McCain bjargaði Obamacare úr klóm repúblikana

Enn berj­ast repúblikanar við að koma kosn­inga­lof­orðum sínum í gegnum þingið. Það tókst ekki í gær og nú verður gert hlé á til­raun­unum.

John McCain er fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins. Hann tapaði í kosningum gegn Barack Obama árið 2008. Hann gekkst nýverið undir aðgerð vegna heilaæxlis og skartar stórum skurði fyrir ofan vinstra auga.
John McCain er fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins. Hann tap­aði í kosn­ingum gegn Barack Obama árið 2008. Hann gekkst nýverið undir aðgerð vegna heila­æxlis og skartar stórum skurði fyrir ofan vinstra auga. Mynd: EPA

Öld­unga­deild banda­ríska þings­ins hafn­aði enn á ný til­lögum for­ystu Repúblikana­flokks­ins um að afnema heil­brigð­is­trygg­inga­kerfið sem tók gildi í for­seta­tíð Baracks Obama, Obamacare.

Þingmenn greiddu í þetta skipti atkvæði um útvatn­aða útgáfu af afnámi Obamacare en fimm sinnum hefur þingið hafnað til­lögum um annað hvort afnám Obamacare og inn­leið­ingu nýrra heil­brigð­islaga – Trumpcare – eða ein­göngu afnám Obamacare.

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, mætti í þing­sal til þess að greiða það sem átti að verða úrslita­at­kvæði atkvæða­greiðsl­unnar. Það varð hins vegar að fýlu­ferð því John McCain, þing­maður frá Arizona og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi repúblik­ana, ákvað að greiða atkvæði gegn nýj­ustu til­lög­unni.

McCain gekkst nýverið undir aðgerð eftir að hafa greinst með heila­æxli. Hann hefur hins vegar verið í Washington þessa vik­una vegna þess að „hann ætl­aði ekki að láta atkvæði sitt falla dautt“ vegna veik­inda sinna. Hann útskýrði afstöðu sína svona á Twitter:

Af öllum 101 atkvæð­unum sem greidd voru 49 repúblikanar sem greiddu atkvæði með útvötn­uðu afnámi Obamacare en sam­tals 51 sem kusu gegn til­lög­unni. Þar af voru þrír þing­menn Repúblikana­flokks­ins.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, skrif­aði á Twitter í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unnar:

Mikill skellur fyrir Mitch McConnell

Leiðtogi repúblik­ana á banda­ríska þing­inu, Mitch McConnell, aflýsti þing­fundi sem átti að halda í dag eftir að úrslit atkvæða­greiðsl­unnar voru ljós í nótt. Talið er að nú sé komið á leið­ar­enda her­farar repúblik­ana í þing­inu gegn Obamacare, í það minnsta í bili, enda hafa til­lögur flokks­ins verið felldar sex sinnum.

[links]Repúblik­ana­flokk­ur­inn og full­trúar hans hafa lofað því í sjö ár, eða síðan Obamacare var sam­þykkt og leitt í lög, að afnema lögin og fá ný stað­fest þegar flokk­ur­inn stjórn­aði öllum stofn­unum lög­gjaf­ar- og fram­kvæmda­valds­ins.

Það gerð­ist svo í fyrsta sinn á þessum sjö árum í jan­úar að for­seti úr röðum repúblik­ana tók við völdum í Hvíta hús­inu. Hann hefur hins vegar sýnt að hann hafi ein­fald­lega ekki nógu yfir­grips­mikla þekk­ingu á gangi mála í þing­inu – hvað þá á heil­brigð­is­trygg­inga­kerf­inu – til þess að verða öfl­ugur frum­mæl­andi nýrra heil­brigð­islaga.

Þegar hefur verið reynt að smíða og leggja til nýtt heil­brigð­is­kerfi sem kæmi í stað­inn fyrir Obamacare; Trumpcare. Því kerfi hefur verið hafnað og öllum útfærslum á því enda þóttu þær til­lögur lélegar og inn­an­tóm­ar. Þing­menn úr báðum flokkum fengu að heyra það í kjör­dæmum sín­um. Þess vegna var ákveðið að láta á það reyna að efna helm­ing­inn af lof­orð­inu og afnema lög­gjöf Obama. Það hefur ekki tek­ist þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár