Fyrir alla sem vilja komast í Stafastuð

Bára og Eyrún eru góðar vin­konur úr Hlíðunum sem hafa verið að dunda sér við spila­gerð frá því seint í sumar. Afrakst­ur­inn er stafa­spilið Stafa­stuð – frá A til Ö sem mun koma út núna fyrir jólin. Bára bjó spilið upp­haf­lega til fyrir 4 ára dóttur sína en þegar hún ákvað að gefa það út fékk hún Eyrúnu til sam­starfs og þær hafa síðan unnið að því að bæta og þróa spilið áfram. Eyrún hand teiknar allar mynd­irnar í spil­inu og sér um upp­setn­ingu á því. Kjarninn hitti Báru og Eyrúnu og tók þær tali.

Hvernig virkar Stafa­stuð?

„Eitt af því skemmti­lega við Stafa­stuð er að það er hægt að spila það á svo marga vegu. Í leik­regl­unum sem fylgja spil­inu eru til­lögur að 4 spilum/leikjum. Eftir að spilið kemur út munu svo birt­ast fleiri til­lögur að spilum og leikjum á Facebook síðu Stafa­stuðs. Það mun því verða úr nógu að velja. Vilji fólk kynna sér spilið betur getur það kíkt á Karolina fund þar sem allar helstu upp­lýs­ingar er að finna og þar er einnig hægt að næla sér í spilið til 4. des­em­ber.“

Hvaða ald­urs­hópur teljið þið að hefði mest gaman að því að spila spilið?

„Spilið er fyrir 3 ára og eldri og 1-4 leik­menn. Spilið hentar bæði börnum sem eru að kynn­ast stöf­unum og þeim sem eru lengra komin.“

Er spilið hugsað ein­göngu sem skemmtun eða sjáið þið fyrir ykkur að það muni einnig stuðla að auk­inni þekk­ingu leik­manna?

Bára svarar: „Spilið er fyrst og fremst hugsað sem góð skemmtun fyrir börn og fjöl­skyldur þeirra. En ef ég tek dóttur mína sem dæmi þá var mjög gaman að sjá hvað áhugi hennar og kunn­átta á stöfnum jókst eftir að hún fór að spila Stafa­stuð. Spilið snýst auð­vitað um staf­ina og það er ósk­andi að það verði börnum bæði til gagns og gam­ans.“

„Það er fátt nota­legra en góð sam­veru­stund yfir skemmti­legu spili og við vonum að Stafa­stuð eigi eftir að gleða ein­hverja unga stafa- og spila­á­huga­menn þarna úti. Þessa dag­ana bíðum við spenntar eftir því að fá spilið úr prentun. Þá tekur við að gera það til­búið fyrir sölu og koma því í búðir. Allir sem vilja kom­ast í Stafa­stuð um jólin ættu því að geta nælt sér í ein­tak.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár