark­að­inn hafi algjör­lega stöðvast eftir að Seðla­bank­inn hóf að beita regl­unni og vaxta­muna­við­skiptin þar með líka.

Miðað við sam­drátt­inn sem orðið hefur í fjár­fest­ingum í rík­is­skulda­bréfum er þetta rétt hjá Má. Árið 2015 nam fjár­fest­ing í þeim 54 millj­örðum króna en í fyrra ein­ungis 28,2 millj­örðum króna. Vaxta­muna­við­skiptin hafa því tæp­lega helm­ing­ast. Gera má ráð fyrir því að obbi þeirra kaupa sem áttu sér stað í fyrra hafi átt sér stað áður en Seðla­bank­inn hóf að beita nýja stjórn­tæk­inu.

Þetta var mjög mik­il­vægt í aðdrag­anda þess að höft yrðu losuð frekar, líkt og gert var fyrr á þessu ári. Ef óbreytt vaxta­muna­við­skipti hefðu verið val­kostur eftir losun þeirra gæti það skapað mik­inn vanda í íslensku efna­hags­kerfi á mjög skömmum tíma.

Útlendingar kaupa mun meira af hlutabréfum og „öðru“

Þrátt fyrir minnk­andi vaxta­muna­við­skipti jókst erlend nýfjár­fest­ing milli ára um tæp­lega þrjá millj­arða króna. Athygli vekur að áhugi erlendra fjár­festa á skráðum íslenskum hluta­bréfum tvö­fald­ast á milli ára. Árið 2015 keyptu þeir slík fyrir 5,7 millj­arða króna en í fyrra keyptu þeir hluta­bréf fyrir 11,1 millj­arð króna.

Þá er mikil aukn­ing í nýfjár­fest­ingu í atvinnu­rekstri milli ára, en hún fór úr 13 millj­örðum króna í 30,2 millj­arða króna. Áhugi útlend­inga á íslenskum fast­eignum jókst líka. Þeir keyptu slíkar fyrir 652 millj­ónir króna 2015 en fyrir einn millj­arð króna í fyrra.

Í sam­an­tekt Seðla­bank­ans er líka liður sem heitir „aðrar fjár­fest­ingar“. Sá liður vex hlut­falls­lega mest á milli ára og fer úr 1,1 millj­arði króna 2015 í 6,2 millj­arða króna í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár