Bjarni vissi ekki af Tortóla-félaginu

Bjarni Bene­dikts­son hafði ekki vit­neskju um það að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra, ætti félagið Wintris á Tortóla.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vissi ekki af því að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra ætti erlenda félagið Wintris á Tortóla. Þetta kom fram á þingi í morgun.

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hélt því fram í Morg­un­út­varp­inu í morgun að félag Önnu Sig­ur­laugar hafi alltaf verið öllum ljóst og aldrei hafi verið reynt að fela það. 

Bjarni var spurður um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi. Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, spurði Bjarna um það hvort hann hefði haft vit­neskju um málið. „Það hafði ég ekki,“ sagði Bjarni ein­fald­lega.

Óttarr tók fram að auð­vitað hefði verið heppi­legra að Sig­mundur Davíð væri sjálfur á staðnum og gæti svarað spurn­ingum þing­manna. Sig­mundur var hins vegar ekki í þingsalnum, og var ekki einn þeirra ráð­herra sem voru til taks í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma.

Bjarni sam­sinnti því að þetta væri óheppi­legt, og sagði jafn­vel óeðli­legt að spurn­ingum sem vörð­uðu Sigmund Davíð væri beint til hans. Það væri ekki gott að vera settur í þá stöðu að svara fyrir mál sem aðrir væru betur til þess fallnir að svara fyrir.

„Ég verð að segja fyrir mitt leyti að mér finnst að for­sæt­is­ráð­herra verði sjálfur að gera grein fyrir því hvernig þessu máli var fyr­ir­komið, og við hljótum síðan á end­anum að mæla þau mál út frá þeim lögum og reglum sem um efnið gilda.“ Hann hafi ekki séð að nokkuð benti til þess að lög eða reglur hefðu verið brotnar. Hann væri ekki í nokk­urri stöðu til að segja að eitt­hvað óeðli­legt hafi verið á ferð­inni. Hann væri viss um að Sig­mundur Davíð myndi svara fyrir málið á þingi ef eftir því væri leitað.

Bjarni sagði það ánægju­legt og mik­il­vægt að það sé sam­staða um siða­reglur í þing­inu. Ekki mætti gleyma því í hvaða til­gangi slíkar reglur væru settar. „Að gera grein fyrir hags­munum sem kunna að vera til staðar og mik­il­vægt er að liggi fyrir og eftir atvikum geta haft áhrif á fram­gang mála hér í þing­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár