BHM varar við ótímabæru aðhaldi í ríkisfjármálum

Fram­lengja þarf úrræði til að verja vel­ferð og atvinnustig í bar­átt­unni við Covid-19 að mati Banda­lags háskóla­manna. Greiða ætti fram­línu­starfs­fólki auknar álags­greiðslur til að koma til móts við for­dæma­laust álag á það síð­ustu miss­eri.

Vilja að úrræði verði framlengd
Vilja að úrræði verði fram­lengd BHM leggur áherslu á að stjórn­völd verji vel­ferð og atvinnustig en hefji ekki „ótíma­bært aðhald í rík­is­fjár­málum“. Friðrik Jónsson er for­maður BHM. Mynd: BHM

Fram­lengja ætti þau úrræði sem stjórn­völd hafa sett á lagg­irnar til að verja vel­ferð og atvinnustig en ekki að hefja það sem Bandalag háskóla­manna (BHM) kallar „ótíma­bært aðhald í rík­is­fjár­málum“. Greiða á heil­brigð­is­starfs­fólki og öðru fram­línu­starfs­fólki sem staðið hefur í stafni í bar­átt­unni í Covid-19 far­aldr­inum auknar álags­greiðslur eða launa­upp­bætur, til að koma til móts við for­dæma­laust álag síð­ustu miss­era.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði BHM til ráð­herra­nefndar um sam­ræm­ingu mála vegna Covid, sem sent var í fram­haldi af fundi með full­trúum sam­taka launa­fólks 3. ágúst. Þar er því fagnað að stjórn­völd leggi aukna áherslu á sam­ráð við helstu hag­að­ila um við­brögð og áherslur í bar­átt­unni við Covid-19.

Í minn­is­blað­inu er lögð áhersla á að stjórn­völd gefi skýr skila­boð og marki stefnu þar sem ásætt­an­legt jafn­vægi náist á milli lýð­heilsu­legra sjón­ar­miða og efna­hags­legra sjón­ar­miða. BHM vill þannig að úrræði eins og hluta­bóta­leið, úrræðið Hefjum störf og tekju­teng­ingar atvinnu­leys­is­bóta verði fram­lengdar. Atvinnu­lausum verði gert kleift að sækja sé menntun án þess að það skerði bóta­rétt.

BHM leggur áherslu á að marka þurfi stefnu til að verja heil­brigð­is­kerfið til skemmri og lengri tíma og tryggja fram­línu­starfs­fólki í ýmsum greinum hvíld, öryggi og umbun, ef ekki eigi illa að fara. Þá skiptir miklu máli í því sam­hengi að stytt­ing vinnu­viku verði fest í sessi. Þá þarf að tryggja að skóla­starf skerð­ist ekki frekar.

Að mati BHM þurfa stjórn­völd m.a. að svara eft­ir­far­andi spurn­ingum:

1. Verður ein­blínt á smit­tölur fram­vegis eða aðra mæli­kvarða s.s. fjölda veikra í stað fjölda smit­aðra?

2. Hvernig verða við­kvæmir hópar varðir og hvaða áhrif mun það hafa á almenn lífs­gæði þeirra?

3. Hver er stefnan að því er varðar hugs­an­lega bólu­setn­ingu ung­menna?

4. Hafa stjórn­völd í huga að inn­leiða bólu­setn­ing­ar­skyldu?

5. Munu stjórn­völd taka upp hrað­próf hér á landi í meiri mæli eins og tíðkast m.a. í Bret­landi og Danmörku?

6. Verður sótt­vörnum komið í kerf­is­bund­inn far­veg til fram­búðar t.d. með stofnun Sótt­varn­ar­ráðs eða við­eig­andi stofn­unar?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár