Formaður Öryrkjabandalagsins íhugar framboð

Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, íhugar nú alvar­lega að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Ákvörð­unar er að vænta á næstu dögum.

Ellen Calmon ætlar að ákveða sig á næstu dögum hvort hún ætli að bjóða sig fram til forseta Íslands.
Ellen Calmon ætlar að ákveða sig á næstu dögum hvort hún ætli að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Mynd: ÖBÍ

Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, íhugar nú alvar­lega að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Fram kemur í til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum að hópur fólks hafi að und­an­förnu skorað á Ellen að bjóða sig fram og hefur hún nú ákveðið að taka sér nokkra daga til umhugs­unar. Ákvörð­unar er því að vænta á allra næstu dögum.

„Ellen er 42 ára gömul og er gift Johani Tegel­blom flug­virkja. Saman eiga þau fjög­urra ára gamlan son . Ellen er kenn­ari að mennt og með diplóma­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu og hefur lagt stund á meist­ara­nám í því fagi. Hún hefur starfað sem kenn­ari, í opin­berri stjórn­sýslu á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu m.a. sem rit­ari borg­ar­stjóra og fræðslu- og menn­ing­ar­full­trúi hjá Sel­tjarn­ar­nesbæ. Þá var hún fram­kvæmda­stjóri ADHD sam­tak­anna þar sem hún er nú stjórn­ar­maður," segir í til­kynn­ing­unni.

Ellen er annar mögu­legi fram­bjóð­and­inn sem komið hefur fram í dag, en í morgun var greint frá því að Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, sé einnig að íhuga fram­boð.

Á annan tug ein­stak­linga íhuga fram­boð og svipður fjöldi hefur til­kynnt að þau vilji kom­ast á Bessa­staði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár