Hvers vegna eru svona fáir í sóttkví?

Ýmsar ástæður eru fyrir því að færri eru hlut­falls­lega í sótt­kví núna miðað við fjölda í ein­angrun en oft varð raunin í fyrri bylgjum far­ald­urs­ins.

„Það eru ýmsar ástæður sem við teljum vera fyrir þessu en eigum ekk­ert endi­lega von á að þetta verði staðan áfram,“ segir Hjördís Guð­munds­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi almanna­varna, spurð hvers vegna svo fáir hafi verið í sótt­kví á land­inu miðað við fjöld­ann í ein­angrun sam­kvæmt tölum COVID.is. Hlut­fallið hefur vissu­lega sveifl­ast til og frá í fyrri bylgjum en sem dæmi voru um 4 í sótt­kví á hvern þann sem var í ein­angrun í fyrstu viku októ­ber í fyrra er þriðja bylgjan var að hefja sig til flugs. Í gær var þetta hlut­fall 1,4. Í dag hefur hlut­fallið breyst eftir að 500 manns voru sendir í sótt­kví á einum sól­ar­hring – á sama tíma og um 100 smit greindust.

Hjördís telur að árs­tím­inn sé lík­lega helsta ástæðan fyrir þessu lága hlut­falli nú. Það sé sum­ar­frí í skólum og sömu­leiðis hefur fólk verið í fríum frá íþrótta­æf­ingum í sumum hóp­í­þróttum. „Önnur ástæða er sú,“ segir Hjördís, „að mjög margir hafa svo verið í sum­ar­fr­íum og ekki hitt vinnu­fé­laga og því síður sent marga með sér í sótt­kví.“

Fram hefur komið í fréttum að smitrakn­ing­arteymið hafi ekki undan því að hringja í alla sem útsettir hafa verið fyrir smiti og þurfa að fara í sótt­kví. Flestir fái núna sms-skila­boð. Þá gagn­ist rakn­ing­arappið einnig í þessum til­gangi.

Hjördís segir að almanna­varnir vinni nú smitrakn­ing­una í mik­illi sam­vinnu við vinnu­staði þar sem fólk hefur þurft að fara í sótt­kví. Reynt sé að senda aðeins þá sem þurfa í sótt­kví en aðra, sem hafa ekki verið í mik­illi umgengni við smit­aðan ein­stak­ling, í smit­gát.

Smitgát er að sögn Hjör­dísar notuð þegar ein­stak­lingur hefur fengið til­kynn­ingu um mögu­lega útsetn­ingu fyrir COVID-19 en ekki er talin þörf á sótt­kví. Einnig þegar ein­stak­lingur hefur umgeng­ist eða verið á sama stað og ein­hver sem síðar grein­ist með COVID-19.

Þá hafa reglur um sótt­kví breyst, m.a. hvað bólu­setta ein­stak­linga varðar. Þeir þurfa ekki lengur að fara í sótt­kví þótt að ein­hver á heim­il­inu sé í sótt­kví, svo dæmi sé tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár