Níu teymi útskrifuðust úr Startup Tourism

Startup Tourism var haldið í annað sinn í ár. Níu teymi luku við­skipta­hraðl­inum. Eitt fyr­ir­tæki hefur þegar hafið starf­semi og gert er ráð fyrir að hin fari af stað á þessu ári.

Margrét Erla Maack kynnir verkefnið sitt í Tjarnarbíó. Það snýst um að veita ferðamönnum einstakt tækifæri til að upplifa ljós og liti á mærum myndlistar og vísinda
Margrét Erla Maack kynnir verk­efnið sitt í Tjarn­ar­bíó. Það snýst um að veita ferða­mönnum ein­stakt tæki­færi til að upp­lifa ljós og liti á mærum mynd­listar og vís­inda Mynd: Eva Björk

Við­skipta­hrað­all­inn Startup Tourism lauk í síð­ustu viku þegar níu ný ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki og hug­myndir luku 10 vikna dag­skrá í nýsköpun.

Þetta er í annað sinn sem Icelandic Startups efnir til við­skipta­hrað­als­ins Startup Tourism sem miðar að því að klekja sprota­fyr­ir­tæki og nýsköp­un­ar­verk­efni í ferða­iðn­að­inum. Ferða­þjón­usta á Íslandi er nú orðin stærsti iðn­aður á Íslandi.

Fyrr á þessu ári voru tíu teymi valin til þátt­töku í við­skipta­hraðl­inum í ár, úr hópi 94 umsækj­enda. Í til­kynn­ingu frá Icelandic Startups segir að umsókna­fjöld­inn hafi auk­ist um 30 pró­sent á milli ára.

Teymin níu sem útskrif­uð­ust kynntu hug­myndir sínar í Tjarn­ar­bíói fyrir fjár­festum og lyk­il­að­ilum innan ferða­þjón­ustu­geirans á föstu­dag­inn var. Eitt fyr­ir­tækj­anna hefur þegar hafið rekstur og gert er ráð fyrir að hin fyr­ir­tækin geti hafið starf­semi á þessu ári.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, ávarp­aði loka­hófið í Tjarn­ar­bíói auk þess sem að frum­kvöð­ull­inn Oliver Luckett hélt tölu um vöru­merkið Ísland.

Alls eru níu fyr­ir­tæki sem tekið hafa þátt í Startup Tourism við­skipta­hraðl­inum enn starf­andi. Markmið við­skipta­hrað­als­ins er að gefa sér­völdum sprota­fyr­ir­tækjum tæki­færi til þess að láta hug­myndir sínar verða að veru­leika, hvetja til nýsköp­unar í ferða­þjón­ustu og stuðla að dreif­ingu ferða­manna allt landið um kring, allan árs­ins hring.. Til að ná þessu mark­miði er teymunum sem fá þátt­töku­rétt boðin full­búin aðstaða til stofn­unar fyr­ir­tækis og aðgangur að sér­fræð­ingum og leið­bein­endum.

Teymin sem tóku þátt í Startup Tourism í ár eru eft­ir­far­andi.

Deaf Iceland

Deaf Iceland ætlar að bjóða döff ferða­mönnum að upp­lifa Ísland á for­sendum tákn­máls­ins. Þau eru braut­ryðj­endur hvað varðar slíka þjón­ustu í heim­inum og búa yfir sterku tengsla­neti. Þar að auki líta þau á fyr­ir­tækið sem atvinnu­skap­andi vett­vang fyrir heyrn­ar­lausa á Íslandi.

Hælið, safn tilfinninganna

Saga berkla á Íslandi og þeirra sem þá upp­lifðu verður sögð á HÆLINU – setri um sögu berkla á Krist­nesi í Eyja­firði. Á sýn­ing­unni verður lögð áhersla á sjón­ræna fram­setn­ingu og upp­lifun. Einnig verður kaffi­hús á staðnum. HÆLIÐ setur um sögu berklanna opnar vorið 2018 og verður kær­komin við­bót í menn­ing­araf­þr­ey­ingu svæð­is­ins.

IceYoga

IceYoga er ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem býður upp á jóga­ferðir um Ísland. Teymið á bak við IceYoga sam­anstendur af jóga­kenn­urum og leið­sögu­manni sem öll eiga það sam­eig­in­legt að hafa brenn­andi áhuga á ferða­lögum og jóga.

MyShopover

MyS­hopover er vef­svæði sem mun ein­beita sér að því að bjóða ferða­mönnum hvaðan sem er úr heim­inum að versla með heima­manni, eða versl­un­ar­ráð­gjafa. Þessi þjón­usta byggir á svip­aðri hug­mynda­fræði og Airbnb en í stað gisti­þjón­ustu þá munum við bjóða uppá þjón­ustu þegar kemur að því að versla í ókunn­ugri borg.

Regnbogasafnið í Reykjavík

Regn­boga­safnið í Reykja­vík er upp­lif­un­ar­safn á mærum listar og vís­inda, þar sem litir, birta og per­sónu­leg upp­lifun eru í lyk­il­hlut­verki. Safnið verður jafn­lokk­andi fyrir ferða­menn og fyrir þá sem búa á Íslandi, enda nóg pláss fyrir fjöl­skyldu­skemmtun í flór­unni. Safnið er komið langt á veg og verður opnað í haust.

Sigló Ski Lodge

Siglo Ski Lodge verður í senn áfanga­staður, mið­stöð og upp­lýs­inga­miðlun fyrir nátt­úru­unn­endur. Með reynslu teym­is­ins í bland við þekk­ingu heima­manna vilja þau nýta þá mögu­leika sem nátt­úruparadísin Trölla­skag­inn hefur upp á að bjóða. Fyr­ir­tækið mun bjóða upp á þjón­ustu og afþr­ey­ingu í úti­vist og leið­sögn allan árs­ins hring fyrir erlenda ferða­menn sem og Íslend­inga.

Sólvangur Icelandic Horse Center

Sól­vangur Icelandic Horse Center er fjöl­skyldurek­inn hesta­bú­garður við Eyr­ar­bakka á Suð­ur­strönd Íslands. Þau bjóða gestum upp á að skyggn­ast inn í þeirra heim með reið­kennslu við allra hæfi og gist­ingu í smá­hýsum. Einnig geta gestir komið við í Litla Hesta­búðin sem verður í senn kaffi­hús og minja­gripa­verslun, þar sem allt snýst um hest­inn.

The Cave People

Laug­ar­vatns­hellar eru stað­settir í miðjum gullna hringnum og mark­miðið er að end­ur­gera hell­ana í þeirri mynd sem þeir voru í þegar búið var í þeim. Boðið verður upp á ferðir með leið­sögn um hell­ana og saga ábú­enda gerð ljós­lif­andi auk þess sem boðið verður upp á minja­gripi og veit­ingar.

Travelscope

Ferða­sjáin er leit­ar­vél sem finnur drauma­ferð­ina út frá óskum og sér­þörfum sem byggj­ast á alhliða gögnum um áfanga­staði. Með aðgang að raun­sönnum upp­lýs­ingum hefur not­and­inn full­komna yfir­sýn yfir þá áfanga­staði sem henta honum full­kom­lega. Hafðu heim­inn í höndum þér!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár