Heildarfjöldi greiddra gistinátta dróst saman um 3,1 prósent á milli áranna 2018 og 2019, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Þær voru rúmlega 10 milljónir árið 2019 en tæplega 10,4 milljónir árið 2018. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í dag.
Gistinætur á hótelum og gistiheimilum drógust saman um 1,3 prósent, á gististöðum sem miðla gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður varð 10,8 prósent samdráttur og 1,9 prósent samdráttur á öðrum tegundum gististaða á borð við farfuglaheimili og tjaldsvæði.

[adspot]
[links]Kjarninn fjallaði um fækkun ferðamanna fyrr í mánuðinum en þar kom fram að alls hefðu brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll, sem notaðar eru til viðmiðunar um hversu margir ferðamenn heimsóttu landið, verið 1.986.153 í fyrra. Það er um 329 þúsund færri en árið 2018, sem var metár, en þá voru brottfarir 2.315.925. Til samanburðar þá búa um 364 þúsund manns á Íslandi um þessar mundir. Ferðamönnum fækkaði því um tæplega eina íslenska þjóð í fyrra.
Ferðamennirnir sem flugu frá Íslandi voru því 14,2 prósent færri í fyrra en árið á undan og tæplega tíu prósent færri en þeir voru árið 2017. Ferðamenn í fyrra voru hins vegar fleiri en árið 2016.
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 1 prósent
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í desember síðastliðnum dróst saman um 4,6 prósent samanborið við desember 2018, samkvæmt Hagstofunni. Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 1 prósent á meðan 11 prósent samdráttur var á gistiheimilum. Á öðrum tegundum gististaða drógust gistinætur saman um 6 prósent en um 19 prósent á stöðum sem miðla gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður.
Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 504.000 í desember síðastliðnum en þær voru um 528.200 í sama mánuði árið áður. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 352.700, þar af 304.700 á hótelum. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum og þess háttar voru um 87.300 og um 64.000 á stöðum sem miðla gistingu í gegnum vefsíður á borð við Airbnb, segir á vef Hagstofunnar.
Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 304.700, sem er 1 prósent aukning frá sama mánuði árið áður. Gistinóttum á hótelum á Norðurlandi fækkaði um 23 prósent en þeim ýmist fjölgaði eða héldust óbreyttar á öðrum landsvæðum. Um 67 prósent allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 204.300.
Heildarfjöldi gistinátta á hótelum árið 2019 var um 4.519.000, og fjölgaði þeim um 1 prósent frá árinu 2018.
Nýting best á höfuðborgarsvæðinu
Herbergjanýting á hótelum í desember 2019 var 50,6 prósent og féll um 2,7 prósentustig frá fyrra ári. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 8,9 prósent mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í desember var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 67,7 prósent.
Um 90 prósent gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn, eða 274.700. Ferðamenn frá Bretlandi voru með flestar gistinætur, eða 69.000 nætur, þar á eftir komu Bandaríkjamenn með 60.300 nætur og Kínverjar með 42.000 nætur en gistinætur Íslendinga voru 30.000.
Samkvæmt áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands voru gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða um 2.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 17.000.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir