Aftur á byrjunarreit eða inn í kjörklefann?

Stjórn­ar­myndun í Þýska­landi er runnin út í sand­inn. Þröstur Har­alds­son skrifar frá Berlín um stöð­una sem upp er komin.

Þegar hart­nær tveir mán­uðir voru liðnir frá kosn­ingum í Þýska­landi fóru stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður kristi­legra, frjáls­lyndra og græn­ingja út um þúfur seint í gær­kvöld. Rétt fyrir mið­nætti gengu full­trúar Frjáls­lynda flokks­ins (FDP) á dyr og sögð­ust ekki sjá neinn til­gang í að taka þátt í frek­ari við­ræðum.

Hér hafa stjórn­mála­menn glímt við stjórn­ar­myndun, rétt eins og íslenskir kollegar þeirra. Sitthvað er þó ólíkt í vinnu­brögðum og -aðferðum við stjórn­ar­mynd­un­ina. Hér virð­ist til dæmis ekk­ert liggja á. Kosn­ing­arnar fóru fram 24. sept­em­ber en þegar úrslit lágu fyrir fóru flestir bara í frí og ein­hverjir helltu sér út í aðra kosn­inga­bar­áttu því fylk­is­kosn­ingar fóru fram í Neðra-Saxlandi 15. októ­ber. Þar hélt meiri­hluti krata (SPD) og kristi­legra (CDU) velli en kratar urðu stærsti flokk­ur­inn og fengu því for­ystu­hlut­verkið, öfugt við það sem gerð­ist á lands­vísu.

Að þessum kosn­ingum loknum hófst það sem hér­lendir kalla Sondi­er­ung og útleggst á íslensku könn­un­ar­við­ræður. Þá þukla flokk­arnir hver á öðrum og leita uppi þol­mörkin í hinum ýmsu mála­flokkum. Þetta skeið varði í fjórar vikur og lauk nú fyrir helg­ina. Þá hófst úrslita­til­raun til þess að ná mála­miðl­unum og kom­ast að nið­ur­stöðu um stjórn­ar­sátt­mála. Berlín­ar­blaðið Tagesspi­egel kall­aði fund­inn sem boð­aður var á fimmtu­dag „nótt hinna löngu hnífa“ þótt ekki stæði til að úthella blóði heldur beita hnífum til að skera niður óhóf­legar vænt­ingar ein­stakra flokka.

Fund­ur­inn stóð í 15 klukku­stundir og lauk um fjög­ur­leytið á föstu­dags­morgni – án sam­komu­lags. Síðan hefur staðið yfir úrslita­til­raun til að ná sam­komu­lagi og flokk­arnir settu sér það mark­mið að ljúka við­ræðum fyrir kvöld­mat á sunnu­dag. Næðist ekki sam­komu­lag mætti jafn­vel búast við því að boðað verði til nýrra kosn­inga. Ólíkt því sem gerð­ist í íslensku kosn­ing­unum eru mögu­leik­arnir á myndun stjórnar afskap­lega fátæk­legir hér í Þýska­landi.

Forsetinn varar við

Það er fleira ólíkt með lönd­unum tveimur og eitt af því er staða þjóð­höfð­ingj­anna. Á Íslandi gegnir for­set­inn stóru hlut­verki í stjórn­ar­myndun, bæði bak­við tjöldin og framan við þau. Hér er for­set­inn að heita má stikk­frí meðan verið er að mynda stjórn. Hann hefur að vísu neyð­ar­vald til þess að senda þingið heim og boða til kosn­inga, en því er afar sjaldan beitt.

Það kom því tölu­vert á óvart þegar Frank-Walter Stein­meier var­aði stjórn­mála­menn­ina við því að þrýsta á um nýjar kosn­ingar í við­tali við Springer-blaðið Welt am Sonntag í gær. For­set­inn hvatti þá til að axla ábyrgð sína en varpa henni ekki aftur til kjós­enda og bætti því við að hann ætti bágt með að trúa því að flokk­arnir vildu taka áhætt­una af nýjum kosn­ingum. Þessi við­vörun er þeim mun hljómmeiri þar sem hún kemur frá mann­inum sem hefur áður­nefnt neyð­ar­vald í hendi sér. – Reynið meira, segir hann og und­an­skilur ekki Sós­í­alde­mókrata sem sitja hjá í þess­ari umferð við­ræðn­anna.

Án þátt­töku SPD yrði ekki mynduð stjórn, færi Jamaíku-til­raunin út um þúfur. Töl­fræði­lega væri ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að end­ur­vekja stjórn krata og kristi­legra, en Martin Schultz leið­togi flokks­ins þver­tekur fyrir þátt­töku flokks­ins í stjórn­ar­myndun. – Kjós­endur höfn­uðu GroKo í kosn­ing­unum, segir hann og á þar við Große Koalition, eða sam­steypu­stjórn stóru flokk­anna. Og ekki þarf að taka það fram að eng­inn flokkur vill koma nálægt AfD. Þetta tvennt þrengir stöð­una því veru­lega.

Engin leynd um málefnin

Þriðja atriðið sem greinir löndin að er að hér fjalla fjöl­miðlar mikið um mál­efnin sem flokk­arnir takast á um í við­ræð­unum og sýna þeim heil­mikla athygli. Heima neita samn­inga­menn að tjá sig um mál­efnin nema í svo almennum orðum að eng­inn er neinu nær hvað þeir eru að takast á um. Það sem er þó verra er útbreitt áhuga­leysi frétta­manna á öðru en því hverjir muni setj­ast í ráð­herra­stóla eftir að stjórnin er komin á kopp­inn.

Í þýskum fjöl­miðlum eru þessi mál til stöðugrar umfjöll­unar og full­trúar flokk­anna í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum taka fullan þátt í því. Eitt lítið dæmi: Í lok októ­ber efndi Tagesspi­egel til mál­þings um heil­brigð­is­mál þar sem heil­brigð­is­ráð­herra úr röðum kristi­legra mætti og greindi frá umræðum milli flokk­anna um mála­flokk­inn. Þar voru einnig full­trúar hinna flokk­anna og ræddu málin opin­skátt.

Blöðin segja líka frá því sem ger­ist á bak­við tjöldin í við­ræð­unum og vitna í menn undir nafni – og stundum nafn­leynd – um afstöðu og sam­skipti ein­stakra flokka og þátt­tak­enda í umræð­unum. Blaða­menn verða sér úti um skjöl sem verða til og birta úr þeim kafla, jafn­vel með breyt­ing­ar­til­lögum, athuga­semdum og mála­miðl­unum. Svona vinnu­brögð eru því miður fáséð í íslensku press­unni.

Innanhússvandi kristilegra

Það er líka nóg af ágrein­ings­efnum milli flokk­anna. Að nafn­inu til eru flokk­arnir þrír – Kristi­legir, Frjáls­lyndir og Græn­ingjar – en í við­ræð­unum eru þeir greini­lega fjórir því kristi­legir demókratar starfa í tveim sjálf­stæðum flokkum sem oft­ast hafa þó starfað saman. Annar þeirra heitir Christlicher Sozialer Union (CSU) og starfar ein­ungis í Bæj­ara­landi, hinn heitir Christlicher Demokratischer Union (CDU) og starfar í afgang­inum af Þýska­landi undir for­ystu Angelu Merkel kansl­ara.

Fyr­ir­fram var búist við að mestur ágrein­ingur yrði milli Græn­ingja og hinna flokk­anna, en um hann virð­ist að veru­legu leyti hafa tek­ist að ná mála­miðl­unum – þó ekki alveg eins og síðar greinir. Hingað til hefur mestur ágrein­ing­ur­inn verið á milli kristi­legu flokk­anna tveggja. Þar virð­ist eng­inn treysta öðrum yfir þrösk­uld. Ástæða þess er ekki síst það tap sem flokk­arnir tveir máttu þola í kosn­ing­unum. Við­ræð­urnar hófust raunar á því að for­maður CSU, Horst Seehofer, kom á fund Angelu í Berlín til að setja niður ágrein­ing um inn­flytj­enda­málin.

Bæj­ar­arnir í CSU voru ekki sáttir við Merkel þegar hún opn­aði landið í miðjum flótta­manna­straumi fyrir tveimur árum. Þeir rekja eigið tap og upp­gang hægripopúlist­anna í AfD til þeirrar ákvörð­unar og segj­ast hafa skilið hægri væng­inn eftir galop­inn þegar þeir eltu Merkel inn á miðj­una. Nú hafa þeir fengið því fram­gengt að þak er sett á fjölda inn­flytj­enda sem má ekki fara upp fyrir 200.000 á ári. Hins vegar var áfram tek­ist á um að hve miklu leyti eigi að hindra flótta­menn í því að sam­eina fjöl­skyldur sínar hér í landi.

Það sem gerir þennan ágrein­ing þó ill­leys­an­legri en ella er valda­bar­átta í for­ystu CSU. Í Bæj­ara­landi verður gengið til fylk­is­kosn­inga á næsta ári og staða Seehofer sem leið­toga veikt­ist veru­lega við fylgis­tapið í sam­bands­kosn­ing­unum. Þetta birt­ist meðal ann­ars í því að samn­inga­menn hér í Berlín van­treysta full­trúum CSU. Tagesspi­egel segir um þing­flokks­for­mann CSU, Alex­ander Dobrindt, að hann sé óút­reikn­an­legur og hefur eftir ónafn­greindum CDU-manni að eng­inn viti hverra erinda hann gangi í við­ræð­unum.

Vafasamar ástir og orkumál

Hitt stóra ágrein­ings­málið sem tek­ist er á um eru lofts­lags­málin. Á því leikur eng­inn vafi að Þjóð­verjar ætla sér að standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið sem stendur styrkum fótum eftir vel­heppn­aðan fund sem lauk á laug­ar­dag í Bonn. Það eru hins vegar leið­irnar sem fara á og hrað­inn á þeim vegi sem vefst fyrir samn­inga­mönnum hér í Berlín.

Þýska­land er í all­nokk­urri klemmu í orku­málum, ekki síst eftir að Angela Merkel ákvað að leggja niður öll kjarn­orku­ver í land­inu í kjöl­far kjarn­orku­slyss í Japan fyrir nokkrum árum. Tak­mark­aðir mögu­leikar og hæga­gangur í þróun umhverf­is­vænna orku­kosta hefur valdið því að Þjóð­verjar hafa neyðst til að grípa aftur til gam­allar auð­lindar sem ekki telst lengur stofu­hæf: kola­brennsla hefur auk­ist tals­vert að und­an­förnu.

Á hinn bóg­inn hefur einnig gengið hæg­ara en skyldi að draga úr orku­notkun Þjóð­verja, sér í lagi hefur bíla­iðn­að­ur­inn dregið lapp­irnar. Bíla­fyr­ir­tækin eru öfl­ugur þáttur í þýsku atvinnu­lífi enda ekki hvaða land sem er sem getur státað af bíla­teg­undum eins og Mercedes Benz, BMW, Porsche, Audi og Volkswagen, svo nokkrar séu nefndar. Síð­ast­nefnda fyr­ir­tækið var gómað með allt niðrum sig þegar í ljós kom að það hafði svindlað kerf­is­bundið á meng­un­ar­mæl­ingum bíla sinna. Þrátt fyrir þetta og fleiri hneyksli hafa þýskir stjórn­mála­menn haldið uppi ákaf­lega inni­legu sam­bandi við bíla­iðn­að­inn. Þær ástir verða þeir aug­ljós­lega að taka til end­ur­skoð­unar, ætli þeir að draga úr lofts­lags­á­hrifum þýskra bíla og standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið.

Engin lystireisa í augsýn

En eins og fram kom í upp­hafi er þessi draumur um Jamaíku-stjórn úr sög­unni. Eftir að frest­ur­inn var runn­inn út í gær­kvöld héldu menn áfram að funda fram undir mið­nætti þegar frjáls­lyndir gengu á dyr. Leiðtogi þeirra, Christian Lindner, sagði til­gangs­laust að hanga yfir þessu lengur, það næð­ist hvorki trún­aður né traust á milli manna, eng­inn vilji til að stjórna saman hefði skap­ast. Var á honum að skilja að deilan um sam­ein­ingu fjöl­skyldna flótta­manna hefði verið skerið sem við­ræð­urnar steyttu end­an­lega á. Það væri þó ekki það eina því frjáls­lyndir sökn­uðu margs sem þeir hefðu gert kröfur um í þeim drögum að stjórn­ar­sátt­mála sem orð­inn var til.

Hvað nú ger­ist er óljóst. Nýjar kosn­ingar eru senni­lega það síð­asta sem menn vilja en staðan er þröng eins og áður sagði. Nefndur hefur verið sá kostur að kristi­legu flokk­arnir mynd­uðu minni­hluta­stjórn en and­rúms­loftið í samn­inga­við­ræð­unum gerir þann kost hvorki fýsi­legan né lík­legan. Aðrir kostir eru vart grein­an­legir eins og staðan er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár