„Ómannúðlegar, kaldrifjaðar og forkastanlegar“ aðgerðir ÚTL

Formaður Solaris segir að aðgerðir Útlend­inga­stofn­unar séu okkur sem sam­fé­lagi til hábor­innar skammar – að æðstu stjórn­endur útlend­inga­mála ger­ist sekir um ólög­legar aðgerðir gegn fólki á flótta.

Sema Erla telur að dómsmálaráðherra og staðgengill Útlendingastofnunar ættu að segja starfi sínu lausu.
Sema Erla telur að dóms­mála­ráð­herra og stað­geng­ill Útlend­inga­stofn­unar ættu að segja starfi sínu lausu. Mynd: Samsett mynd

Sema Erla Serdar, for­maður Solaris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk, kallar eftir ábyrgð dóms­mála­ráð­herra, Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, og stað­geng­ils for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar, Þor­steins Gunn­ars­sonar eftir að kæru­nefnd útlend­inga­mála felldi úr gildi ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að fella niður þjón­ustu umsækj­anda um alþjóð­lega vernd fyrir að vilja ekki und­ir­gang­ast PCR-próf. Allt að tutt­ugu manns lentu á göt­unni í kjöl­far ákvörð­un­ar­innar.

„Ég myndi nú bara segja að þau ættu að segja starfi sínu lausu. Það er ekk­ert flókn­ara en það. Við erum bara komin með allt of mörg dæmi um van­hæfni Útlend­inga­stofn­unar og áhuga­leysi stjórn­valda að gera betur í mál­efnum fólks á flótta. Og þetta hrein­lega gengur ekki lengur. Það eru allir upp­gefnir á þessu og við hrein­lega verðum að fá fólk sem hefur mannúð og rétt­læti að leið­ar­ljósi til þess að vinna að mál­efnum fólks á flótta. Það þarf að fara í alvar­legar umbætur og jafn­vel breyt­ingar í kringum þennan mála­flokk í íslensku sam­fé­lagi,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann.

Telur Sema Erla að leggja eigi Útlend­inga­stofnun niður. Stofn­unin geri meira ógagn en gagn – og ætti það að vera hluti af algjörri end­ur­skoðun í mál­efnum útlend­inga hér á landi.

Hvaða þýð­ingu hefur ákvörðun sem þessi, að hætta að veita þessum við­kvæma hópi þjón­ustu?

Semu Erlu finnst með ólík­indum að Útlend­inga­stofnun hafi tekið þá ákvörðun að fella niður þjón­ustu.

„Við erum að tala um þjón­ustu sem er til þess fallin að upp­fylla grund­vall­ar­rétt­indi ein­stak­lings­ins. Stofn­unin tekur af þeim hús­næði, hún tekur af þeim fram­færslu­pen­ing og hún fellir niður lækn­is­þjón­ustu hjá þessum ein­stak­lingum. Hún bók­staf­lega setur þá á göt­una í landi þar sem þeir eru ekki með neinn stuðn­ing, ekk­ert bak­land; þeir eru alls­lausir og einir á göt­unni.“

Hún segir að mjög auð­velt sé að sjá að slíkt sé ólög­legt og sam­ræm­ist hvorki lögum né gildum og við­miðum sem við sem sam­fé­lag höfum – eða alla­vega þykj­umst hafa. „Þetta er auð­vitað áfell­is­dómur, bæði yfir Útlend­inga­stofnun og dóms­mála­ráð­herra þegar kæru­nefnd útlend­inga­mála í raun­inni stað­festir ólög­mæti þess­ara aðgerða. Vegna þess að bæði stað­geng­ill for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar og ráð­herra hafa reynt að halda því fram að þetta hafi verið lög­legt – áður en það var úrskurðað ólög­legt.“

Hún bendir á að Rauði kross­inn, lög­menn þess­ara ein­stak­linga og fleiri hafi bent á það strax í upp­hafi þegar ákvörð­unin um að fella niður þjón­ust­una var tekin fyrir um þremur mán­uðum að hún væri ólög­leg.

„Samt sem áður hættir Útlend­inga­stofnun ekki að vísa fólki á göt­una fyrr en það er búið að taka af þeim valdið til að gera það.“

Sorglega að enginn muni axla ábyrgð

Sema Erla segir að aðgerðir Útlend­inga­stofn­unar séu ómann­úð­legar, kald­rifj­aðar og for­kast­an­legar. „Þær eru okkur sem sam­fé­lagi til hábor­innar skammar, að æðstu stjórn­endur útlend­inga­mála ger­ist sekir um aðgerðir eins og þessar. Þetta eru sömu aðilar og eru ábyrgir fyrir því að vernda þá sem sækja um hæli og veita þeim þjón­ustu meðan þeir eru hérna á land­inu.“

Þannig hafi þessi æðstu stjórn­endur gerst brot­legir í starfi. „Það sorg­lega er að eng­inn mun axla ábyrgð á þessu.“

Nokkrir þeirra sem voru á göt­unni eftir ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar hafa fengið að snúa til baka í hús­næði á þeirra vegur, að hennar sögn. „Það hefur eng­inn beðist afsök­unar og við höfum ekki fengið að heyra neitt um að það eigi að gera ein­hverjar breyt­ingar svo þetta end­ur­taki sig ekki. Þvert á móti er alltaf verið að reyna að troða í gegn lögum á Alþingi sem í raun munu gera þetta lög­legt fyrir yfir­völd. Þannig að þetta er afskap­lega sorg­legt og maður skamm­ast sín fyrir að við sem sam­fé­lag komum svona fram við fólk í neyð sem hefur leitað hingað að skjóli og vernd.“

Varðandi traust milli Útlend­inga­stofn­unar og umsækj­enda um vernd, hefur þessi ákvörðun áhrif á það?

„Jú, ég held að það sé óhætt að segja að það traust hafi ekki verið mikið fyrir vegna þess að við þekkjum svo mörg dæmi um ómann­úð­lega og ósann­gjarna með­ferð á fólki á flótta og upp­lif­anir þeirra eru oft mjög slæmar. Þetta er vissu­lega ekki til að bæta úr því.“

Sema Erla bendir á að hver umsækj­andi um vernd sem hingað kemur til lands eigi rétt á ákveð­inni grund­vall­ar­þjón­ustu. „Það eru rétt­indi sem hrein­lega má ekki taka af neinni mann­eskju. Og það gerir Útlend­inga­stofnun. Það er verið að koma svo illa fram við þá sem stofn­unin á að vernda og sem betur fer sjáum við enn og aftur að almennir þegnar í íslensku sam­fé­lagi styðja upp til hópa ekki við svona aðgerðir en það voru margir sem komu þeim til aðstoðar þegar þeir lentu á göt­unni. Það svelti eng­inn þrátt fyrir að það hafi átt að svelta þá til hlýðni, ef svo má að orði kom­ast.

Aðgerðir sem þessar eru auð­vitað ekk­ert annað en kúgun og ofbeldi. Að við skulum vera með yfir­völd sem grípa til svo öfga­fullra aðgerða er mikið áhyggju­efni. Að við séum með stofn­anir sem leyfa sér að koma svona fram við fólk sem er þegar í við­kvæmri stöðu.“

Hvernig hefur þeim reitt af sem lentu á göt­unni og eru núna komnir aftur með þjón­ustu hjá Útlend­inga­stofnun?

Sema Erla segir að þau hjá Solaris hafi verið í miklum sam­skiptum við þessa ein­stak­linga og verði það áfram. „Mín upp­lifun er svo­lítið sú að allir séu ein­fald­lega að jafna sig á þessu öllu saman. Þetta er búið að vera ótrú­leg átök og maður getur ein­hvern veg­inn ekki ímyndað sér hver eft­ir­köstin verða – hver áhrifin til lengri tíma verða. Við erum að tala um ein­stak­linga sem hafa nú þegar gengið í gegnum mjög erf­iða reynslu þegar þeir koma hingað og í raun­inni gerumst við þátt­tak­endur í að auka álagið á þá með svona fram­komu.

Þannig að þetta er vissu­lega áfall að verða fyrir svona fram­komu. Ég held að við eigum eftir að sjá það með tím­anum en ég veit að þeir eru afskap­lega þakk­látir þeim sem aðstoð­uðu þá,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár