Missti fingur á girðingu við leiksvæði barna

Starfs­maður á frí­stunda­heim­ili sem missti fingur vegna girð­ingar telur hættu­legar girð­ingar vera víða í leik­um­hverfi barna. Slys hafa ítrekað orðið vegna þeirra. Borgin hafnar bóta­kröfu og segir girð­ing­una hafa verið setta upp sam­kvæmt leið­bein­ingum.

Með skerta hreyfigetu
Með skerta hreyfi­getu Signý starfar nú sem starfs­nemi hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og vinnur einnig að meist­ara­rit­gerð sinni í alþjóða­sam­skiptum við Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Signý Tindra Dúa­dóttir missti fingur í vinnu­slysi á síð­asta ári. Hún festi gift­ing­ar­hring sinn í teinum á girð­ingu við frí­stunda­heim­ili í Vest­ur­bænum með þeim afleið­ingum að fing­ur­inn rifn­aði af. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fólk slasar sig alvar­lega á þess­ari gerð girð­inga en fyrir nokkrum árum skarst barn til að mynda alvar­lega á hálsi þegar það klifraði yfir sams­konar girð­ingu. Herdís L. Storgaard, verk­efna­stjóri hjá Miðstöð slysa­varna barna, seg­ist enn fá til­kynn­ingar um slys vegna þess­ara girð­inga þrátt fyrir tölu­verða fjöl­miðlaum­fjöllun í kjöl­far alvar­legs slyss í Hafn­ar­firði árið 2011. Hún segir alveg ljóst að girð­ingar af þessu tagi séu ólög­legar við leik­svæði barna. Reykja­vík­ur­borg er ekki á sama máli.

Hætti við að klifra yfir

Girð­ing­arnar má finna víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þær eru á milli umferða­gatna, í kring um bygg­inga­svæði, skóla og við íþrótta­svæði og sund­laugar. Oftast eru þær annað hvort grænar eða gráar. Á þeim eru litlir teinar sem eru ýmist efst eða neðst á girð­ing­unni. Ef tein­arnir eru neðst þá er efri hlut­inn alveg sléttur. Á flest öllum skóla- og íþrótta­svæðum snúa tein­arnir niður og á þeim stöðum sem þeir snúa upp hafa skólar gjarnan látið setja hlíf yfir tein­ana svo þeir valdi ekki skaða. „En það eru enn leik­skólar og skóla­lóðir með girð­ingar með teinum sem snúa upp,“ full­yrðir Signý.

Hún var að vinna á frí­stunda­heim­il­inu Frost­heimum við Frosta­skjól í Vest­ur­bænum þegar slysið átti sér stað. Hún hafði séð strák úr hópnum hlaupa á bak­við skúr og fór að sækja hann. Dreng­ur­inn hafði sparkað bolta yfir girð­ingu sem var við skúrana og hugð­ist klifra yfir til að sækja hann. „Ég bað hann um að gera það ekki og bauðst til að sækja bolt­ann. Ég byrj­aði að klifra, en sá síðan litlu tein­ana efst á girð­ing­unni og leist ekki á blik­una. Tein­arnir voru aug­ljós­lega hættu­legri en þeir virt­ust við fyrstu sýn þannig ég hætti við að klifra yfir. Ég sleppti því tak­inu á girð­ing­unni, en það var nóg til þess að gift­inga­hring­ur­inn minn fest­ist í einum tein og fing­ur­inn rifn­aði af.“

Borgin hafnar bótakröfu

Missti fingur
Missti fingur Signý Tindra Dúa­dóttir missti fingur á girð­ingu við frí­stunda­heim­ili þar sem hún starf­aði.

Signý seg­ist hafa farið í áfall við slysið, bæði lík­am­legt og and­legt. „Það er ekki fal­legt þegar fingur rifnar af,“ útskýrir Signý, en hún fékk sýk­ingu og 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár