Bæjarstjóri íhugar forsetaframboð

Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, íhugar nú að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Hann segir form­lega und­ir­skrift­ar­söfnun ekki hafna en verið sé að tala við fólk til að skoða mögu­legt bak­land.

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri
Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri Mynd: Youtube

„Við fjöl­skyldan höfum verið að skoða þetta alvar­lega með jákvæðu hug­ar­fari. Þetta er stór og mikil ákvörðun," segir Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, í sam­tali við Kjarnann. Eiríkur íhugar að bjóða sig fram til for­seta Íslands. RÚV greindi frá þessu í morgun.

Eiríkur seg­ist hafa rætt und­an­farið við fjöl­skyldu sína og vini og þar sé málið statt.

„Formleg und­ir­skrift­ar­söfnun er ekki hafin en það er umræða í gangi og þar er málið statt. Við erum að velta þessu alvar­lega fyrir okkur, en það er ekki komin nein dag­setn­ing eða svo­leiðis," segir hann. „Við eigum mikið af góðu fólki og marga góða að. Þess vegna erum við að ræða við fólk til að heyra hvað því finnst. Þetta er það stórt og mikið emb­ætti og ákvörð­unin eftir því. Við ætlum að gefa okkur góðan tíma í að fara yfir þetta."

Eiríkur hefur verið bæj­ar­stjóri á Akureyri síðan árið 2010 og stendur utan flokka.

Eiríkur bæt­ist nú í hóp þeirra fjöl­mörgu sem annað hvort íhuga að bjóða sig fram til for­seta eða hafa nú þegar til­kynnt fram­boð. Meðal þeirra sem liggja undir feldi eru Davíð Oddsson, Andri Snær Magnason, Bryndís Hlöðvers­dóttir, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Davíð Þór Jónsson og Linda Pét­urs­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár