Neyðarástand á bráðamóttöku og gjörgæslurýmum fækkað á síðustu árum

Verði ekki brugð­ist við verður sjúk­lingum „áfram stefnt í hættu á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans því þar ríkir neyð­ar­á­stand,“ segir stjórn Sjúkra­liða­fé­lags Íslands. Gjör­gæslu­rýmum hefur fækkað á síð­ustu árum þrátt fyrir fjölgun íbúa og ferða­manna.

Í gær lágu 13 sjúklingar með COVID-19 á Landspítalanum og tveir á gjörgæsludeild.
Í gær lágu 13 sjúk­lingar með COVID-19 á Land­spít­al­anum og tveir á gjör­gæslu­deild. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Stjórn Sjúkra­liða­fé­lags Íslands skorar á for­menn stjórn­ar­flokk­anna að taka á mál­efnum bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sem nú standa yfir. Í gær birtu tugir sjúkra­liða sem starfa á bráða­mót­tök­unni opið ákall til stjórn­valda. Þar var lýst starfs­um­hverfi sem eng­inn starfs­maður á að þurfa að starfa í, segir í ályktun stjórnar Sjúkra­liða­fé­lags­ins. „Þegar öryggi sjúk­linga og vel­ferð þeirra er stefnt í hættu skulu stjórn­völd hlusta. Sjúkra­liðar, læknar, hjúkr­un­ar­fræð­ingar og annað starfs­fólk er sam­mála um að ástandið er óboð­legt.“

[adspot]

Stjórn félags­ins segir að allir lands­menn njóti góðs af öfl­ugri bráða­mót­töku en að sama skapi bitni það á þeim öllum þegar neyð­ar­á­stand ríki á deild­inni.

Almenn­ingur á Íslandi vill að tekið verði á mál­efnum bráða­mót­tök­unnar „og allir stjórn­mála­flokkar lands­ins hafa talað fyrir slíkum aðgerðum,“ segir í ályktun Sjúkra­liða­fé­lags­ins. „Fyrst og fremst vantar meira fjár­magn til að tryggja nauð­syn­lega mönnun og rétt flæði innan spít­al­ans til fram­tíðar.“

Rík ástæða til að bregðast við

Þar segir enn fremur að þegar sjúk­lingar fái ekki þá fag­legu þjón­ustu sem þeim beri sam­kvæmt lögum sé „rík ástæða til að bregð­ast við, ann­ars verður sjúk­lingum áfram stefnt í hættu á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans því þar ríkir neyð­ar­á­stand“. Stjórnin segir að nú er nóg komið og brýnna aðgerða þörf.

Staðan á bráða­mót­tök­unni er ekki sú eina sem um hefur verið fjallað í fjöl­miðlum upp á síðkastið. Ástandið á gjör­gæsl­unni, nú þegar COVID-sjúk­lingum er enn einu sinni að fjölga á spít­al­anum vegna upp­sveiflu í far­aldr­inum, hefur einnig verið í kast­ljós­inu.

Ólíku saman að jafna

Far­sótt­ar­nefnd Land­spít­al­ans sá sig knúna til að birta sam­an­burð á aðstöð­unni á Land­spít­al­anum nú og árið 2009 í kjöl­far orða Svan­hildar Hólm, fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs, í við­tali við RÚV um helg­ina. Í við­tal­inu bar hún saman ástandið á Land­spít­al­anum núna og fyrir tólf árum er svínaflensan reið yfir.

„Hvers vegna þessir far­aldrar eru bornir saman er óljóst enda ólíku saman að jafna,“ segir í til­kynn­ingu far­sótt­ar­nefndar sem birt var á vef Land­spít­al­ans í gær. Þar er svo farið í gegnum marga þætti til sam­an­burðar. Eitt mest slá­andi atriðið sem far­sótt­ar­nefndin nefnir er að árið 2009 voru ríf­lega 900 rúm á Land­spít­ala (285/100.000 íbúa) og 18 gjör­gæslu­rými. Þau eru nú rúm 640 (175/100.000 íbúa) og gjör­gæslu­rýmin 14.

[adspot]

Nefndin bendir einnig á að COVID-19 hefur staðið í 20 mán­uði en far­aldur svínaflensunnar var við­fangs­efni á Land­spít­ala í 75 daga.

Svínaflensa er inflú­ensa sem er vel þekktur sjúk­dómur en COVID-19 er nýr og áður óþekktur sjúk­dómur. Bólu­setn­ing við svínaflensu hófst strax með góðum árangri en bólu­setn­ingar við COVID-19 hófust tæpu ári eftir að far­ald­ur­inn hófst og árang­ur­inn er ekki jafn góður af þeim bólu­setn­ingum.

Við svínaflensu var svo unnt að nota veiru­lyfið Tamiflu sem dró úr veik­indum og kom jafn­vel í veg fyrir þau. Slík lyf eru ekki fáan­leg við COVID-19, bendir far­sótt­ar­nefndin á.

Í svínaflensu­far­aldr­inum lögð­ust um 130 sjúk­lingar inn á spít­al­ann og þurfti 21 gjör­gæslu­með­ferð. Það sem af er COVID-19 far­aldri hafa 492 sjúk­lingar lagst inn á Land­spít­ala og 87 þeirra þurft gjör­gæslu­með­ferð, sumir oftar en einu sinni.

Nefndin segir enn fremur að áhrif svínaflensunnar á sam­fé­lagið hafi verið mun minni en COVID-19, þar sem ekki þurfti að beita rakn­ingu, ein­angrun og sótt­kví. „Þessi stað­reynd hefur umtals­verð áhrif á starf­semi Land­spít­ala nú.“

Þá segir nefndin að það sé ekki rétt munað hjá Svan­hildi að ekki hafi þurft að fara í sér­stakar ráð­staf­anir á Land­spít­ala vegna svínaflensunnar. „Starf­semi spít­al­ans tók þeim breyt­ingum þá sem nauð­syn­legt var í far­sótt eins og nú en þær stóðu aðeins yfir í fáeinar vikur, sem kann að skýra að ein­hverjir muni ekki þá alvar­legu stöðu sem uppi var á þeim tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár