Ísland tapaði fyrir Króötum - Þátttöku lokið á HM

Íslend­ingar mættu Króötum í síð­asta leik riðla­keppn­innar á HM í Rúss­landi í dag. Þrátt fyrir ósigur börð­ust strák­arnir hetju­lega.

Jóhann Berg Guðmundsson tekst á við Króata.
Jóhann Berg Guð­munds­son tekst á við Króata. Mynd: FIFA

Íslenska lands­liðið í knatt­spyrnu karla tap­aði fyrir Króatíu á heims­meist­ara­mót­inu í Rúss­landi rétt í þessu, 1-2. Leik­ur­inn fór fram á Rostov-leik­vang­inum.

Íslenska liðið hélt hreinu í rúmar fimm­tíu mín­útur en oft mátti litlu muna að strák­arnir okkar næðu að setja knött­inn í netið. Milan Badelj skor­aði mark Króata á 53 mín­útu. Íslend­ingar fengu víta­spyrnu á 76 mín­útu og skor­aði Gylfi Þór Sig­urðs­son örugg­lega. Mikil spenna var í lok leiks en nauð­syn­legt var fyrir Íslend­inga að skora til að kom­ast áfram. Á 90 mín­útu skor­aði Ivan Perisic síð­ara mark Króata.

Lið Íslands gerði jafn­tefli, eins og frægt er orðið, við Argent­ínu í fyrsta leik Íslands á HM þann 16. júní síð­ast­lið­inn. Alfreð Finn­boga­son skor­aði mark Íslend­inga. Annar leikur liðs­ins við Nígeríu fór ekki eins vel sex dögum síðar en þá unnu mótherj­arnir 2-0. Til þess að eiga von á að kom­ast áfram þurftu Íslend­ingar að vinna og von­ast eftir jafn stórum argent­ínskum sigri. 

Leikur Argent­ínu og Nígeríu fór 2-1 fyrir Argent­ínu. Króatía og Argent­ína munu því mæta Frökkum og Dönum í 16 liða úrslitum.

Ekki verður annað sagt en að íslenska liðið hafi staðið sig vel á þessu fyrsta heims­meist­ara­móti sínu og geta lands­menn verið stoltir af strák­unum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár