Æfa virkjun neyðarviðbragðs þar sem hægt er að taka á móti allt að 500 flóttamönnum á nokkrum dögum

Gert er ráð fyrir að allt að fjögur þús­und flótta­menn komi frá Úkraínu hingað til lands á næst­unni. Virkjun neyð­ar­við­bragðs þar sem gengið er út frá mót­töku allt að 500 manns á nokkrum dögum hefur verið æft hér á landi.

Sameinuðu þjóðirnar áætla að rúmar 3,7 milljónir séu á flótta frá Úkraínu. Búist er við allt að fjögur þúsund flóttamönnum frá Úkraínu til Íslands á næstunni.
Sam­ein­uðu þjóð­irnar áætla að rúmar 3,7 millj­ónir séu á flótta frá Úkraínu. Búist er við allt að fjögur þús­und flótta­mönnum frá Úkraínu til Íslands á næst­unni. Mynd: EPA

Skipulag mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu stendur yfir hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu, auk náins sam­starfs við sam­hæf­ing­ar­mið­stöð almanna­varna.

Sam­hæf­ing verk­efn­is­ins er í höndum ráðu­neyt­is­stjóra­hóps undir for­ystu Bryn­dísar Hlöðvers­dóttur, ráðu­neyt­is­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Stýri­hópur undir for­ystu Gissurar Pét­urs­sonar, ráðu­neyt­is­stjóra í félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu, hefur yfir­um­sjón með verk­efn­inu en fram­kvæmdin er í höndum fram­kvæmda­hóps undir for­ystu Gylfa Þórs Þor­steins­sonar, sem var áður for­stöðu­maður far­sótt­ar­hús­anna.

Í svari félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hversu margir flótta­menn séu vænt­an­legir hingað til lands segir að það fari að miklu leyti eftir því hversu lengi stríðið í Úkraínu drag­ist á lang­inn. Eins og staðan er núna er gert ráð fyrir á bil­inu 1.500-4.000 ein­stak­lingum en það gæti breyst með litlum fyr­ir­vara.

Ætla að afgreiða 20-30 umsóknir á dag

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu hafa 623 ein­stak­lingar sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi það sem af er ári, þar af 323 frá Úkraínu. Þegar er búið að veita 42 ein­stak­lingum frá Úkraínu vernd en ráð­gert er að afgreiða 20-30 umsóknir á dag frá og með þess­ari viku. Fjöldi umsókna um vernd hefur verið um 20 að með­al­tali síð­ustu sjö daga.

Hluti af und­ir­bún­ingnum síð­ustu daga er æfing á virkjun neyð­ar­við­bragðs þar sem gert er ráð fyrir að allt að 500 manns sæki um alþjóð­lega vernd á nokkrum dögum. Við virkjun slíks við­bragðs er við­bragðs­kerfi Almanna­varna virkjað en slík áætlun hefur verið til lengi. Í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans segir að vonir standi til að ekki þurfi að virkja slíkt neyð­ar­við­bragð en ef til þess kemur verði það ein­göngu í nokkra daga.

Meðal ákvarð­ana sem teknar hafa verið vegna mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu er opnun skrán­inga- og upp­lýs­inga­mið­stöð fyrir flótta­fólk sem verður opnuð í hús­næði Domus Medica á næstu dögum.

Mun taka tíma að finna varanlegt húsnæði

Alls hafa um 300 aðilar boðið fram hús­næði fyrir flótta­fólk frá Úkraínu til lengri og skemmri tíma í gegnum sér­staka skrán­ing­ar­síðu sem Fjöl­menn­ing­ar­setur stendur fyrir. Skoða þarf öll til­boðin en fyrir liggur að það muni taka tíma að finna var­an­legt hús­næði, að því er segir í svari félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Þessa stund­ina er unnið að því að koma upp bráða­birgða­hús­næði og er útfærsla á því til skoð­unar meðal ann­ars í Reykja­vík, Ölfusi og Borg­ar­byggð.

Um miðja síð­ustu viku hóf Útlend­inga­stofnun að gefa út leyfi fyrir ein­stak­linga sem leit­uðu hingað frá Úkraínu og er venjan að fólk sé allt að tvær vikur í úrræðum hjá Útlend­inga­stofnun áður en flutt er í var­an­legt hús­næði.

Þá fund­aði félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið í síð­ustu viku með full­trúum sveitar- og bæj­ar­stjórna, ásamt félags­mála­stjórum víðs­vegar um landið vegna skipu­lags á komu flótta­fólks frá Úkraínu. Aðalefni fund­ar­ins var að ræða stöðu þeirra ein­stak­linga sem hafa neyðst til þess að flýja heim­ili sín til nágranna­ríkja í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í landið og hvernig best er að haga mót­töku þeirra hér á landi. Fund­ur­inn hafði einnig þann til­gang að fylgja eftir áskorun ráðu­neyt­is­ins þar sem sveit­ar­fé­lögin í land­inu voru hvött til þess að leggja mót­töku flótta­fólks­ins lið eftir getu og mögu­leikum.

Að sögn ráðu­neyt­is­ins er meg­in­á­hersla þessa stund­ina lögð á sam­vinnu allra þeirra sem koma að mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu. „Við lærðum margt í við­brögðum okkar við heims­far­aldri COVID-19 og sú þekk­ing og reynsla nýt­ist okkur vel í við­bragð­inu núna,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um gang mála við skipu­lagn­ingu mót­töku flótta­fólks. „Við ætlum að taka á móti þeim sem hingað leita og gera það vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár