Vilja kanna viðhorf almennings til hvalveiða Íslendinga í fimm löndum

Þingmenn þriggja flokka á Alþingi vilja láta kanna við­horf almenn­ings í Þýska­landi, Frakk­landi, Bret­landi, Kanada og Banda­ríkj­unum til áfram­hald­andi hval­veiða Íslands.

Átta þing­menn þriggja flokka hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um könnun á við­horfi almenn­ings í Þýska­landi, Frakk­landi, Bret­landi, Kanada og Banda­ríkj­unum til áfram­hald­andi hval­veiða Íslend­inga.

Fyrsti flutn­ings­maður er Þor­gerður K. Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar og for­maður flokks­ins. Með henni eru þing­menn úr Viðreisn, Sam­fylk­ing­unni og Pírötum: Hanna Katrín Frið­riks­son, Jón Steindór Valdi­mars­son, Þor­steinn Víglunds­son, Helga Vala Helga­dóttir, Logi Ein­ars­son, Halldóra Mogensen og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir.

Þau vilja að utan­rík­is­ráð­herra láti kanna við­horf almenn­ings í fyrr­nefndum löndum til áfram­hald­andi hval­veiða Íslend­inga og hvaða áhrif áfram­hald­andi veiðar geti mögu­lega haft á sölu á íslenskum vörum á mörk­uðum í þessum löndum, ferða­menn sem koma til Íslands eða hafa hug á því og vöru­merkið Ísland.

[adspot]

Mikilvægt að taka ímynd landsins alvarlega

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni er bent á að þann 19. febr­úar síð­ast­lið­inn hafi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra und­ir­ritað reglu­gerð sem heim­ilar áfram­hald­andi veiðar á lang­reyði og hrefnu í land­helgi Íslands til næstu fimm ára. Að mati flutn­ings­manna er um að ræða meiri háttar ákvörðun sem ástæða sé til að und­ir­byggja betur áður en leyfi til hval­veiða verði veitt þeim fyr­ir­tækjum sem hyggja á veiðar á þessu tíma­bili.

„Und­an­far­inn ára­tug hefur kast­ljós heims­ins beinst í auknum mæli að Íslandi og hefur það haft í för með sér gjör­breyt­ingu á mik­il­vægi þess að taka ímynd lands­ins og virði hennar alvar­lega. Ferða­þjón­usta sem atvinnu­grein á margt undir þess­ari ímynd og hefur hún tekið fram úr sjáv­ar­út­vegi og áliðn­aði sem stærsta útflutn­ings­grein lands­ins. Árið 2010 komu hingað um 500.000 ferða­menn en árið 2018 var sá fjöldi orð­inn 2,2 millj­ónir. Hlutfall tekna ferða­þjón­ust­unnar af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­innar hefur vaxið úr 26,4 pró­sent í 42 pró­sent á ára­bil­inu 2013 til 2017 sam­kvæmt mæl­ingum Hagstofu Íslands,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá kemur fram að mik­ill meiri­hluti ferða­manna leiti sér upp­lýs­inga um Ísland á net­inu eða í gegnum sam­fé­lags­miðla. Þannig megi finna 10.370.725 myndir með myllu­merk­inu #Iceland á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram sem stofn­aður var í lok árs 2010. Ímynd Íslands á alþjóða­vísu og hug­myndir ferða­manna sem hingað koma um landið séu sam­ofnar þeim breyt­ingum og hraða á upp­lýs­inga­miðlun sem átt hefur sér stað und­an­far­inn ára­tug með til­komu sam­fé­lags­miðla. Það sé því mik­il­vægt fyrir ferða­þjón­ust­una að gerð sé ítar­leg athugun á við­horfi þeirra þjóða sem helst koma hingað til hval­veiða og hvort þau við­horf komi til með að hafa áhrif á vilja fólks til að ferð­ast til lands­ins.

Ekki sé síður mik­il­vægt að kanna hug þess­ara þjóða á því hvaða áhrif hval­veiðar hefðu á vilja þeirra til að kaupa vörur frá Íslandi. Þegar stjórn­völd og Samtök atvinnu­lífs­ins und­ir­rit­uðu sam­starfs­samn­ing um átak í þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við útflutn­ings­fyr­ir­tæki til að auka slag­kraft þeirra á erlendum mörk­uðum kom fram hjá fram­kvæmda­stjóra SA að auka þyrfti útflutn­ing um einn millj­arð króna á viku til að standa undir hag­vaxta­spám.

Miklir hagsmunir fyrir íslenskan sjávarútveg

Samkvæmt þing­mönn­unum sem leggja fram til­lög­una er ljóst að áfram­hald­andi lífs­gæðum á Íslandi verður ekki við­haldið nema með því að stór­auka útflutn­ing á íslenskum vörum og þjón­ustu. „Nú þegar eru komnar fram vís­bend­ingar um að hval­veiðar geti haft áhrif á val neyt­enda á íslenskum vörum. Í könn­unum sem „Iceland Naturally“, sem er mark­aðs- og kynn­ing­ar­verk­efni aðila með hags­muni á mörk­uðum í Norður-Ameríku, hefur gert reglu­lega á við­horfum Banda­ríkja­manna og Kanada­manna til hval­veiða er ljóst að veiðar hafa veru­leg áhrif á við­horf þess­ara þjóða gagn­vart hval­veiði­þjóðum og vörum frá þeim. Í því sam­bandi verður að hafa í huga að sterk­ustu fisk­út­flutn­ings­mark­aðir Íslands eru m.a. í þeim löndum þar sem flutn­ings­menn óska eftir að við­horf til hval­veiða verði könnuð.“

Íslenskur sjáv­ar­út­vegur hafi jafn­framt mikla hags­muni af því að ímynd Íslands sem sjálf­bærrar fisk­veiði­þjóðar sem styðst við rann­sóknir og nútíma­legar tækni­fram­farir í veiðum og vinnslu sé ekki teflt í tví­sýnu á þessum mik­il­vægu mörk­uðum. Í nýlegri skýrslu Íslands­banka um íslenskan sjáv­ar­út­veg komi fram að þrátt fyrir að magn fersk­fiskaf­urða hafi dreg­ist saman um þriðj­ung frá árinu 2000 þá hafi útflutn­ings­verð­mæti fersk­fiskaf­urða auk­ist um 82 pró­sent yfir sama tíma­bil. Þessi breyt­ing sýni vel að sjáv­ar­út­veg­ur­inn, sem útflutn­ings­grein, eigi mögu­leika á að ná fram enn meiri verð­mætum með því að leggja áherslu á gæði fremur en magn. Neyt­enda­venjur á þessu mörk­uðum hafi fest í sessi breyt­ingar und­an­farna ára­tugi þar sem stærri hópur neyt­enda sé til­bú­inn að greiða hærra verð fyrir vörur sem eru umhverf­is­vænar og fram­leiddar sam­kvæmt ströng­ustu kröfum um mat­væla­fram­leiðslu og dýra­vel­ferð.

„Í þessu sam­hengi er mik­il­vægt að huga vel að því að ímynd sem byggð er upp með mark­aðs­her­ferðum og á sam­fé­lags­miðlum getur eyði­lagst eða stór­lega skað­ast nán­ast á auga­bragði ef réttar aðstæður skap­ast í flóknu sam­spili til­finn­inga og skila­boða sem fara manna á milli á inter­net­inu. Stjórn­völdum ber skylda til að safna grein­ar­góðum upp­lýs­ingum um áhrif ákvarð­ana sinna á mik­il­væg­ustu við­skipta­mörk­uðum okkar. Ákvörðun um áfram­hald­andi hval­veiðar er veiga­mikil og sterkar vís­bend­ingar eru uppi um að stærstu útflutn­ings­greinum Íslands stafi ógn af þeirri ákvörðun. Því er nauð­syn­legt að kanna áhrif áfram­hald­andi hval­veiða á ímynd lands­ins og vöru­merkið Ísland áður en ný veiði­leyfi verða gefin út,“ segir í grein­ar­gerð­inni með þings­á­lykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár