Guðlaugur Þór gefur lítið fyrir samanburð á Trump og Boris

Utan­rík­is­ráð­herra Íslands mærir nýjan for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og segir ólíku saman að jafna, þeim Trump og Boris.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra gefur lítið fyrir sam­an­burð á Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, og Boris Johnson, nýjum for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, í við­talið í Bítinu á Bylgj­unni í morgun.

Hann segir að ólíku sé saman að jafna, þegar litið er á þessa tvo stjórn­mála­menn. „Trump hefur aldrei verið í stjórn­málum og hefur stutt annan stjórn­mála­flokk en hann er í núna mjög lengi og kemur allt ann­ars staðar að. Hann er með aðra nálgun en maður sér hjá hefð­bundnum stjórn­mála­mönnum,“ segir utan­rík­is­ráð­herra.

Guð­laugur Þór skilur ekki hvernig fólk getur stillt þeim Trump og Johnson upp saman. „Trump hefur til dæmis lagt áherslu á herð­ingu í inn­flytj­enda­málum – þú finnur ekki slíkt hjá Boris Johnson – og það sem menn skil­greina oft sem popúl­isma. Boris Johnson er búinn að vera í stjórn­málum í ára­tugi og er frjáls­lyndur íhalds­maður. Hann hefur til dæmis verið borg­ar­stjóri í London þar sem hann vann London, sem á ekki að vera hægt fyrir íhalds­mann, og komst hann mjög vel frá því verk­efni.“

Prýðisfólk í nýju ríkisstjórninni

[links]Guð­laugur Þór greinir frá því að honum hafi fund­ist mjög gott að starfa með Johnson þegar hann gegndi stöðu utan­rík­is­ráð­herra. Hann segir að Johnson kunni að slá á létta strengi.

„Hér fer ekki á milli mála að hér er mjög hæfur stjórn­mála­maður á ferð­inni með ákveðna sýn á hvert hann vill fara. Hann er óhefð­bund­inn að mörgu leyti og það held ég að sé í fínu lagi,“ segir hann.

Jafn­framt bætir Guð­laugur Þór því við að framundan bíði Johnson gríð­ar­lega erfitt verk­efni og að nýi for­sæt­is­ráð­herr­ann leggi ekki ein­ungis áherslu á Brexit. Hann segir enn fremur að mikið sé af prýð­is­fólki í nýju rík­is­stjórn Johnson sem hann hafi einnig kynnst í gegnum tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár