Ragnheiður Elín í stjórn Landsvirkjunar

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra iðn­aðar, er komin í stjórn Lands­virkj­unar. Í fyrsta sinn í sög­unni er stjórnin að meiri­hluta til skipuð konum.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar og viðskiptaráðherra, hefur verið skipuð í stjórn Landsvirkjunar.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, fyrr­ver­andi iðn­aðar og við­skipta­ráð­herra, hefur verið skipuð í stjórn Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, fyrr­ver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, er sest í stjórn Lands­virkj­unar. Haraldur Flosi Tryggva­son, lög­maður og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Orku­veitu Reykja­víkur, og Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor við jarð­vís­inda­deild Háskóla Íslands, koma líka ný inn í stjórn­ina, sem Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skipar.

Úr stjórn­inni fóru þau Jón Björn Hákon­ar­son, Helgi Jóhann­es­son og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, sem höfðu öll setið í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2014.

Álf­heiður Inga­dóttir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, og Jónas Þór Guð­munds­son halda áfram í stjórn­inni, en Jónas er stjórn­ar­for­maður.

Varamenn í stjórn Lands­virkj­unar eru: Ásta Björg Pálma­dóttir, Páley Borg­þórs­dóttir, Lárus Elíasson, Ragnar Ósk­ars­son og Albert Svan Sig­urðs­son.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár