Harðlínu hægristjórn í Bretlandi

Boris Johnson hefur skipað nýja rík­is­stjórn hægri­s­inn­aðra og umdeildra ráð­herra. Boris boðar lækkun skatta, fjölgun lög­reglu­manna og hertra refs­inga glæpa­manna. Einnig stefnir í nýja atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands.

Ný harð­línu hægri­st­jórn Borisar Johnson hefur verið skipuð. Rík­is­stjórn hans skipa nú 31 ráð­herrar sem eiga það sam­eig­in­legt að vera mjög hægri­s­inn­aðir og umdeildir.

Boris Johnson ávarp­aði þingið í fyrsta sinn sem for­sæt­is­ráð­herra í dag og sagð­ist vilja gera Bretland að besta landi í heimi. Hann sagði einnig að nú und­ir­búi rík­is­stjórn hans lækkun skatta, að samið verði um Brexit fyrir 31. októ­ber, að fjölgað verði lög­reglu­mönnum um 20 þús­und og að refs­ingar glæpa­manna verði hertar. Jafn­framt vildi hann koma á nýju kerfi fyrir inn­flytj­endur að ástr­al­skri fyr­ir­mynd.

Umdeildir ráðherrar skipaðir

Rík­is­stjórn Borisar skipa afar umdeildir ráð­herrar. Priti Patel, inn­an­rík­is­ráð­herra, sagð­ist til að mynda í beinni sjón­varps­út­send­ingu vera hlynnt

dauða­refs­ingu

. Hún er dyggur stuðn­ings­maður Borisar Johnson og sagði að hann væri

eina mann­eskjan

sem gæti bjargað Brexit og Íhalds­flokknum. Patel lét af störfum í ráðu­neyti May í kjöl­far óheim­ila funda með ísra­elskum stjórn­mála­mönnum. Áður var hún útsend­ari þrýsti­hóps fyrir tóbaks- og áfeng­is­fyr­ir­tæki.

Dominic Raab, nýskip­aður utan­ríkis- og ríkja­sam­bands­ráð­herra Bret­lands, kom sér í klandur eftir að í ljós kom að hann vissi ekki fyrr en nýlega af til­vist Calais flótta­manna­búð­anna. Raab er einnig harður Brexit-liði. Elizabeth Truss er nýr alþjóða­við­skipta­ráð­herra og dyggur stuðn­ings­maður Borisar og dyggur Brexit-liði líkt og Raab.

Fyrr­nefndir ráð­herrar, Raab, Patel og Truss eru meðal höf­unda Britannia Unchained, safn harð­línu hægri stjórn­mála­rit­gerða sem birt­ust árið 2012. Í safn­inu birt­ist aðdáun þeirra af Thatcherisma og kallað var eftir að skattar væru lækk­aðir og að rétt­indi verka­fólks í Bret­landi væru tak­mörkuð til að auka sam­keppn­is­hæfni Bret­lands.

Jafn­framt er Amber Rudd nýr atvinnu-, eft­ir­launa- og jafn­rétt­is­ráð­herra. Áður var hún inn­an­rík­is­ráð­herra en sagði af sér í kjöl­far Windrush hneyksl­is­ins þar sem breskum rík­is­borg­urum var vísað úr landi fyrir rangar sakir. Nóg verður að gera hjá Stephen Barclay sem er skip­aður sér­stakur ráð­herra um útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu, enda hefur Boris gefið lýst því yfir að Bretland muni hafa samið um útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu 31. októ­ber.

Boris hefur skipað Michael Gove sem nýjan ráð­herra Lancaster her­toga­dæm­is­ins. Hann er umdeildur vegna kóka­ínn­eyslu sinnar á fyrri árum. Hann var áður mennta­mála­ráð­herra og barð­ist hart gegn stétt­ar­fé­lögum kenn­ara. Gavin Williamson, mennta­mála­ráð­herra, var áður varn­ar­mála­ráð­herra en lét af völdum í kjöl­far þess að hafa lekið upp­lýs­ingum um varn­ar­mál Bret­lands. Skipað var í fleiri ráð­herra­stöður sem hægt er að lesa nánar um hér.

Með­al­aldur ráð­herr­anna er 48 ár og eru ein­ungis 26 pró­sent ráð­herr­anna konur þrátt fyrir lof­orð for­sæt­is­ráð­herra um að fjölga konum í ráðu­neytum. Þá hlutu 64 pró­sent ráð­herr­anna menntun sína úr einka­reknum skólum sam­kvæmt Sutton Trust, sjóði sem berst fyrir auknu félags­legum hreyf­an­leika (e. social mobility).

Stefnir í atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands

Nicola Sturgeon, for­sæt­is­ráð­herra skosku heima­stjórn­ar­innar, hefur nú þegar sent for­sæt­is­ráð­herra bréf um mál­efni Skotlands og afstöðu gagn­vart Brexit. Bréfið gefur til kynna að efnt verður til nýrra atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands.

Í bréf­inu leggur Sturgeon áherslu á að meiri­hluti Skota hafi kosið með því að vera áfram innan Evr­ópu­sam­band­inu. Hún sagði að útganga úr sam­band­inu myndi hafa alvar­leg áhrif á líf og störf Skota og myndi fækka störfum í Skotlandi um hund­rað þús­und. „Réttur Skota til að ákveða sína eigin fram­tíð er grunnur lýð­ræð­is­lög­mála sem þarf að virða,“ skrif­aði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár