Eru til „hrein kol“?

„Hrein kol“ er hug­tak sem við heyrum sífellt oftar. Eru kol ekki bara kol eða eru hrein kol ein­hver sér­stök teg­und?

Kol eru notuð til þess að framleiða 40 prósent af raforku heimsins. Þau eru ódýrari en flestir aðrir orkugjafar en hafa alvarlegustu afleiðingarnar.
Kol eru notuð til þess að fram­leiða 40 pró­sent af raf­orku heims­ins. Þau eru ódýr­ari en flestir aðrir orku­gjafar en hafa alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar. Mynd: EPA

Stutta svarið er ein­fald­lega: Neibb.

Kol eru það elds­neyti sem enn er notað í miklum mæli til raf­orku­fram­leiðslu. Um 40 pró­sent allrar raf­orku fram­leidd með kola­bruna og 39 pró­sent alls útstreymis gróð­ur­húsa­loft­teg­unda heims­ins má rekja til kola.

Kol eru skítug­asta og ban­væn­asta orku­upp­spretta sem mann­kynið hefur yfir að ráða. Og þau eru miðað við flesta efna­hags­lega mæli­kvarða ódýrasta orku­upp­sprettan.

Víðast hvar í heim­inum er eft­ir­spurn eftir kolum að aukast. Það ræðst að mestu af auk­inni orku­þörf heims­ins. Nýjar og ódýrar aðferðir við að sækja jarð­gas hefur sum staðar komið í stað kola­bruna til raf­orku­fram­leiðslu, eins og til dæmis í Banda­ríkj­unum, en það eitt og sér dugar ekki til þess að minnka kola­bruna mann­kyns­ins.

Árið 2012 blés mann­kynið 34,5 millj­örðum tonna af koldí­oxíði vegna bruna jarð­efna­elds­neytis út í and­rúms­loftið. Stærsti hlut­inn var vegna kola­bruna.

[adspot]

Donald Trump

Síðan Donald Trump var kjörin for­seti Banda­ríkj­anna síð­asta vetur hefur þessi frasi – hrein kol eða clean coal – fengið að heyr­ast víðar og úr munni fleiri merki­legra manna en flestir ættu að kæra sig um.

„Það er til fyr­ir­bæri sem kall­ast hrein kol. Kol munu vera til um aldir alda í þessu landi,“ sagði Trump til dæmis í kapp­ræðum í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna. Sem for­seti hefur Trump svo ákveðið að draga stuðn­ing Banda­ríkj­anna við Par­ís­ar­sam­komu­lagið til baka, skipað ann­ál­aðan efa­semda­mann um hlýnun jarðar yfir umhverf­is­stofnun Banda­ríkj­anna og fellt úr gildi reglu­gerðir um vist­vænni orku­fram­leiðslu. Allt til þess að „end­ur­reisa kola­námu­iðn­að­inn í Banda­ríkj­unum“.

Það sem Donald Trump á eflaust við (og nú er blaða­maður að draga álykt­anir) er fram­leiðslu­að­ferð sem nota má til þess að fanga meng­andi loft­teg­undir áður en þær fara út í and­rúms­loftið. Það er fal­leg lausn við flóknu vanda­máli. Kol eru eftir allt saman ódýr og stór hluti mann­kyns reiðir sig á kolin.

Vanda­málið er að þessi fram­leiðslu­að­ferð kostar mjög mikið.

Þrjár dýrar leiðir

Það eru þrjár aðferðir við að fanga kolefnið áður en það verður að mengun. Ein gengur út á að sía útblást­ur­inn frá orku­verk­smiðj­unni og fanga þannig kolefnið og grafa það. Önnur gengur út á að kemískum efnum er beitt til að fjar­lægja koldí­oxíð úr kol­unum og breyta þeim í efna­smíða­gas sem knýr túrbín­urnar í orku­verk­smiðj­unni. Þriðja leiðin er að brenna kol­unum með því að nota hreint súr­efni (O) í stað­inn fyrir venju­legt loft sem er 80 pró­sent köfn­un­ar­efni. Með því að nota hreint súr­efni er auð­veld­ara að skima gróð­ur­húsa­loft­teg­und­irnar frá útblæstr­inum.

Allar þessar leiðir eru dýrar og kola­iðn­að­ur­inn er fátækur, ekki síst vegna þess að verð á kolum hefur fallið hratt á und­an­förnum árum. Verð­hrunið skýrist að ein­hverju leyti af inn­leið­ingu umhverf­is­vernd­ar­reglu­verks en aðal­lega vegna auk­inna vin­sælda ann­ara orku­gjafa.

Dauðadæmt frá upphafi

Kola­fyr­ir­tækið Southern Co. hefur unnið að bygg­ingu kola­orku­vers í Miss­issippi-ríki í Banda­ríkj­unum sem átti að verða fyrsta „hrein­kola­verk­smiðjan“ í heim­inum.

Opnun verk­smiðj­unnar hefur nú verið frestað í nokkur ár og kostn­aður við smíði verk­smiðj­unnar og tækn­innar hefur farið ævin­týra­lega fram úr áætl­unum. Nú er gert ráð fyrir að kostn­að­ur­inn sé um 7,5 millj­arðar Banda­ríkja­dala.

Og það sem meira er; Verk­smiðjan mun að öllum lík­indum aldrei brenna kol því yfir­völd í Miss­issippi hafa nú farið fram á að Southern Co. kanni hvernig verk­smiðjan geti gengið ein­göngu fyrir jarð­gasi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár