Rafhlöðuending iPhone 12 mini ekki fyrir kröfuharða

Tækni­varpið fór yfir fréttir vik­unnar en í þætti dags­ins er meðal ann­ars fjallað um upp­færslur ýmis­konar.

iPhone 12 mini er með tals­vert lak­ari raf­hlöðu­end­ingu en hinir sím­arnir sem nýlega komu út frá Apple og munu ekki henta kröfu­hörðum. Þetta kemur fram í nýjasta hlað­varps­þætti Tækni­varps­ins en einn þátta­stjórn­and­inn Atli Stefán Yngvason fjall­aði um reynslu sína af sím­anum, sem og Apple Watch SE með LTE. Hann telur að úrið sé „nokkuð góður díll þannig séð þar sem það sem þú færð ekki hefur ekki það mikil áhrif á upp­lifun“.

Tækni­varpið greinir frá því að sam­fé­lags­mið­ill­inn Instagram hafi upp­fært við­mót sitt og að flestum líki ekki við þær breyt­ingar. „Reels“ sé komið í miðj­una neðst og plús takk­inn færður upp. Greini­lega sé verið að leggja áherslu á „reels“, sem sé svar Instagram við Tik tok.

Einnig er bent á í þætt­inum að Twitter hafi upp­fært hjá sér og bjóði nú upp á „fleets“ sem eru sjálf­eyð­andi tíst með 24 tíma nið­ur­taln­ingu, sem kallað sé „Twitter Stories“.

[adspot]

Ætla ekki að uppfæra

[links]Þá greinir Tækni­varpið frá því að Big Sur Mac OS upp­færslan sé komin út og ætla þátta­stjórn­endur ekki að upp­færa sínar tölvur. „Ein­hverjir orðrómar eru um að eldri Macbook tölvur stoppi í miðri upp­færslu en það virð­ist mögu­lega vera skortur á þol­in­mæði. Þetta er stór útlits­upp­færsla og ekki allar góðar. For­rita­táknin eru til dæmis for­ljót.“

Ótal margar umfjall­anir skullu á YouTube í vik­unni þegar fjöl­miðla­banni Apple á nýjum Mac tölvum var aflétt. Samkvæmt Tækni­varp­inu eru dóm­arnir nær ein­róma: „Þetta eru fárán­lega góðar tölvur. Hraðar og með langa raf­hlöðu­end­ingu. Macbook Air með M1 örgjörva nær svip­uðum afköstum og Macbook Pro 16 með Intel örgjörva (sem er tvö­falt dýr­ari tölva). Macbook fer létt með 4K mynd­bands­klipp­ingar og getur loks­ins spilað tölvu­leiki almenni­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár