„Horfinna manna skrá“ á teikniborði lögreglu

Drög hafa verið lögð að sér­stakri „horfinna manna skrá“ lög­reglu og tengja hana við LÖKE. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var vopnuð í meiri­hluta verk­efna í fyrra. Konur eru fimm pró­sent lög­reglu­manna rík­is­lög­reglu­stjóra, er fram kemur í árs­skýrslu RLS.

43 óupplýst mannshvörf hafa verið skráð hjá lögreglu síðan árið 1970.
43 óupp­lýst manns­hvörf hafa verið skráð hjá lög­reglu síðan árið 1970. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Búið er að leggja drög að „horfinna manna skrá“ í LÖKE-kerf­inu, en hún hefur ekki verið til staðar. Þannig er skráin sýni­leg lög­reglu­mönnum um land allt svo unnt sé að vinna með hana. Skráin verður sam­keyrð nýju for­riti sem lög­reglan notar við að bera kennsl á lík og lík­ams­hluta, Plass­Data, svo halda megi þar utan um upp­lýs­ingar um lífs­sýni, tann­fræði­legar upp­lýs­ingar og fleira. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir árið 2015.

Oftar vopnuð en ekki

Sér­sveitin var vopnuð í meiri en helm­ingi verk­efna sinna á síð­asta ári. Sér­sveitin fór í 198 sér­veit­ar­verk­efni árið 2015 og var vopnuð í 104 til­fellum. Fram kemur í árs­skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir árið 2015 að lang­flest verk­efnin séu tengd ein­hvers konar aðstoð. Næst­fjöl­menn­asti flokk­ur­inn er kennsla. 22 sprengju­til­vik komu upp árið 2015 og 75 vopna­til­vik. Flest verk­efni sér­sveit­ar­innar sneru að almennum hand­tökum, heim­il­is­of­beldi og hefð­bundnu eft­ir­liti.

Mikill kynjahalli

Af 79 lög­reglu­mönnum rík­is­lög­reglu­stjóra eru ein­ungis fjórar konur. Það gerir um fimm pró­sent starfs­manna. Af 22 yfir­lög­reglu­þjónum sem starfa hjá lög­regl­unni er engin kona. Af 124 varð­stjórum eru sjö konur, sem gerir um fimm pró­sent. Hlutfall kvenna er hæst meðal almennra lög­reglu­manna, en það eru þær um 20 pró­sent, eða 54 konur af 205 lög­reglu­mönnum.

Tvö alvarleg bílslys

Lög­reglan lenti tvisvar sinnum í alvar­legum bílslysum á síð­asta ári. Það fyrra varð þegar breytt jeppa­bif­reið hjá lög­regl­unni á Aust­ur­landi valt við Dreka í Holu­hrauni með þeim afleið­ingum að bif­reiðin var dæmd óvið­gerð­ar­hæf. Bif­reiðin var í umsjá lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra er óhappið varð. Seinna slysið varð þegar lög­reglu­bif­reið sér­sveitar lenti í umferð­ar­ó­happi í neyð­arakstri.

Fleiri minni­háttar tjón urðu á ein­hverjum af þeim 140 bif­reiðum sem lög­reglan hefur yfir að ráða árið 2015, en þau eru ekki alvar­leg. Alls voru skráð 58 tjón á árinu, og kost­uðu þau rúmar 11 millj­ónir króna, en til sam­an­burðar voru þau 74 árið 2012 og kost­uðu um 17,5 millj­ónir. Tíu nýjar bif­reiðar voru pant­aðar á árinu og fóru þær til notk­unar í sjö emb­ættum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár