„Eldheitt“ kammerprógramm í Hörpu í sumar

Það verður nóg um að vera í Hörpu í sumar. Sum­ar­tím­inn var oft­ast nokkuð dauður tími en nú flykk­ist fólk á við­burði allan árs­ins hring.

Dagskráin í Hörpu er fjölbreytt í sumar.
Dag­skráin í Hörpu er fjöl­breytt í sumar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í sumar er margt á dag­skrá tón­list­ar­húss­ins Hörpu bæði fyrir ferða­menn og Íslend­inga. Fastir liðir á borð við Reykja­vík Midsum­mer Music verða á sínum stað, auk Harpa International Music Academy og Jazzhátíðar í ágúst.

Melkorka Ólafs­dóttir, dag­skrár­stjóri tón­listar í Hörpu, segir aukna áherslu á við­burði fyrir ferða­fólk hafa stuðlað að þétt­ari aðsókn allt árið um kring.

„Við erum að fá tvær bestu kamm­er­hljóm­sveitir í Evrópu í heim­sókn í ár, sú fyrri mætir núna 19. maí. Það eru bestu spil­ar­arnir úr hinum frægu hljóm­sveitum Berlín­ar­fíl­harm­ón­í­unni og Vín­ar­fíl­harm­ón­í­unni sem mynda Kamm­er­sveit Vínar og Berlínar, sem stofnuð var af Sir Simon Rattle fyrir nokkrum árum.“

Berlín­ar­fíl­harm­ón­ían hefur áður komið til Íslands og leikið í Hörpu og fengið glimr­andi við­tökur. Hljóm­list­ar­menn­irnir hafa einnig haft orð á því hversu vel þeim leist á Hörpu. Vín­ar­fíl­harm­ón­ían er hins vegar í hæsta verð­flokki. „Vín­ar­fíl­harm­ón­ían er svo brjál­æð­is­lega flott að það væri hæpið að geta boðið öllum hópnum til Íslands. En við fáum að minnsta kosti tæki­færi til að hlýða á hluta hennar í miklu návígi,“ segir Melkorka.

17 hljóð­færa­leik­arar úr þessum tveimur hljóm­sveitum mynda kamm­er­sveit­ina sem treður upp í Eldborg 19. maí. Melkorka segir að þau ætli að spila „aðgengi­legt og eld­heitt pró­gramm“.

„Það hefur alltaf verið svo­lít­ill slagur á milli þess­ara hljóm­sveita því þær hafa báðar verið nefndar bestu hljóm­sveit­irnar í Evrópu. Og þegar er verið að etja saman spil­urum úr báðum hljóm­sveitum verður til ein­hver alveg sér­stök orka.“

[adspot]

Fastir sumarliðir

Melkorka segir að sum­arið verði ann­ars fjöl­breytt. „Ein­hverjum finnst eflaust áhuga­vert að Krishna Das sé að koma. Hann ætlar að vera í Eldborg svo fólk getur fjöl­mennt þangað til and­legrar iðk­unar og til að syngja kirtan.“

„Svo erum við með Reykja­vík Midsum­mer Music sem er þessi fína kamm­ermúsík-hátíð hans Víkings Heiðars. Hún er í kringum Jóns­mess­una,“ segir Melkorka.

„Önnur hátíð hefur líka farið sívax­andi síð­ustu ár og er alveg svaka­lega flott. Það er Harpa International Music Academy. Það er alþjóð­legt tón­list­ar­nám­skeið fyrir ung­linga. Þá fyllist allt húsið af krökkum með fiðlur og selló. Sú hátíð er einnig í júní.“

„Svo er Jazzhátíðin í ágúst. Það er fjög­urra daga hátíð og hefur verið í Hörpu frá opnun.“

Þyrnirós er jólaballettinn

Á dag­skrá Hörpu í nóv­em­ber und­an­farin ár hafa verið magn­aðar ball­ett­sýn­ingar á borð við Svana­vatnið og Hnotu­brjót­inn. Í ár verður Þyrnirós sýnd í Hörpu. „Það verður örugg­lega mjög fal­leg sýn­ing líka; fjöl­skyldu­sýn­ing eins og hinar hafa verið. Ball­ett­sýn­ing­arnar hafa gengið mjög vel og verið bæði vin­sælar og hátíð­legar. Sumir eru farnir að líta á þær sem byrj­un­ina á jól­unum. Það er svo­lítið fal­legt.“

Sami ball­ett­hópur og Harpa hefur verið í sam­vinnu við und­an­farin ár mun sýna Þyrnirós, við með­leik Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands. Hópurinn er frá St. Pét­urs­borg í Rúss­landi en ferð­ast um víða ver­öld með sýn­ing­arnar sínar ár hvert. Ball­ett­inn verður einnig sýndur í Hofi á Akureyri í ár eins og í fyrra.

Á milli jóla og nýárs mun Sigur Rós taka yfir ýmis rými Hörpu og koma fram á fernum tón­leikum í Eldborg. Þá verða fimm ár liðin síðan hljóm­sveitin kom síð­ast fram á Íslandi. Miðasala á tón­leik­ana hefst mánu­dag­inn 15. maí.

Einn vinsælasti ferðamannastaður landsins

Tón­list­ar­húsið Harpa hefur síðan húsið opn­aði árið 2011 orðið að einum vin­sælasta ferða­manna­stað lands­ins. Þangað flykkj­ast ferða­menn, hvort sem það er vegna áhuga á tón­list eða ein­kenn­andi arkítektúr húss­ins.

Melkorka segir ferða­manna­straum­inn vera mik­il­vægan hlekk í dag­skrá og rekstri Hörpu. Suma daga breyt­ist hún í als­herjar þjón­ustu­mið­stöð, en þiggur þó ekk­ert styrkfé sem slík.

„Þegar veðrið er vont er hvergi betra að vera. Í fyrra gerðum við mik­inn skurk í að setja af stað verk­efni sem voru sér­stak­lega ætluð ferða­mönnum. Við byrj­uðum með dag­lega hádeg­is­tón­leika í Eldborg, Reykja­vík Classics, því margir ferða­menn eru mjög áhuga­samir að heyra hvernig sal­ur­inn hljómar. Í sumar verða þrennir tón­leikar á dag í Eldborg, Reykja­vík Classics og Perlur íslenskra söng­laga.“

Tvær leik­sýn­ingar hafa verið settar upp í Hörpu sem sér­stak­lega er beint til ferða­manna. Íslend­inga­sög­urnar eru settar upp í grín­bún­ing í sýn­ing­unni Icelandic Sagas og svo er How to become Icelandic in 60 minutes, sem Melkorka segir vera svaka­lega vin­sæla.

„Svo erum við farin að geta boðið upp á stærri tón­leika yfir sum­ar­tím­ann. Við próf­uðum það í fyrra og það gekk bara mjög vel. Það kom okkur nokkuð á óvart því áður var sum­arið nokkuð dauður tími. Í sumar mæta gamlar kempur eins og Herbie Hancock og Eng­il­bert Humperdinck. Það verður fróð­legt að sjá hvernig það gengur. Svo má nátt­úru­lega ekki gleyma Kool and the Gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár