Tækifæri fyrir Rúrik í margfaldri aukningu á Instagram-fylgjendum

Fylgj­endur Rúriks Gísla­sonar lands­liðs­manns á Instagram eru komnir yfir hálfa milljón en vor um 30 þús­und fyrir Argent­ínu­leik­inn. Sér­fræð­ingur segir mörg tæki­færi fólgin í þessu fyrir Rúrik.

Fylgj­endur Rúriks Gísla­sonar lands­liðs­manns á Instagram eru komnir yfir hálfa milljón. Áhugi á leik­mann­inum er eig­in­lega ótrú­legur en áður en hann kom inn á sem vara­maður fyrir Jóhann Berg Guð­munds­son var fylgj­enda­fjöldi hans á sam­skipta­miðl­inum um 30 þús­und. Mest megnis er um kven­kyns aðdá­endur að ræða sem hafa tekið eftir Rúrik í leiknum.

[links]Sigurður Svansson, sér­fræð­ingur í sam­fé­lags­miðlum og einn eig­anda Sahara, seg­ist ekki sjá neitt sem bendir til þess að þessi ótrú­lega aukn­ing sé byggð á öðru heldur en úti­liti Rúriks. Rúrik er nátt­úru­lega fjall­mynd­ar­legur. En hann hefur alveg verið að birta efni á Instagram áður en það hefur ekki farið á flug þar til nú sem er alveg frekar magnað þar sem hann er búinn að vera svo­lít­inn tíma í lands­lið­inu. Hann er kannski að skora hærra hjá konum í Suður-Ameríku.“

Sigurður segir ýmis tæki­færi fólgin í þessum mikla fjölda nýrra fylgj­enda fyrir Rúrik. „Maður flokkar þetta í nokkra flokka. Það getur verið ótrú­lega stórt tæki­færi fyrir hann að nýta sér þennan með­byr til að landa stærri styrkt­ar­samn­ingnum. Það þekkjum við í gegnum áhrifa­valda mak­raðs­setn­ingu. Áður fyrr þurfti að vera ótrú­lega góður í fót­bolta og þannig fengu menn stærstu samn­ing­ana. En núna er alveg tæki­færi fyrir „minna þekkta“ leik­menn að fá aug­lýs­inga­sam­inga ef að þeir eru að sinna sam­fé­lags­miðl­unum sínum vel og eru með gott fylgi.“

Sigurður segir miðl­ana einnig tæki­færi fyrir fólk til að reyna að stjórna umræð­unni í kringum sig sjálft. „Fjöl­miðlar eru kannski að fylgj­ast með sam­fé­lags­miðlum hjá þessum stjörnum og pikka upp fréttir þaðan, þannig að þetta getur verið tól til að stjórna umræð­unni líka.“

Sítt hár gerir góða hluti

Sigurður hefur fylgst grannt með þróun mála hjá strák­unum okkar frá því á leiknum á laug­ar­dag­inn. „Þetta sprakk 17 .júní, þá var Rúrik með 318 þús­und fylgj­endur, frá því þá er þetta hækku um eitt­hvað í kringum 55 pró­sent. Þar á eftir kemur Birkir [Bjarna­son] með í kringum 14-15 pró­senta aukn­ingu. Ég rek það til að síða hárið á þeim er að gera góða lukku á HM, ætli það verði ekki trend hjá litlum íslenskum fót­bolta­strákum eftir mótið.“

Sigurður segir alla lands­liðs­menn­ina vera að auka jafnt og þétt við sig fylgj­enda­fjölda hut­falls­lega. „En það á eng­inn breik í Rúrik. Gylfi Sig er til dæmis lang þekkt­asti fót­bolta­maður Íslend­inga með í kringum 182-4 þús­und fylgj­endur. Hann er ekki búinn að taka sama stökkið.“

Sigurður von­ast til að Rúrik sé ekki endi­lega of með­vit­aður um þessa rosa­legu þróun á sam­fé­lags­miðl­unum hans núna. „Ég veit ekki hversu mikið aðgengi hann hefur að sím­anum sínum þarna úti, ég vona að hann hafi ekki of mikið. En ég vona að hann nýti tæki­færið síðar. Þetta gæti verið ótrú­legt tæki­færi fyrir hann til að hoppa út á annan markað miðað við hvað það er mik­ill áhugi í kringum hann.“

En hvar endar þetta? Sigurður segir frá að hann hafi heyrt af því að breskir veð­bankar séu búnir að opna fyrir veð­mál um að Rúrik kom­ist yfir milljón fylgj­endur á meðan HM er í gangi. „Ef það er þannig þá er það alveg gar­anterað miðað við þessa þróun að hann mun ná því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár