Svandís: „Óþægilegt“ hvað kúrfan er brött og farið í hertar aðgerðir

Grímu­skylda tekur gildi strax á morgun og á mið­viku­dag í næstu viku verða fjölda­tak­mörk færð úr 2.000 í 500. Opn­un­ar­tími skemmti­staða verður skertur um tvo tíma frá því sem nú er. Síðasti maður skal út fyrir mið­nætti.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Hertar sam­komu­tak­mark­anir munu taka gildi næsta mið­viku­dag þegar fjölda­tak­mark­anir fara úr 2.000 manns í 500. Grímu­skylda verður tekin upp og sú aðgerð tekur gildi á morgun. Opn­un­ar­tími veit­inga­staða verður skertur enn á ný um tvær klukku­stundir. Opið verður til kl. 23 á kvöldin og síð­ustu gestir skulu vera farnir fyrir mið­nætti. Þá verður eins metra nálægð­ar­reglan aftur kynnt til sög­unnar.

„Það voru deildar mein­ingar get ég sagt,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra eftir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun þar sem aðgerð­irnar voru til umræðu og sam­þykktar.

[adspot]

Hún segir að sótt­varna­læknir hafi í sínu minn­is­blaði rifjað upp þrjár sviðs­myndir: Óbreyttar aðgerðir, miklar herð­ingar og „bil beggja“ sem hafi orðið hennar nið­ur­staða. Spurð hvort hún eigi von á að hertar aðgerðir sem sam­þykktar voru eigi eftir að duga til sagði hún „óþægi­legt“ hvað kúrfan væri brött og risið á bylgj­unni bratt­ara en við hefðum séð áður. Met­fjöldi til­fella hefði greinst síð­asta sóla­hring­inn. Hún minnti á að sam­fé­lagið væri vel varið með bólu­setn­ingum en að engu að síður þyrfti að fara í frekara átak í þeim efnum til að verja fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og þá sem eldri eru. Hvatti hún alla til að fara í bólu­setn­ingu. Sótt­varna­læknir hefur enn­fremur boðað að allir sextán ára og eldri geti fengið örv­un­ar­bólu­setn­ingu á næstu vikum.

[links]Aðgerð­irnar munu gilda í fjórar vikur. Eins og fyrr segir taka þær flestar gildi á mið­viku­dag í næstu viku en grímu­skyldan strax á morgun. Þá þarf aftur að bera grímur í versl­unum, á sitj­andi við­burðum og svo fram­vegis, líkt og lands­menn eiga að vera farnir að þekkja. „En við tökum grím­urnar upp aftur.“

Engar frek­ari aðgerðir verða þó í grunn­skólum lands­ins og þar verður ekki tekin upp grímu­skylda.

Spurð um við­burði fram undan á borð við jólatón­leika sagði hún að vissu­lega myndu aðgerð­irnar hafa ein­hver áhrif þar á. Hún minnti hins vegar á leið­bein­ingar um hrað­próf fyrir allt upp í 1.500 manns í sam­eig­in­legu rými og hvatti þá sem ætla sér að halda stóra við­burði að nýta sér þau.

Svipuð staða á nágrannalöndum

Svandís sagði að nágranna­þjóðir okkar væru í svip­uðum sporum, m.a. Bretar og hin Norð­ur­löndin. Þar er mik­ill vöxtur í far­aldr­inum og víða verið að ræða mögu­leg við­brögð við honum. „Það er held ég eng­inn rólegur yfir því að Evrópa sé orðin mið­punktur í þessu aftur, því miður.“

Ráð­herr­ann sagði að innan rík­is­stjórn­ar­innar hefðu alltaf verið skiptar skoð­anir um til hvaða aðgerða ætti að grípa og hvenær. „Ég veit ekki hversu marga klukku­tíma þessi rík­is­stjórn hefur rætt aðgerðir við far­aldr­inum. En það voru skiptar skoð­anir.“ Sagði hún ágrein­ing um áherslur og hvaða leiðir ætti að fara en vildi ekki meina að ágrein­ing­ur­inn væri meiri nú en áður.

Blikur á lofti varðandi Landspítala

Spurð hvort Land­spít­al­inn yrði aftur færður á hættu­stig sagði hún „raun­hæft“ á áætla að það yrði gert. „Við vonum að það verði ekki en það eru blikur á lofti.“ Á hættu­stigi er val­kvæðum aðgerðum m.a. frestað á spít­al­anum.

Um 20 mán­uðir eru frá því að fyrsta smitið greind­ist hér á landi og fljót­lega eftir það var farið að grípa til sótt­varna­að­gerða. Stundum hefði verið hægt að losa aðgerðir fyrr en til stóð en stundum hefur þurft að herða enn frekar. „Við erum orðin sjóuð í að fara fram og til baka í þessum hertu aðgerðum.“

Forðast ber hópamyndanir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir skrifar í færslu á covid.is í morgun að nú gilti „að sýna sam­stöðu og við­hafa þær sótt­varnir sem við vitum að skila árangri. Forðumst hópa­mynd­anir, virðum eins metra nánd­ar­reglu, notum and­lits­grímu ef ekki er hægt að við­hafa eins metra nánd við ótengda aðila og/eða í illa loft­ræstum rýmum, þvoum og sprittum hendur, höldum okkur til hlés ef við finnum fyrir ein­kennum sem bent geta til COVID-19 og mætum í PCR próf. Einnig er mik­il­vægt að við­hafa góða smit­gát þar til nið­ur­staða úr PCR prófi liggur fyrir“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár