Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Barcelona

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Þetta gigg fer nú ekk­ert í sögu­bæk­urnar og ég á ekki eftir að muna eftir deg­inum á dán­ar­beð­inu. En þetta var alls ekk­ert slæmt svo sem. Krádið var alveg til í að láta skemmta sér en við þurftum aðeins að hafa fyrir því að draga þau í stuðið. Það gekk samt bara alveg ágæt­lega. Fyrir gigg tékk­uðum við á tækj­unum okkar. Þessi bilun hjá Böbba frá í fyrra­dag er enn óút­skýrð, tækin virk­uðu full­kom­lega í dag og það er svo sem ágætt. Það er samt alltaf eitt­hvað óþægi­legt að vita af ein­hverjum draug í græj­unum, eitt­hvað sem við vitum ekki hvað er og getur þá vænt­an­lega hent aftur. Þetta hékk samt inni í dag. Gott. Við tókum sándið hjá Baldri í gegn og það tók ekki langan tíma. Nú sándar hann eins og ljónið og hefur tekið gleði sína á ný. Það er mjög gott því þegar eitt­hvað þessu líkt hangir yfir litla bróður mínum verður hann þrúg­andi og erf­iður gagn­vart flestum sem umgang­ast hann. En þetta er betra svona og nú er þessi nýi tækja­kostur far­inn að virka mjög svo ljóm­andi vel. Þvílíkur munur að þurfa ekki að böðl­ast með risa­stórar magn­ara­stæður inn og út af tón­leik­stöðum dag­lega.

[caption id="attachment_11360" align="alignleft" width="225"] Hákarl­inn virð­ist alltaf gnýsta tönnum.[/caption]

Ég fékk tón­leikaplanið í hend­urnar áðan og það var svo­lítið yfir­þyrm­andi. Við vorum að klára gigg númer fjögur og þegar maður horfir niður eftir list­anum eru djöf­ull mörg gigg eftir. Ekki að við höfum ekki vitað það fyrir, en að sjá þetta svona á prenti gerir þetta allt miklu stærra. Það verða komin jól þegar við komum heim.

Við áttum frí í gær. Við lentum rút­unni í Barcelona í gær­morgun og tókum henni stöðu í þartil­gerðri geymslu, svona bíla­geymslu sem hýsir stóra bíla sem eru á ferð­inni. Þetta er svona rútu­hótel. Elu­veitie-rútan var þar líka en þó hafði helm­ing­ur­inn af geng­inu farið á fólks­hótel. Þetta gera þau víst gjarnan á frí­dögum var mér sagt. Rúss­arnir voru hvergi sjá­an­legir og voru líka á gisti­heim­ili skilst mér. Við byrj­uðum dag­inn á því að rölta niður á strönd­ina sem var skammt frá rútu­hót­el­inu. Við fórum fimm Skálmeld­ingar, Ég, Baldur bróðir, Þrábi, Johnny og Gben. Flexi og Böbbi höfðu hoppað út úr rút­unni áður en við komum á áfanga­stað til þess að fá sér tattú. Til við­bótar við okkur fimm röltu með okkur Robert og Marci. Þeir tveir fóru í sjó­inn, við Íslend­ing­arnir ekki. Ég held að við bara kunnum það ekki. Fljót­lega eftir að þeir stukku út í fór reyndar að rigna og þessi strand­ar­ferð leyst­ist upp. Við röltum aftur upp í bæ og fundum veit­inga­stað. Vondan veit­inga­stað. Alveg merki­legur and­skoti hversu margir í þessum heimi búa til vondan mat og rukka fyrir það. Eftir það skut­umst við í versl­un­ar­mið­stöð. Ég keypti mér sokka og brækur, sem og tvennar buxur. Mig vant­aði fyrst og fremst buxur til að vera í dags dag­lega á túrnum en að auki fann ég svartar buxur sem mér hugn­að­ist. Frá upp­hafi hef ég spilað svart­klæddur með Skálmöld en brydd­aði upp á þeirri nýbreytni nýverið að spila í grænum. Eins hégóm­lega og það kann að hljóma hefur það verið hálf­und­ar­legt og jafn­vel óþægi­legt. Ég vígði nýju spila­bux­urnar í kvöld. Þetta er betra svona. Við versl­uðum alls­konar til við­bótar, til að mynda fullt af rauð­víni.

Eftir smá­vegis stopp í rút­unni héldum við í sædýra­safnið hér í borg. Þar fyrir utan hittum við Flexa og Böbbs hvar þeir komu nýflúraðir. Flexi setti sinn klaufa­bárð á fram­hand­legg­inn, Böbbi hinn á öxl­ina. Jebb, klaufa­bárð­ana. Þessa tékk­nesku sem við horfðum á í sjón­varp­inu í æsku. Jón Páll húð­flúr­meist­ari er búsettur hér í borg um þessar mundir og þeir höfðu lænað þessu upp fyr­ir­fram. Ég veit ekki hvað ég get sagt. Vonandi tekur Baldur almenni­legar myndir af þessum lista­verkum. Þetta er auð­vitað alger­lega fárán­leg aðgerð, en hólífokk hvað þetta er fyndið, snilld­ar­legt og bara glæsi­legt í alla staði. Almátt­ugur minn!

Sædýra­safnið var bara svona meh. Dýr í búrum, ég veit það ekki. Þetta á ekki við mig. Við sáum samt alls­konar, hákarla og skötur og kol­krabba og þorska. Nema senni­lega ekki þorska. Við kláruðum þetta örugg­lega og héldum svo í hverfi þarna rétt hjá sem Jón Páll hafði bent strák­unum á. Og þar römbuðum við á veit­inga­stað.

[caption id="attachment_11361" align="align­right" width="257"] Það hafa sést tan­að­ari kálfar.[/caption]

Þau seldu svona eins­konar pizzur. Nema ekki alveg pizzur. Svona fer­kant­aða brauðpramma með alls­konar fersku góð­gæti á. Við pönt­uðum okkur alls­konar svo­leiðis, sem og sitt­hvað fleira, kjöt­meti, græn­meti og almennt góð­meti. Þetta var allt borið fram af konu á miðjum aldri í fal­legum holdum. Hún var með bert á milli og rass sem ég væri alveg til í að prófa að sitja á. Þarna eyddum við þónokkrum tíma því hreint út sagt var mat­ur­inn yfir­þyrm­andi góður. Við náðum að skola niður eins og 4 flöskum af rauð­víni í leið­inni, sem var þó aðeins upp­hafið. Þvílíkur matur. Ég á eftir að fara þarna aftur, það full­yrði ég. Eftir þessa guða­mál­tíð röltum við aðeins um þetta fal­lega hverfi og tókum svo taxa á rútu­hót­elið. Þar sátum við fram­eftir kvöldi og drukkum. Rauðvín var þemað. Við töldum 13 flöskur þegar kvöldið var búið og þá lifðum við Böbbi einir. Okkur þótti þá til­hlýði­legt að klára kvöldið tveir inni í rútu og setja hvor í okkur sína þrjá bjór­ana. Mér er óskilj­an­legt að ég hafi verið þó þetta hress í dag. Ég reyndar piss­aði á að giska sjálf­lýsandi rauðu en þar fyrir utan var heilsan góð.

Ég vakn­aði fyrir utan tón­leika­stað­inn upp úr hádeg­inu í dag og við tókum fljót­lega rölt. Hér í kring var ekk­ert merki­legt og við náðum ekki einu sinni að kom­ast í inter­net. Þetta gæti orðið svona, blogg­færslum gæti seinkað endrum og eins þegar net­sam­band er lítið eða ekk­ert. Svo var bara þetta venju­lega, sánd­tékk með risa­stóran trommu­pall í bak­grunni, vondur matur, örlít­ill blundur í koj­unni og gigg. Núna er klukkan hálf12 og við erum allir í rútu nema Böbbi og Baldur. Jón er í koju og les, Þráinn er að spila Angry Birds, Flexi spilar Football Manager, Gunni ein­hverja nýald­ar­út­gáfu af Space Invaders og ég 2014-útgáf­una af blogg­leik Skálmaldar. Robert er sof­andi, sem kemur aðeins á óvart því hann hafði hótað því að leggja mjög snemma af stað. Við spilum í Madrid á morgun og þangað er dágóður spotti. Við erum þegar búnir að hlaða dót­inu okkar í kerruna og til­búnir að fara um leið og hann vaknar.

Hér er ekk­ert stress. Hér er bara gleði og bróð­erni og sam­staða. Ég ætla ekki sleppa mér lengra í væmn­ina strax, það eru nokkrar vikur til þess.

Meist­ara­legt dags­ins: Klaufa­bárðar.

Sköll dags­ins: Netleysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár