Ég myndi hlaupa yfir sjó af glerbrotum

Í nýút­kominni skáld­sögu minni, Svana­fólkið, er aðal­per­són­unni falið það verk­efni að rann­saka [kyn]hegðun og líðan kvenna í land­inu. Nið­ur­stöður birt­ust ekki í bók­inni en koma fyrir augum les­enda Stund­ar­innar. Bergþóra Snæ­björns­dóttir rit­höf­undur situr í þetta skipti fyrir svörum. Í haust kom út fyrsta skáld­saga hennar, Svíns­höfuð, en áður hefur hún gefið út tvær ljóða­bækur og búið til gjörn­inga með tvíeyk­inu Wunderkind Collective ásamt Rakel McMahon mynd­list­ar­konu. Svíns­höfuð hefur hlotið mikla athygli og lof og er hvort tveggja til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Fjöru­verð­laun­anna.

Bergþóra – Bergþóra er fædd 1985, nam sál­fræði og rit­list við Háskóla Íslands og útskrif­að­ist með MA í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun í árs­byrjun 2018 –  hvert eft­ir­far­andi afla hafa haft – mestu – áhrif á val þitt á lífs­leiðum: guð, sam­fé­lagið, þú sjálf?

Ég sjálf og sam­fé­lagið og guð. 

Hvort eft­ir­far­andi afla hafa – meiri – áhrif á líf þitt: guð eða sam­fé­lagið?

Líklega sam­fé­lagið því ég hef látið álit ann­arra stjórna mér og er auð­mótuð eins og leir af utan­að­kom­andi áhrifum.

Hvert þess­ara afla telur þú hafa – betri – áhrif á líf þitt: guð, sam­fé­lagið, þú sjálf?

Guð og ég vitna í orð sem vin­kona mína fer stundum með: „Please God, protect me from the things I want.“ Ég veit ekki bein­línis hvað ég á við með guð en mér finnst eins og guð sé það sem svarar þegar ég reyni að hlusta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár