Fjármálakerfið að komast á þann stað að áhættusækni er að aukast

Már Guð­munds­son segir að það sé mik­il­vægt að sölu­ferli Arion banka gangi vel. Áhættu­sækni sé að vaxa í íslensku banka­kerfi og eft­ir­lits­að­ilar þurfi að sjá til þess að hún gangi ekki of langt.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir að það sé nauð­syn­legt að Ísland fái banka­kerfi sem sé fjöl­breytt­ara varð­andi við­skipta­líkön og eign­ar­hald heldur en landið hafi í dag. „Ég held að allir séu sam­mála um það. Nú stendur fyrir dyrum að reyna að setja Arion banka í opið sölu­ferli og útboð. Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að það sé ferli sem sé gagn­sætt, að það sé eins mikið traust á því og er hægt og að það gangi vel. Vegna þess að það er allra hagur.“ Þetta er meðal þess sem kom fram í sjón­varps­þætti Kjarnans sem frum­sýndur var á Hring­braut síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild hér að neðan.

Már segir að jafn­vel þótt að íslenska ríkið sé ekki eig­andi að

Arion

banka þá sé það samt hag­hafi þegar kemur að sölu­ferli hans. „Við erum þarna með

kerf­is­lega

mik­il­vægan banka. Ákveðinn hluti af greiðslu­miðl­un­inni fer þarna í gegn. Við erum með tryggðar inn­stæður og síðan er þetta auð­vitað líka ásýnd­ar­mál. Ef þetta gengur vel þá mun það hafa jákvæð áhrif á ásýnd Íslands.“

Það sem Már seg­ist hafa meiri áhyggjur af nú um stundir af er að fjár­mála­kerfið sé að kom­ast á þann stað að áhættu­sækni innan þess sé að aukast. „Það er allt í lagi upp að vissu marki. En þá er það hlut­verk eft­ir­lits­að­il­anna að sjá til þess að það gangi ekki of langt, það er sótt á að þetta ger­ist mjög hratt. Og sjá til þess að sá við­bún­aður sem er til staðar[...]að hann haldi. Að það sé ekki farið að bakka of langt út úr því þegar á reynir.[...]Þarna mun reyna á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár