Hagvöxtur var 7,2 prósent í fyrra – Sá langmesti frá 2007

Þjón­ustu­út­flutn­ingur er í fyrsta sinn stærri hluti af lands­fram­leiðslu en vöru­út­flutn­ingur. Ástæðan er ferða­þjón­usta. Þriðji mesti hag­vöxtur á einu ári í tæp 30 ár. Bara 2004 og 2007 skil­uðu meiri vexti.

Lands­fram­leiðsla jókst um 7,2 pró­sent í fyrra á Íslandi að raun­gildi. Það er mesti hag­vöxtur sem landið hefur upp­lifað á einu ári frá árinu 2007, þegar fyr­ir­hruns góð­ærið náði hámarki. Þá var hag­vöxtur 9,4 pró­sent og byggði fyrst og síð­ast á vexti tengdum fjár­mála­fyr­ir­tækjum, sem síðar féllu haustið 2008.

Hag­stofan birti í morgun tölur um hag­vöxt síð­asta árs. Vöxtur hefur verið hér­lendis á hverju árinu 2011 en sá sem átti sér stað í fyrra sker sig veru­lega úr að umfangi. Á tíma­bil­inu 2011 og út árið 2015 var hag­vöxtur frá 1,2 til 4,4 pró­sent. Á árinu 2016 var hann, líkt og fyrr sagði, 7,2 pró­sent. Það er líka þriðji mesti hag­vöxtur sem mælst hefur á einu ári á síð­ustu tæpu þremur ára­tugum. Einu árin þar sem hag­vöxtur var meiri á því tíma­bili voru 2004 (8,1 pró­sent) og 2007 (9,4 pró­sent).

[adspot]

Í frétt Hag­stof­unnar segir að lands­fram­leiðsla sé nú tíu pró­sent meiri að raun­gildi en hún var árið 2008. Einka­neysla jókst um 6,9 pró­sent, sam­neysla um 1,5 pró­sent og fjár­fest­ing jókst um 22,7 pró­sent. Árlegur vöxtur einka­neyslu hefur ekki mælst meiri frá árinu 2005 en að árinu 2007 und­an­skildu hefur einka­neysla ekki mælst meiri að raun­gildi hér á landi.

Þjónusta stærra hlutfall af landsframleiðslu í fyrsta sinn

Útflutn­ingur jókst um 11,1 pró­sent á árinu 2016 en inn­flutn­ingur um 14,7 pró­sent. Því dró utan­rík­is­verslun úr hag­vexti. Þrátt fyrir það var afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum 158,8 millj­arðar króna á árinu 2016. Útflutn­ingur á þjón­ustu var 26,8 pró­sent af lands­fram­leiðslu og er það í fyrsta sinn i frá því að gerð þjóð­hags­reikn­inga hófst árið 1945 sem tekjur af útfluttri þjón­ustu mæl­ast hærri en af vöru­út­flutn­ingi. Ástæðan er ein­föld: gríð­ar­legur vöxtur í ferða­þjón­ustu, sem er nú stærsta stoðin undir íslenskum efna­hag.

Fjár­fest­ing jókst um 22,7 pró­sent á síð­asta ári en árlegur vöxtur fjár­fest­ingar hefur ekki mælst meiri síðan árið 2006. Umtals­verð aukn­ing var í fjár­fest­ingu atvinnu­veg­anna, eða 24,7 pró­sent og sömu­leiðis í íbúða­fjár­fest­ingu, eða 33,7 pró­sent. Á sama tíma­bili jókst fjár­fest­ing hins opin­bera um 2,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár