Týndu stelpurnar sem urðu vitni að morði

Týndu Stelp­urnar er kvik­mynd eftir Lovísu Láru Hall­dórs­dóttur sem var tekin upp síð­ast­liðið sumar. Aðal­per­sónur mynd­ar­innar eru stúlkur á fjórt­ánda ald­ursári sem verða vitni að morði. Þegar þær vin­konur fara að skyggn­ast undir yfir­borðið í kjöl­far þess voveif­lega atburðar verður þeim fljótt ljóst að ekki allt sem sýn­ist.

Lovísa Lára Hall­dórs­dóttir hefur unnið að mörgum verk­efnum, til að mynda gerði hún stutt­mynd­irnar Smá­stirni og Hrellir sem báðar hafa verið sýndar á kvik­mynda­há­tíðum um heim allan og unnið til verð­launa. Lovísa er að sögn með mörg járn í eld­inum, til dæmis er hún að skipu­leggja fyrstu íslensku hryll­ings­mynda­há­tíð­ina, Frost­biter sem verður á Akranesi helg­ina 24. – 26. nóv­em­ber. Hún vinnur einnig að því að klára sína fyrstu kvik­mynd í fullri lengd; Týndu Stelp­urnar. Kjarninn hitti Lovísu og tók hana tali.

Hver er sögu­þráður kvik­mynd­ar­innar ‘Týndu stelp­urnar’?

„Týndu stelp­urnar fjallar um Láru og Telmu sem hafa verið bestu vin­konur síðan þær voru litlar. Þær koma af ólíkum heim­ilum og virð­ast vera algjörar and­stæður en eiga það sam­eig­in­legt að vilja sleppa frá örmum fjöl­skyldna sinna. Til að losna frá leið­in­legum hvers­dags­leik­anum stytta stelp­urnar sér stundir með því að njósna um nágranna sína og búa til sögur. Þegar stelp­urnar verða vitni að morði fara þær í að rann­saka málið sjálfar. Þær vita þó ekki að sú ákvörðun mun ekki aðeins reyna á vin­áttu þeirra heldur einnig stefna lífi þeirra í hættu.

Týndu Stelp­urnar er bíó­mynd sem fjallar um for­vitni, æsku og vin­áttu. Myndin er tekin upp í þannig stíl að allt myndefni er tekið upp af per­són­unum í mynd­inni, og er því frá­brugðin öllu sem hefur áður komið í íslenskt bíó. Myndin er spennu/drama en þó með mik­inn húmor og hjarta.“

Að hvaða ald­urs­hópi er kvik­myndin miðuð?

„Kvik­myndin Týndu stelp­urnar er ekki miðuð að neinum sér­stökum ald­urs­hópi, þó myndin fjalli um tvær ungar stelpu er tek­ist á við mjög alvar­leg mál­efni þannig að hún ein­skor­ast ekki bara við yngra fólk.“

Hvernig gengur fyrir unga lista­menn að fjár­magna íslenskar kvik­myndir í dag?

„Fyrir nýtt kvik­mynda­gerða­fólk er frekar erfitt að fá fjár­magn fyrir íslenskar kvik­myndir því þarf maður að hugsa svo­lítið út fyrir rammann, til dæmis með því að not­ast við hóp­fjár­mögn­un­ar­síður á borð við Karolina­fund.com. Á þeirri síðu er einmitt hægt að styrkja kvik­mynd­ina Týndu Stelp­urnar þar sem enn á eftir að fjár­magna eft­ir­vinnsl­una á henni.“

Hægt er að styrkja kvik­mynd­ina Týndu Stelp­urnar hér.

Hægt er að nálg­ast upp­lýs­ingar um fyrstu íslensku hryll­ings­mynda­há­tíð­ina, Frost­biter, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár