Konur í atvinnulífinu styðja styttingu vinnuvikunnar - heildarsamtök atvinnulífsins ekki

Samtök atvinnu­lífs­ins leggj­ast gegn frum­varpi Björns Levís Gunn­ars­sonar Pírata um stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Samtök kvenna í atvinnu­líf­inu eru hins vegar hlynnt breyt­ing­unni.

Samtök atvinnu­lífs­ins leggj­ast gegn frum­varpi Björns Levís Gunn­ars­sonar Pírata um stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Samtök kvenna í atvinnu­líf­inu eru hins vegar hlynnt breyt­ing­unni.

[links]Björn Leví, ásamt öðrum í þing­liði Pírata, hefur lagt fram frum­varp til laga um stytt­ingu vinnu­vik­unnar, úr 40 klukku­stundum í 35 klukku­stundir. Þannig verði að jafn­aði unnar 7 klukku­stundir á dag í dag­vinnu frá mánu­degi til föstu­dags, í stað 8 klukku­stunda. Frum­varpið hefur verið lagt fram nokkrum sinnum áður.

Vinnum mikið - framleiðum lítið

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að í OECD skýrslum sem mæli jafn­vægi á milli vinnu og frí­tíma sé Ísland í 33. sæti af 38 þjóðum. Í tölum OECD um með­al­árs­fjölda vinnu­stunda er Ísland í 25. sæti árið 2016 með 1.883 vinnu­stundir á móti 1.363 vinnu­stundum í Þýska­landi þar sem vinnu­tím­inn mælist stystur og 1.410 í Danmörku sem er með næst­stystan vinnu­tíma.

„Fram­leiðni á Íslandi er undir með­al­tali OECD-landa, þrátt fyrir langan vinnu­dag og mun verra vinnu- og einka­lífs­hlut­fall en þjóðir sem eru með meiri fram­leiðni en Íslend­ingar og þrátt fyrir að Ísland er ríkt af auð­lindum. Í Frakk­landi, þar sem vinnu­vikan hefur verið 35 stundir síðan árið 2000, er fram­leiðni tals­vert hærri en á Ísland og er landið mun ofar í mati á jafn­vægi milli vinnu og frí­tíma. Danmörk, Spánn, Belgía, Holland og Noregur eru efst á þessum lista. Í þessum löndum er vinnu­tím­inn styttri en á Íslandi en fram­leiðnin meiri og greidd hærri laun nema á Spáni. Ekki er því hægt að útskýra meiri fram­leiðni né hærri laun með löngum vinnu­degi. Þvert á móti bendir margt til þess að styttri vinnu­dagur leiði til meiri fram­leiðni og auk­inna lífs­gæða,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Aukði jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Í umsögn Félags kvenna í atvinnu­líf­inu segir að félagið styðji frum­varpið með þeim rök­semdum sem fram koma í grein­ar­gerð­inni. Brýnt sé að tryggja að vinnu­fram­lag verði hið sama þrátt fyrir styttan vinnu­tíma og ávinn­ing beggja, það er atvinnu­rek­enda og launa­þega. Félagið segir að einnig þurfi að end­ur­skil­greina vinnu­tíma dag­vinnu og yfir­vinnu á þann hátt að vinnu­fram­lag verði ekki ein­göngu bundið við á hvaða tímum dags eða á hvaða dögum vinnu­fram­lag sé innt af hendi. Félagið segir núgild­andi kerfi barn síns tíma og ekki vel til þess fallið að aðlaga íslenskan vinnu­markað að nýjum störfum fram­tíð­ar­innar.

Þá segir FKA að æski­legt sé að atvinnu­rek­endum og laun­þegum verði gef­inn kostur á að semja sín á milli um styttri vinnu­tíma í kjara­samn­ings­við­ræðum eins og venju­bundið sé.

Félagið segir að lokum að draga verði fram í dags­ljósið jákvæð keðju­verk­andi áhrif sem fel­ast í styttri vinnu­viku, og þar megi til dæmis nefna styttri við­veru­tíma ungra barna á leik­skólum og aukið jafn­vægi á milli vinnu og einka­lífs.

Lögin til óþurftar og ætti að fella þau brott

Í umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins er fyrri afstaða sam­tak­anna, frá því frum­varpið var lagt fram árið 2016, ítrekuð. Samtökin lýsa full­kominni and­stöðu við frum­varpið. Segja þau vinnu­tíma samn­ings­at­riði í kjara­samn­ingum og óeðli­legt að Alþingi hafi afskipti af þessum mik­il­væga hluta þeirra. Lögin sjálf, um 40 stunda vinnu­viku, séu barn síns tíma og þjóni engum til­gangi. Í þeim felist hins vegar mik­ill ósveigj­an­leiki sem tak­marki svigrrúm samn­ings­að­ila til breyt­inga og skaði sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs. „Lögin eru því til óþurftar og Alþingi ætti að fella þau brott.“

SA segir vinnu­tíma hér á landi hafa styst um 4 klukku­stundir á viku á und­an­förnum tveimur ára­tugum og um 12 til 14 klukku­stundir sé horft til und­an­geng­inna fjög­urra ára­tuga. Þessi mikla breyt­ing sé til marks um bætt lífs­kjör þar sem svig­rúm hafi skap­ast fyrir mun styttri vinnu­tíma en áður. Aukin fram­leiðni í atvinnu­líf­inu hafi knúið þessa þróun áfram. Því svig­rúmi sem fram­leiðni­aukn­ing hafi skapað til bættra lífs­kjara hafi verið skipt milli beinnar kaup­mátt­ar­aukn­ingar og styttri vinnu­tíma. „Rök­stuðn­ingur með frum­varp­inu er illa grund­aður í ljósi þeirra afdrifa­ríku afleið­inga sem sam­þykkt þess hefði og hin stutta grein­ar­gerð frum­varps­ins ein­kenn­ist af órök­studdum alhæf­ingum og mis­skiln­ingi,“ segja sam­tökin.

Þannig verði að miða við virkan vinnu­tíma á Íslandi, en ekki greiddan vinnu­tíma, sem feli í sér neyslu hlé og séu eigin tíma starf­manna. „Algeng­asti umsam­inn virkur viku­legur vinnu­tími í kjara­samn­ingum er 37 stundir (40 greiddar stundir að frá­dregnum 2 klst. og 55 mín­útum í greidd neyslu­hlé). 37 stund­irnar eru meg­in­reglan hjá verka­fólki, iðn­að­ar­mönnum og opin­berum starfs­mönnum. Hjá félags­mönnum versl­un­ar­manna­fé­laga sem stunda afgreiðslu­störf er virkur vinnu­tími 36,5 stundir og 36,25 stundir hjá skrif­stofu­mönnum. Flestir vakta­vinnu­samn­ingar eru með ákvæði um styttri virkan vinnu­tíma en 37 stundir á viku, margir þeirra mun styttri.“

SA segja að ef frum­varpið yrði sam­þykkt á Alþingi myndi lög­boð­inn virkur vinnu­tímai stytt­ast úr 37 stundum í 32 og tíma­kaup, eða laun fyrir unna vinnu­stund, hækka í einu vet­fangi um 14 pró­sent. „Launa­kostn­aður atvinnu­lífs­ins myndi aukast mun meira því ólík­legt er að heild­ar­vinnu­tími myndi stytt­ast við lög­fest­ing­una. Greiddum yfir­vinnu­stundum myndi því fjölga álíka mikið og dag­vinnu­stund­unum fækk­aði. Ef það yrði raunin myndi launa­kostn­aður atvinnu­lífs­ins aukast um 26-28% í einu vet­fangi,“ segja Samtök atvinnu­lífs­ins. Slíkt myndi hafa miklar og afdrifar afleið­ingar á gengi krón­unnar og verð­bólgu.

Ótímabært inngrip

Alþýðu­sam­band Íslands segir skipu­lag vinnu­tíma flókið mál, sem bæði er átt við í lögum og kjara­samn­ingum. ASÍ er þeirrar skoð­unar að breyt­ing á lögum um 40 stunda vinnu­viku, feli í sér ótíma­bært inn­grip í heild­ar­end­ur­skoðun aðila vinnu­mark­aðar um skipu­lag vinnu­tíma.

Við gerð kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði árið 2015 var gerð bókum um við­ræður um skipu­lag vinnu­tíma þar sem meðal ann­ars kom fram að aðilar stefni að breyt­ingum á skil­greindum vinnu­tíma og nálgist þannig skipu­lag sem algeng­ast er á Norð­ur­löndum. Meg­in­mark­mið breyt­ing­anna sé að stuðla að fjöl­skyldu­vænum vinnu­mark­aði með styttri heild­ar­vinnu­tíma, sem jafn­framt geti falið í sér hag­ræð­ingu og ein­földum launa­kerfa á öllum vinnu­mark­aðnum. Fjallað verði um upp­töku „virks vinnu­tíma“ og end­ur­skoðun álags­tíma­bila og álags­greiðslna vegna vinnu utan dag­vinnu­tíma­bils. „Álags­greiðslur vegna vinnu utan skil­greinds dag­vinnu­tíma­bils eru hærri hér á landi en almennt ger­ist á Norð­ur­lönd­unum og hefur það m.a. þau áhrif að dag­vinnu­laun eru lægra hlut­fall heild­ar­launa. Meg­in­mark­mið breyt­inga verður að auka hlut dag­vinnu­launa í heild­ar­launum og hvetja til umræðu á vinnu­stöðum um bætt skipu­lag vinnu­tíma og aukna fram­leiðni,“ segir í bók­un­inni.

Bætt skipu­lag geti einnig stuðlað að styttri vinnu­tíma og þar með fjöl­skyldu­vænni vinnu­mark­aði. Vinnu­hópar voru skip­aðir af aðilum sam­komu­lags­ins til að vinna að und­ir­bún­ingi bryet­inga á vinnu­tíma­á­kvæðum kjara­samn­inga, sem ekki hafa lokið vinnu sinni.

Foreldrar leikskólabarna og umboðsmaður barna styðja frumvarpið

Samtök for­eldra leik­skóla­barna í Reykja­vík, styður stytt­ingu vinnu­vik­unnar. Í umsögn þeirra kemur fram að styttri vinnu­dagur myndi gagn­ast yngstu börn­unum mest, dag­vist­un­ar­tími þeirra myndi stytt­ast og sam­vera með for­eldrum aukast. Styttri vinnu­dagur gæti líka boðið upp á meiri sveigj­an­leika á vinnu­mark­aði og það gæti stytt dag­vist­un­ar­þörf barna enn meir. „Þetta er enn meira aðkallandi nú, á tímum mann­eklu í dag­vistun barna hjá dag­for­eldrum og leik­skólum, en var fyrir tveimur árum. Ýmsar rann­sóknir, inn­lendar og erlendar, benda á að börn þurfa mikla teng­ingu við þau sem næst þeim standa, á unga aldri. Tengl­sa­myndun yrði því meiri milli for­eldra og barna sem fengju bæði meiri tíma saman og meiri gæða­tíma því þau væru ekki eins þreytt, í lok styttri vinnu­dags, og nú er. Til­rauna­verk­efni um stytt­ingu vinnu­tíma hafa gefið góða raun fyrir starfs­fólk leik­skóla hjá Reykja­vík­ur­borg. Dregið hefur úr veik­indum og starfs­á­nægja auk­ist. Ánægt starfs­fólk leik­skóla hefur jákvæð áhrif á börn á leik­skólum, með meiri stöð­ug­leika,“ segir í umsögn­inni.

Umboðs­maður barna tekur í sama streng í sinni umsögn og telur áherslur frum­varps­ins um stytt­ingu vinnu­tíma vera í sam­ræmi við rétt barna að fá að njóta sam­vista við for­eldra sína og umhyggju og umönn­unar þeirra. Að mati umboðs­manns barna er gríð­ar­lega mik­il­vægt að búa til sem flest tæki­færi til jákvæðra sam­vista for­eldra og barna sem stuðla að betri sam­skiptum og tengslum. „Á vinnu­mark­aði eru víða gerðar kröfur um mikil afköst og mikla við­veru starfs­manna og mörgum for­eldrum reyn­ist því erfitt að sam­ræma atvinnu- og fjöl­skyldu­líf með til­heyr­andi álagi og streitu. Langur vinnu­dagur for­eldra hefur jafn­framt í för með sér langa við­veru barna í leik- og grunn­skólum, með til­heyr­andi álagi á börnin, sem þá njóta jafn­framt færri gæða­stunda með for­eldrum sínum.“ Umboðs­maður barna fagnar því frum­varp­inu og vonar að það verði sam­þykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár