Hvað eru eiginlega vísindi?

Vís­inda­gangan verður gengin í Reykja­vík í dag. Meg­in­inn­tak göng­unnar er að minna á hlut­verk vís­inda í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi.

Vísindi miða að því að auka skilning okkar á veröldinni sem við búum í.
Vísindi miða að því að auka skiln­ing okkar á ver­öld­inni sem við búum í. Mynd: Pexels.com

Vísindin eru ein meg­in­stoð lýð­ræð­is­legs sam­fé­lags og þau þjóna sam­eig­in­legum hags­munum þjóða og stuðla að upp­lýstum ákvörð­unum í þágu almenn­ings. Þetta er meg­in­inn­tak Vís­inda­göng­unnar sem farin verður frá Skóla­vörðu­holti í dag.

Vís­inda­gangan er alþjóð­legur við­burður sem á rætur að rekja í vís­inda­sam­fé­lag­inu í Banda­ríkj­unum. Gengið er í mörgum borgum víðs vegar um heim­inn á árlegum Degi Jarðar sem er í dag 22. apríl. Vís­inda­fé­lag Íslend­inga stendur fyrir göng­unni hér á landi.

Að göng­unni lok­inni verður efnt til fundar í Iðnó þar sem rætt verður um þá hættu sem steðjar að vís­inda­starfi og vís­inda­fólki. Fram­sögu­menn verða Ashley Mears, dós­ent í félags­fræði við Boston Uni­versity, Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur við Veð­ur­stofu Íslands, og Ragn­hildur Helga­dóttir, pró­fessor við Laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík.

Gangan hefst klukkan 13:00 í dag á Skóla­vörðu­holti og eru allir vel­komnir.

[adspot]

Vísindin eiga undir högg að sækja

Á und­an­förnum árum og ára­tugum hefur afstaða almenn­ings til vís­inda og stað­reynda breyst á þann veg að nú séu skoð­anir jafn­vel settar til jafns við sann­an­legar stað­reyndir.

Hug­myndin að vís­inda­göng­unni varð til í Banda­ríkj­unum í upp­hafi árs en þar fer gangan fram í dag í skugga „þeirra breyt­inga sem hafa orðið á umhverfi vís­inda­manna og vís­inda­legrar afstöðu við ákvarð­ana­töku í Banda­ríkj­unum frá því að stjórn Donalds Trump tók við.“ Svona er sagt frá hug­mynd­inni að göng­unni á Facebook-síðu göng­unnar.

„Stefnu­mörkun nýrra vald­hafa mun hafa víð­tæk áhrif um allan heim og tak­marka mögu­leika vís­inda­manna til þess að stunda rann­sóknir og miðla þekk­ingu sinni og upp­götv­unum. Því horf­umst við í augu við mögu­lega fram­tíð þar sem fólk virðir ekki ein­ungis vís­inda­lega þekk­ingu að vettugi heldur reynir að úti­loka hana alger­lega.“

„Hér á landi liggur fyrir fjár­mála­á­ætlun á vegum rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára sem gerir ráð fyrir að hák­skóla­kerfið verði áfram fjársvelt og nið­ur­skurði á sam­keppn­is­sjóðum á næsta ári,“ segir um hið íslenska umhverfi vís­ind­anna.

Fjár­mála­á­ætl­unin liggur nú hjá fjár­laga­nefnd Alþingis. Umsagn­ar­frestur um þessa þings­á­lykt­un­ar­til­lögu rann út í gær, föstu­dag. Í til­lög­unni eins og hún var lögð fyrir þingið í lok mars er gert ráð fyrir að fram­lög til háskóla­stigs­ins verði aukin úr 41,6 millj­örðum króna á árinu 2017 í 44,4 millj­arða árið 2022.

Vísindin sem hornsteinn lýðræðisins

Vísindi miða að því að auka skiln­ing okkar á ver­öld­inni sem við búum í. Vísindi eru tæki sem gera okkur kleift að auka við og end­ur­meta þekk­ingu okkar. Þess vegna eiga vís­indin við allar mann­verur, ekki aðeins þær sem eru í valda­stöðum.

Vísindin greina og spyrja spurn­inga um ver­öld­ina okkar. Skiln­ingur okkar á ver­öld­inni er alltaf að breyt­ast og nýjar spurn­ingar eru að vakna. Með tækjum vís­ind­anna er mögu­legt að svara spurn­ing­unum og byggja betri stefnu­mál og betra reglu­verk sem þjónar almenn­ingi betur. Þannig má færa rök fyrir því að vís­indi séu mik­il­vægur hlekkur í lýð­ræð­is­kerfi.

Stjarneðl­is­fræð­ing­ur­inn Neil deGrasse Tyson – sem Íslend­ingar þekkja af sjón­varps­skjánum sem leið­sögu­mann um alheim­inn í vís­inda­þátt­unum Cosmos – er einn þeirra vís­inda­manna sem hafa lagt mikið á sig til að minna á mik­il­vægi vís­ind­anna. Í til­efni af Vís­inda­göng­unni vest­an­hafs ræðir Tyson um vís­indin á áhrifa­mik­inn hátt í með­fylgj­andi mynd­bandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár