„Stormur á leiðinni“ - umfjöllun um íslenska ráðherra áberandi í erlendum fjölmiðlum

Þýska blaðið Sueddeutsche Zeitung hefur birt umfjöllun sína um íslenska stjórn­mála­menn sem tengj­ast félögum í skatta­skjólum á net­inu. Fjöl­mið­ill­inn er einn þeirra sem hafa haft aðgang að gríð­ar­lega umfangs­miklum gögnum í skatta­skjólum, líkt og Reykja­vík Media og Kastljós.

Umfjöllun fjöl­miðla um allan heim bein­ist í kvöld að Íslandi og Rúss­landi, sagði Helgi Seljan fjöl­miðla­maður nú í upp­hafi Kast­ljóss­þáttar sem verið er að senda út.

Í umfjöllun þýska blaðs­ins er sjónum beint að Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­syni og Ólöfu Nordal.

Gögnin eru frá Mossack Fonseca (Mossfon), fyr­ir­tækis í Panama sem sér­hæfði sig í svona málum. Í gögn­unum má meðal ann­ars sjá upp­lýs­ingar um Sigmund Davíð, Bjarna, Ólöfu, og Hrólf Ölvisson, fram­kvæmda­stjóra Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Sueddeutsche Zeitung segir að fjöldi Íslend­inga sé gögn­unum sé ótrú­lega mik­ill miðað við 330 þús­und manna land. Þar séu líka margir rík­ustu menn Íslands, fyrr­ver­andi hátt­settir banka­menn og að minnsta kosti einn hátt­settur ráð­gjafi rík­is­stjórn­ar­innar.

Blaðið segir að vegna hruns­ins hér á landi sé almenn­ingur enn reiður. Í ljósi þess hafi Sig­mundur Davíð ýmis­legt að útskýra. Þau hjónin voru skráð saman fyrir fyr­ir­tæk­inu Wintris Inc. til loka árs­ins 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár