Birgitta fær umboð til stjórnarmyndunar

Píratar bættu miklu við sig í alþingiskosningunum 29. október.
Píratar bættu miklu við sig í alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Birgitta Jóns­dóttir, full­trúi Pírata á Alþingi, hefur fengið umboð for­seta Íslands til þess að mynda rík­is­stjórn. Hún mætti ein til fundar við Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, að beiðni for­set­ans en hingað til hafa þrír full­trúar Pírata setið fundi fyrir Pírata. Guðni kynnti fjöl­miðlum þetta í Bessa­staða­stofu rétt í þessu.

Tveir stjórn­mála­leið­togar hafa áður fengið þetta umboð eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber, þau Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna.

Birgitta mætti á fund Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum klukkan 16:00. Guðni hefur í dag rætt við alla full­trúa stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi eftir kosn­ing­arnar. Flestir voru sam­mála um að ekki hefði verið reynt til þrautar að mynda rík­is­stjórn, hvort sem er til hægri eða vinstri.

Guðni seg­ist hafa beðið með að veita stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á ný eftir að upp úr slitn­aði í við­ræðum Bjarna og Katrínar. For­mönnum flokk­anna var þá frjálst að ræða sín á milli. Þá kom í ljós að enn væri vilji til þess að ræða stjórn­ar­myndun Pírata, Við­reisnar, Bjartar fram­tíðar, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Guðni óskaði eftir því að Birgitta myndi upp­lýsa sig um gang mála strax eftir helgi.

Katrín Jak­obs­dóttir telur að nú ætti að gera hlé á stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, tók undir það. Bæði sögð­ust þau vera orðin þreytt og vildu leyfa „ryk­inu að setj­ast“ eins og Benedikt komst að orði. Katrín hefur einnig viðrað hug­myndir um að mynduð verði þjóð­stjórn allra flokka og boðað til kosn­inga á ný.

Birgitta og Píratar hafa átt þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar undir verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Upp úr þeim við­ræðum slitn­aði, jafn­vel þó margir hafi verið þeirrar skoð­unar að ekki hafi verið full­reynt að sætta ólík sjón­ar­mið innan þessa hóps.

Píratar fengu 14,5 pró­sent atkvæða á lands­vísu í alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber. Aðeins Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn fengu fleri atkvæði, jafn­vel þó fjöldi þing­manna Pírata sé sá sami og Vinstri græn.

Vill ræða saman við hringborð

Birgitta sagði eftir fund sinn með for­set­anum að mik­il­vægt sé að hægt verði að þjóð­ar­sátt­ar­tón því framundan séu mjög erfið mál sem muni koma til kasta stjórn­mála­manna að leysa. Hún segir að ef hægt verði að ná þessum flokkum sem eru lengst til vinstri og lengst til hægri að þá séum við komin með „litla þjóð­stjórn“. Hún segir einnig að Pírtar muni ekki vilja stjórna við­ræðum við borð­senda, heldur ræða saman við hring­borð. Það sé í anda þeirra stjórn­ar­hátta sem Píratar til­einka sér.

Birgitta ætlar nú að hitta þing­flokk Pírata og mun halda áfram sam­tölum við for­ystu­menn flokka á Alþingi. Hún segir að Píratar geri ekki til­kall til for­sætis í rík­is­stjórn. Heldur sé mik­il­vægt að sætta ágrein­ings­mál áður en rætt sé um stóla.

Fréttin var upp­færð með ummælum Birgittu eftir fund­inn með for­seta klukkan 16:35.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár