Milljarða sekt

Hvað verður nú um TV2 í Danmörku? Borgþór Arn­gríms­son skrifar um fjöl­miðla­lands­lagið í Danmörku.

Það ger­ist sann­ar­lega ekki á hverjum degi að nor­ræn sjón­varps­stöð fái millj­arða sekt. Danska sjón­varps­stöðin TV2 fékk fyrir nokkrum dögum sekt, sem gæti numið jafn­gildi 45 millj­arða íslenskra króna. Ef svo færi að sjón­varps­stöðin yrði að greiða sekt­ina færi hún í þrot.

Danir ættu ekki að vera í vand­ræðum með að finna eitt­hvað við sitt hæfi þegar þeir setj­ast fyrir framan heim­il­is­alt­arið, einsog sumir kalla sjón­varpið. Að minnsta kosti þrjá­tíu stöðvar eru í boði, sumar mjög sér­hæfðar, aðrar svæð­is­bundnar. Tvær sjón­varps­stöðvar draga til sín lang­flesta áhorf­endur. Annars vegar DR, Danmarks Radio, eins og það heitir fullu nafni og hins vegar TV2. Þessar tvær stöðvar, báðar í rík­i­s­eigu, reka hvor um sig nokkrar sjón­var­prásir þarsem allir eiga að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi. DR var stofnað árið 1925, hét þá Stats­radi­of­on­ien og var, eins og nafnið gefur til kynna, útvarps­stöð. Eitthvað sem hét sjón­varp var ekki til. Sjón­varps­út­send­ingar DR hófust árið 1951 og voru fram til árins 1967 í svart hvítu (sauða­lit­unum). Þetta var löngu fyrir daga þeirrar tækni sem við þekkjum í dag: ef Danir vildu t.d. sjá sjón­varps­frétt­irnar urðu þeir að vera sestir í sófann klukkan 18.30, það voru engir mögu­leikar til að sjá efnið eftir á, eng­inn sarpur og þvíum­líkt!

TV2 kemur til sögunnar

Þótt Danir væru almennt (sam­kvæmt könn­unum) mjög sáttir við DR urðu þær raddir hávær­ari með árunum sem þótti óeðli­legt að í land­inu væri ein­ungis eitt fyr­ir­tæki, eða stofnun, sem sæi lands­mönnum fyrir öllu sjón­varps­efni, og einnig nán­ast öllu útvarps­efni. Stjórn­mála­mönnum, hvar í flokki sem þeir stóðu, þótti sjón­varpið iðu­lega draga taum and­stæð­ing­anna í umfjöllun sinni, þessi umræða er enn til staðar og reyndar hreint ekki ein­skorðuð við Danmörku. Danska þingið, Fol­ket­inget, sam­þykkti árið 1986 lög um starf­semi sjón­varps­stöðvar, sem fékk síðar nafnið TV2. Strax eftir að lögin voru sam­þykkt hófst und­ir­bún­ingur starf­sem­innar. Ákveðið var að höf­uð­stöðvar TV2 skyldu vera í Óðins­véum á Fjóni. Það var skil­yrði margra þing­manna fyrir stuðn­ingi við frum­varpið að þessi nýja sjón­varps­stöð yrði vestan Stóra­beltis, með því næð­ist ákveðið mót­vægi við DR sem er með höf­uð­stöðvar í Kaup­manna­höfn. Hins vegar var ljóst að allra hluta vegna yrði TV2 að vera með starfs­stöð í höf­uð­borg­inni og enn­fremur á Jótlandi, þar urðu Árósar fyrir val­inu.

Afnotagjald og auglýsingar

Í lög­unum um TV2 var áskilið að fyr­ir­tækið yrði að stórum hluta fjár­magnað með aug­lýs­inga­tekjum en fengi einnig hluta þess afnota­gjalds sem DR inn­heimtir árlega. Afnota­gjaldið, sem bundið er í lögum, mið­ast við heim­ili, fjöldi heim­il­is­manna skiptir ekki máli, upp­hæðin ætíð sú sama. Versl­anir og fyr­ir­tæki höfðu árum saman hamrað á mik­il­vægi þess að hægt yrði að aug­lýsa í sjón­varpi, lang sterkasta fjöl­miðli lands­ins, en slíkt var ekki í boði hjá DR, lögum sam­kvæmt. Í lög­unum um TV2 var miðað við að sá hluti afnota­gjalds­ins sem kæmi í hlut stöðv­ar­innar færi til rekst­urs frétta­stofu, annað yrði fjár­magnað með aug­lýs­inga­tekjum. Ekki var gert ráð fyrir að TV2 ann­að­ist fram­leiðslu sjón­varps­efnis, það yrði keypt af sjálf­stæðum fram­leið­endum.

Afnota­gjaldið er, eins og áður sagði, bundið við heim­ili, ekki fjölda íbúa. Árið 2017 er gjaldið kr. 2.492.- (tæp­lega 41 þús­und íslenskar), með sölu­skatti sem nemur tæpum 500 krónum. DR fær í sinn hlut kr. 1661.- (ca. 27.000 íslenskar) TV2 fær kr. 231.- (ca 3.800 íslenskar) sem renna í dag óskiptar til lands­hluta­stöðva TV2. Afgang­ur­inn rennur til minni útvarps- og sjón­varps­stöðva og ýmissa verk­efna.

Yngri en 18 ára, sem eru með lög­heim­ili í for­eldra­húsum, eru und­an­þegnir gjald­inu. Eft­ir­launa­fólk getur, sam­kvæmt til­teknum reglum, sótt um lækkun, eða nið­ur­fell­ingu, gjalds­ins.

Meiri áhersla á léttara efni

Stjórn­endur TV2 lögðu frá upp­hafi áherslu á að vera ,,létt­ari“ sjón­varps­stöð en DR. Ein­kunn­ar­orðin væru ,, í þjón­ustu fólks­ins“ frekar en ,,í þjón­ustu sam­fé­lags­ins“ sem voru ein­kunn­ar­orð DR. Á þeim 29 árum sem liðin eru frá stofnun TV2 hefur margt breyst. Framboð sjón­varps­efnis orðið marg­falt meira og mögu­leik­arnir til að sjá og heyra sömu­leiðis. DR og TV2 eru í dag risarnir á dönskum sjón­varps­mark­aði og segja má að milli þeirra ríki ákveðið jafn­ræði og hvor sjón­varps­stöð um sig sendir nú út á nokkrum rásum. DR hefur haft meiri burði, pen­inga­lega, til fram­leiðslu kostn­að­ar­samra þátta en jafn­framt róið á ,,létt­ari“ mið. Á hinn bóg­inn hefur TV2 hreint ekki ein­skorðað sitt efn­is­val við ,,létt­meti“ og sé litið yfir dag­skrá aðal­sjón­varps­rása þess­ara tveggja stöðva er mun­ur­inn ekki ýkja­mik­ill, en sé horft til allra rása er breiddin í efn­isvali meiri hjá DR, enda rás­irnar fleiri.

Hugmyndir um sölu TV2

Eftir að rík­is­stjórn Anders Fogh Rasmus­sen (Venstre) tók við völdum árið 2001 lýsti stjórnin áhuga sínum á að einka­væða TV2. Ekkert varð þó úr þeim áformum en þess í stað gerður lang­tíma­samn­ingur við TV2 sem tryggði stöð­inni ákveðið fjár­magn (til­tekna pró­sentu­tölu afnota­gjalds­ins) en legði stöð­inni jafn­framt ákveðna skyldur á herðar (public-service forpligtelse). Hug­myndir um sölu og einka­væð­ingu TV2 hafa síðan að mestu legið í lág­inni, þangað til fyrir skömmu. Mette Bock menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur dustað rykið af hug­mynd­unum um sölu TV2 og að und­an­förnu margoft rætt þau mál sem hún full­yrðir að njóti stuðn­ings meiri­hluta á þing­inu. En svo birt­ist skyndi­lega ljón (kannski væri rétt­ara að segja fíll!) í veg­inum.

Sekt sem gæti riðið TV2 að fullu

Fyrir nokkrum dögum var greint frá því að Evr­ópu­dóm­stóll­inn hefði kveðið upp úrskurð í máli sem árum saman hefur verið ,,í píp­unum“.

Rekja má upp­haf máls­ins til þess að dreif­ing­ar­fyr­ir­tækið SBS Broadcasting lagði, árið 2000, fram kvörtun til Fram­kvæmda­stjórnar ESB vegna þess að TV2 hefði fengið styrk frá danska rík­inu. Styrk sem ekki sam­ræmd­ist reglum ESB, upp­hæðin nam tæpum tveimur millj­örðum króna. Mál þetta er mjög flókið og engin leið að gera því skil í stuttum pistli sem þessum en síð­ast­lið­inn fimmtu­dag kvað Evr­ópu­dóm­stóll­inn í Lux­em­borg upp úrskurð sinn, úrskurð sem ekki verður áfrýjað. TV2 fékk á árunum 1995 – 2002 sér­stakan styrk frá danska rík­inu. Það er í sjálfu sér ekki ólög­legt en brotið felst hin­vegar í því að ESB var ekki til­kynnt um þennan styrk fyr­ir­fram. Þótt mörgum kunni að finn­ast þetta lít­il­vægt lítur Evr­ópu­dóm­stóll­inn ekki svo á. En þetta er ekki allt, dreif­ing­ar­fyr­ir­tækin Viasat og Discovery Network hafa fyrir löngu síðan höfðað mál, sem nú er fyrir Eystri- lands­rétti í Kaup­manna­höfn. Þessi tvö fyr­ir­tæki krefj­ast tæpra tveggja millj­arða danskra króna vegna rétt­inda­brota TV2.

Hvað það verður veit nú enginn

Á þess­ari stundu veit eng­inn hvert fram­haldið verður. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa hvatt rík­is­stjórn­ina til að leggja hug­myndir um sölu TV2 á hill­una en menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann sagði í sjón­varps­við­tali að risa­sektin breytti engu um þær fyr­ir­ætl­anir. Ljóst er að TV2 ræður með engu móti við að greiða sektir og bætur, sem geta ef allt fer á versta veg, numið allt að fjórum millj­örðum króna (ca. 65 millj­örðum íslenskum). Vinni TV2 málið fyrir Eystri- lands­rétti sleppur sjón­varps­stöðin við að borga Viasat og Discovery Network . Eftir stendur þá sekt Evr­ópu­dóm­stóls­ins, tveir millj­arðar sem er upp­hæð sem TV2 ræður tæp­ast við. Stjórn­endur sjón­varps­stöðv­ar­innar eru bjart­sýnir, ummæli fram­kvæmda­stjór­ans í við­tali við danskt dag­blað fóru hins­vegar fyrir brjóstið á mörgum þing­mönnum ,,ríkið reddar okkur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár