Smitum og innlögnum fjölgað í Danmörku

Sjáanleg áhrif aflétt­inga sótt­varna­að­gerða í nágranna­lönd­unum eru mis­jöfn sem helg­ast m.a. af hlut­falli bólu­settra og fjölda sýna sem tekin eru. Í Englandi og Danmörku, sem fyrst riðu á vaðið, eru blikur á lofti.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Er öllum tak­mörk­unum vegna COVID-19 var aflétt hér á landi í sumar kom ber­lega í ljós að þrátt fyrir útbreidda bólu­setn­ingu getur fjöldi alvar­legra veikra, full­bólu­settra sem óbólu­settra, orðið það mik­ill að alvar­legt ástand skap­ist á sjúkra­húsum lands­ins. Vís­bend­ingar um svip­aða þróun má nú sjá í Danmörku, þar sem smitum og inn­lögnum hefur fjölgað frá því að öllum tak­mark­andi aðgerðum var aflétt í byrjun sept­em­ber og á Englandi þar sem flestu var aflétt um mitt sumar.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra. Í því fjall­aði hann um þrjá kosti sem stjórn­völd stæðu nú frammi fyrir varð­andi sótt­varna­að­gerðir inn­an­lands. Rík­is­stjórnin ákvað í morgun að aflétta þegar á mið­nætti tak­mark­andi aðgerðum að mestu og stefnir á að þeim öllum verði aflétt eftir mánuð.

[adspot]

Í minn­is­blaði sínu fer Þórólfur m.a. yfir stöð­una á far­aldr­inum í nágranna­lönd­unum.

Danmörk

Í Danmörku er þátt­taka í bólu­setn­ingum svipuð og á Íslandi. Þar var öllum tak­mark­andi aðgerðum aflétt í byrjun sept­em­ber vegna góðrar stöðu far­ald­urs­ins og útbreiddrar þátt­töku í bólu­setn­ingum. Fyrstu tvær vik­urnar eftir aflétt­ingu fækk­aði dag­legum fjölda til­fella en frá 22. sept­em­ber hefur smitum fjölgað á ný úr rúm­lega 300 upp í 700-800 á dag. „Fjöldi inn­lagna á sjúkra­hús hefur hins vegar verið nokkuð stöð­ugur en síð­ustu dag­ana hefur þeim fjölgað nokkuð,“ skrifar Þórólfur.

Í Danmörku eru tekin mörg sýni dag­lega (PCR) fyrir COVID-19 og er fjöld­inn sam­bæri­legur þeim fjölda sem tek­inn er á Íslandi. „Á þess­ari stundu er því ekki hægt að segja með vissu hver end­an­legur árangur af aflétt­ingum verður.“

Noregur

Í Noregi var öllum tak­mörk­unum inn­an­lands vegna COVID-19 aflétt 25. sept­em­ber í ljósi góðrar stöðu far­ald­urs­ins og útbreiddrar bólu­setn­ingar. Frá þeim tíma hefur ekki orðið vart aukn­ingar á fjölda dag­legra til­fella eða inn­lagna á sjúkra­hús, skrifar Þórólfur. Talsvert færri sýni eru tekin hlut­falls­lega í Noregi á degi hverjum en á Íslandi og í Danmörku.

„Tíminn á því eftir að leiða í ljós hvort aukn­ing verður þar í fjölda smita og inn­lagna því a.m.k. 2-3 vikur geta liðið frá aflétt­ingu aðgerða þar til breyt­inga á fjölda smita verður vart.“

Svíþjóð

Í Svíþjóð var svo til öllum tak­mörk­unum inn­an­lands vegna COVID-19 aflétt 29. sept­em­ber og munu frek­ari til­slak­anir taka gildi 1. nóv­em­ber. Á þeim rúm­lega tveimur vikum sem liðnar eru frá því að tak­mörk­unum var aflétt hefur ekki orðið vart aukn­ingar á dag­legum fjölda smita né inn­lagna á sjúkra­hús vegna COVID-19.

Þórólfur bendir á að þátt­taka í bólu­setn­ingu í Svíþjóð gegn COVID-19 sé heldur minni en á Íslandi en lík­legt er að fleiri hafi smit­ast fyrr í í far­aldr­inum í Svíþjóð og „betra nátt­úru­legt ónæmi sé því í sænsku sam­fé­lagi. Afleið­ingar af aflétt­ingu aðgerða eru þannig ekki að fullu komnar fram þar sem að ein­ungis rúm­lega tvær vikur eru liðnar frá aflétt­ingu þeirra.“

Finnland

Í Finn­landi eru enn tölu­verðar sam­fé­lags­legar tak­mark­anir í gangi vegna COVID-19 en stefnt er að aflétt­ingu allra tak­mark­ana þegar þátt­taka í bólu­setn­ingu hefur náð 80 pró­sentum. Þar hefur dag­legum fjölda til­fella fjölgað tals­vert síð­ast­liðnar þrjár vikur eða frá rúm­lega 300 upp í rúm­lega 600 án þess að fleiri hafi þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús.

England

Í Englandi var mörgum sam­fé­lags­legum tak­mörk­unum aflétt í júlí. Þar hefur náðst að full bólu­setja um 78 pró­sent allra 12 ára og eldri en þrátt fyrir það hefur greindum smitum fjölgað umtals­vert und­an­farnar vikur þótt færri sýni séu tekin á hverjum degi. Einnig hefur inn­lögnum á sjúkra­hús fjölgað sem og dauðs­föllum af völdum COVID-19.

Ekkert fulbólusett barn greinst með COVID-19

Í dag hafa um 75 pró­sent fólks á Íslandi verið full­bólu­sett og um 90 pró­sent allra 12 ára og eldri. Um 70 pró­sent barna á aldr­inum 12-15 ára hafa fengið að minnsta kosti eina sprautu bólu­efnis og um 65 pró­sent verið full­bólu­sett.

[links]Af þeim 5.800 ein­stak­lingum sem greinst hafa með COVID-19 í bylgj­unni sem hófst í byrjun júlí voru 58 pró­sent full­bólu­sett. Sótt­varna­læknir bendir í minn­is­blaði sínu á að þetta hlut­fall hafi lækkað síð­ustu vik­urnar og það sem af er októ­ber voru 42 pró­sent nýgreindra full­bólu­sett, 57 pró­sent óbólu­sett og 1 pró­sent hálf­bólu­sett. Ekkert full­bólu­sett barn á aldr­inum 12-15 ára hefur greinst með sjúk­dóm­inn.

„Við sam­an­burð á hlut­falli smita meðal óbólu­settra og bólu­settra þá kemur í ljós að líkur á smiti hjá óbólu­settum eru þrefalt meiri en hjá bólu­settum og líkur á inn­lögn á sjúkra­hús eru fimm sinnum hærri,“ skrifar Þórólfur í ítar­legri sam­an­tekt sinni. Þá séu vís­bend­ingar um að veik­indi séu að öllu jöfnu væg­ari hjá bólu­settum.

Þó að tek­ist hafi að full­bólu­setja 75 pró­sent lands­manna og tæp­lega 90 pró­sent allra 12 ára og eldri, þá er, að mati Þórólfs, ekki hægt að segja að ónæmi í sam­fé­lag­inu gegn kór­ónu­veirunni sé orðið það mikið að lítil sem engin hætta sé á útbreiddu smiti. „Þar sem að engin merki eru um að COVID-19 sé að hverfa úr heim­inum þá verður það mikil áskorun fyrir íslensk stjórn­völd á kom­andi miss­erum að takast á við COVID-19 án þess að skerða rétt­indi almenn­ings ekki um of.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár